Forvarnir eru ekki kostnaður – þær eru fjárfesting í framtíðinni Helga Björg Loftsdóttir skrifar 6. febrúar 2026 13:00 Forvarnir meðal ungs fólks er eitt mikilvægasta verkefni sem samfélagið stendur frammi fyrir í dag. Þegar ungir einstaklingar leiðast út af brautinni er það sjaldnast vegna skorts á vilja eða hæfileikum, heldur vegna skorts á stuðningi, tilgangi og öruggu umhverfi. Ef við viljum raunverulega styrkja stoðir samfélagsins og tryggja farsæla framtíð næstu kynslóða þurfum við að leggja aukna áherslu á markvissar og öflugar forvarnir, í nánu samstarfi við íþrótta- og tómstundafélög landsins. Íþrótta- og tómstundafélög sem verndandi þáttur Íþrótta- og tómstundafélög gegna einstöku hlutverki í lífi barna og ungmenna. Þar myndast félagsleg tengsl, sjálfsmyndin styrkist og lærdómur um ábyrgð, aga og samvinnu verður hluti af daglegu lífi. Fyrir marga eru íþróttir ekki aðeins afþreying, heldur skjól, rútína og vettvangur þar sem þau finna að þau skipta máli. Þessi áhrif má og á að nýta mun betur í forvarnarstarfi. Fjölmargar íslenskar rannsóknir hafa sýnt að þátttaka ungmenna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi dregur úr líkum á að ungmenni leiðist út í frávikshegðun. Þegar ungmenni stunda reglulega virkni/hreyfingu, tilheyra hópi og hafa jákvæðar fyrirmyndir, minnka líkurnar á einangrun, vímuefnaneyslu og annarri áhættuhegðun. Íþrótta-og tómstundastarf er því ekki aðeins heilsuefling fyrir ungmenni, það er samfélagslegt öryggisnet. Aðgengi og samstarf getur skiptir sköpum Þrátt fyrir þetta er aðgengi að skipulögðu íþrótta-og tómstundastarfi ekki jafnt fyrir alla. Kostnaður, félagslegar aðstæður og skortur á stuðningi geta orðið til þess að sum ungmenni leiðast út af brautinni og þá oftast þau sem mest þurfa á stöðugleika og jákvæðum fyrirmyndum að halda. Þar liggur einmitt stærsta áskorunin og um leið stærsta tækifærið. Við þurfum markvissara samstarf milli hins opinbera, skóla og íþrótta- og tómstundafélaga. Forvarnir mega ekki vera stök verkefni eða tímabundnar herferðir, heldur samfelld stefna sem byggir á traustum tengslum við ungt fólk. Með því að styrkja íþrótta- og tómstundafélög til að sinna einnig félagslegu hlutverki, fræða þjálfara og kennara um forvarnir, geðheilbrigði og tryggja að enginn sé útilokaður vegna efnahags, getum við náð raunverulegum árangri. Rödd ungmenna og fjárfesting til framtíðar Það er líka mikilvægt að hlusta á ungmennin sjálf. Lausnir sem eru þróaðar án þeirra missa oft marks. Ungt fólk veit best hvaða áskoranir þau standa frammi fyrir og hvernig best er að mæta þeim. Með því að gefa þeim rödd í mótun forvarnarstarfs og starfsemi íþrótta- og tómstundafélaga styrkjum við ábyrgðartilfinningu, sjálfstraust og samfélagsþátttöku. Forvarnir snúast um að skapa aðstæður þar sem fleiri fá tækifæri til að blómstra. Með sterkum tengslum við íþrótta- og tómstundahreyfinguna getum við byggt upp umhverfi þar sem ungmenni finna tilgang, tilheyra samfélagi og þróa með sér heilbrigð gildi. Það skilar sér ekki aðeins í betri líðan, heldur í sterkari samfélagi til framtíðar. Forvarnir eru ekki kostnaður, þær eru fjárfesting. Fjárfesting í betra samfélagi, sterkari einstaklingum og minni félagslegum vanda til framtíðar. Það er ábyrgð sem við öll berum, og verkefni sem þolir ekki bið. Höfundur er varabæjarfulltrúi og frambjóðandi í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hafnarfjörður Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar