Hvað segir ESB um umsóknarferlið? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 7. febrúar 2026 09:30 „Viðfangsefni samningaviðræðna um inngöngu [í Evrópusambandið] er geta umsóknarríkis til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja veru í sambandinu. Hugtakið „samningaviðræður“ getur verið villandi. Viðræðurnar snúast um skilyrði og tímasetningar upptöku, innleiðingar og framkvæmdar umsóknarríkis á reglum Evrópusambandsins – um 100.000 blaðsíður af þeim. Og þessar reglur (einnig þekktar undir heitinu acquis, franska fyrir „það sem hefur verið samþykkt“) eru ekki umsemjanlegar,“ segir í upplýsingabæklingnum Understanding Enlargement. sem Evrópusambandið hefur gefið út og ætlað er að útskýra umsóknarferli ríkja að sambandinu Ekki sé þannig um eiginlegar samningaviðræður að ræða. „Fyrir umsóknarríki snýst þetta í raun um að komast að samkomulagi um það hvernig og hvenær eigi að samþykkja og innleiða reglur og verklagsreglur Evrópusambandsins. Fyrir sambandið er mikilvægt að fá tryggingar fyrir dagsetningu og skilvirkni innleiðingar reglnanna af hálfu hvers umsóknarríkis. Samningaviðræður fara fram milli aðildarríkja Evrópusambandsins og hvers umsóknarríkis og hraði þeirra fer eftir framvindu hvers lands við að uppfylla kröfurnar. Umsóknarríki hafa því hvata til að innleiða nauðsynlegar umbætur hratt og á skilvirkan hátt. Sumar þessara umbóta krefjast mikilla og stundum erfiðra umbreytinga á stjórnmála- og efnahagsskipulagi landsins,“ segir áfram í bæklingi Evrópusambandsins. Með hliðstæðum hætti er algengum spurningum um umsóknarferlið svarað á vef stækkunarráðuneytis Evrópusambandsins þar sem meðal annars kemur fram að umsóknarríki verði að taka upp allt regluverk sambandsins. „Umsóknarríki verða að samþykkja regluverkið áður en þau geta gengið í Evrópusambandið og gera það að hluta af landslögum sínum. Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið í heild og sjái til þess að það verði að fullu innleitt og komið til framkvæmda við inngönguna.“ Hliðstætt kemur fram í öðrum bæklingi Evrópusambandsins sem nefnist Enlargement of the European Union. „Til þess að undirbúa sig fyrir inngöngu í Evrópusambandið verður umsóknarríkið að taka upp og innleiða regluverk sambandsins. Viðræðurnar snúast um það hvernig og hvenær reglurnar eru teknar upp og innleiddar. Sömu skilyrði gilda um alla, það er að segja, ríki getur ekki valið hvaða hluta regluverks Evrópusambandsins það tekur upp. Í undantekningum geta aðlögunartímabil verið í boði.“ Tekið er fram að slík aðlögunartímabil séu aðeins í boði í undantekningartilfellum, þau þurfi að rökstyðja vel og verði að vera stutt. Að þeim loknum fari rík alfarið undir regluverk sambandsins í viðkomandi málaflokki. Fram kemur að einnig kunni að vera í boði sérstakar aðlaganir fyrir umsóknarríki að Evrópusambandinu, einnig nefndar sérlausnir, en að sama skapi aðeins í undantekningartilfellum. Slíkar aðlaganir fela aðeins í sér breytt fyrirkomulag stjórnsýslu á afmörkuðu sviði en ekki varanlegar undanþágur frá yfirstjórn og regluverki sambandsins. Forystumenn Evrópusambandsins hafa enda ítrekað sagt að slíkar varanlegar undanþágur séu ekki boði. Með öðrum orðum snýst ferlið einkum um aðlögun að sambandinu og í undantekningartilfellum hvernig og hvenær farið sé undir regluverk þess en ekki hvort. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar