Reykjanesundrið Gunnar Salvarsson skrifar 9. febrúar 2026 10:16 Þegar ég var í barnaskóla á sjöunda áratug síðustu aldar vorum við bekkjarsystkinin samstilltur hópur. Þá voru engar greiningar, engar einstaklingsáætlanir og engir utanaðkomandi sérfræðingar. Fyrir utan smávægilegan mun á námsgetu voru helstu frávikin þau að einn var rauðhærður og annar örvhentur. Það fór hins vegar ekkert milli mála að við vorum í skóla til að læra. Agi var ekkert aukaatriði. Kennarinn krafðist virðingar og stjórnaði bekknum með harðri hendi. Andrúmsloftið var óttablandið. Í dag blasir önnur mynd við. Strangir kennarar finnast örugglega enn. Börn eru hins vegar löngu hætt að líta upp til fullorðinna, þar á meðal kennara, og í hverjum bekk er fjöldi barna með mismunandi greiningar á þroskafrávikum, ofvirkni, einhverfueinkennum og svo mætti lengi telja. Flestir sjá að grunnskólinn er í kreppu og stendur hvorki undir væntingum samfélagsins né foreldra um námsárangur. Kennarar eru að bugast af álagi og ástæðurnar fyrir því hafa oft verið tíundaðar. Skortur á árangri er ekki skot út í loftið heldur staðreynd sem má lesa út úr ýmiss konar mælingum, niðurstöðum PISA-kannana og skýrslum Menntamálastofnunar. Í umræðu um úrbætur í menntamálum er gjarnan horft til útlanda, oft talað um finnsku leiðina, en ættum við ef til vill að líta okkur nær: til Reykjanesbæjar? Í áratugi voru þéttbýliskjarnarnir á Suðurnesjum ávallt neðarlega þegar litið var til námsárangurs í grunnskólum. Þetta sýndu samræmdu prófin. Meginástæðan fyrir þessu lá í samfélagsgerðinni og kristallast hugsanlega í einni setningu: menntun var ekki lykilatriði í lífi barna að mati margra foreldra. Félagslegar aðstæður voru almennt ekki sterkar, tengsl skóla og heimila veik, búferlaflutningar algengir og snemma var hátt hlutfall barna með annað móðurmál en íslensku. Það var því fátt sem benti til þess að einföld lausn væri í sjónmáli suður með sjó. Engu að síður tókst að snúa þróuninni við og börn í Reykjanesbæ standa nú jafnfætis öðrum börnum á landinu og hafa jafnvel forskot á ýmsum sviðum. Þetta gerðist ekki með nýrri hugmyndafræði heldur einfaldri, en á sínum tíma nokkuð róttækri ákvörðun í sveitarfélaginu: að leggja aftur megináherslu á kennsluna sjálfa, sérstaklega læsi, og grípa strax í taumana þegar börn ná ekki grunnfærni. Ekki var beðið eftir greiningum, heldur sett skýr viðmið í lestri og málþroska í yngstu bekkjunum. Mælingar fóru fram reglulega og snemmtækum inngripum var beitt þegar börn drógust aftur úr. Starfsfólki leik- og grunnskóla bauðst stuðningur til að afla sér frekari menntunar og námskeið voru haldin fyrir foreldra við upphaf leikskóla- og grunnskólagöngu barna. Ef litið er til íslenskra og alþjóðlegra rannsókna sýna þær að snemmtæk íhlutun í læsi skilar miklum árangri, sérstaklega hjá börnum í áhættuhópum. Miklu skipti í þessu sambandi að nálgunin var stefnumótun af hálfu sveitarfélagsins, ekki tilraunaverkefni einstakra kennara. Þeir fengu í hendur sameiginlegt verkefni þar sem allir voru á sömu blaðsíðunni, en jafnframt skýrar línur um væntingar og stuðning. Ábyrgðarkeðjan var einföld og sterk: hver átti að bregðast við, hvenær og hvernig. Árangurinn birtist ekki strax. Umbætur í menntun grunnskólabarna skila sér ekki á einu kjörtímabili. Menntarannsóknir benda á að slíkar breytingar sjáist oft mörgum árum síðar. Fljótlega kom þó í ljós að fyrstu árgangarnir sem fóru í gegnum kerfið stóðu sig marktækt betur: færri nemendur voru undir lágmarksviðmiðum, munur milli skóla minnkaði og lestrarfærni batnaði, sérstaklega hjá strákum. Þetta má lesa úr samantektum sveitarfélagsins, úr mælingum á lestri yngri nemenda og í minni þörf fyrir íþyngjandi úrræði síðar í skólagöngunni. Ef stefna bæjaryfirvalda í skólamálum í Reykjanesbæ virkaði, hvers vegna fóru þá ekki fleiri sveitarfélög sömu leið? Sjálfsagt eru mörg svör við þeirri spurningu, en líklegast er meginskýringin sú að þetta fór ekki hátt. Stefnan fól ekki í sér neina töfralausn: að hefja lestrarkennslu snemma, grípa strax inn, mæla reglulega og hafa kerfisbundið eftirlit. Reykjanesundrið, ef svo má að orði komast, var ekki kraftaverk heldur til marks um þrautseigju og skýr markmið samstilltra fræðsluyfirvalda, skólastjórnenda og kennara. En það var heldur engin tilviljun að á þessum umbrotatíma var Árni Sigfússon í forystu sveitarfélagsins, menntaður kennari með einlægan áhuga og ástríðu fyrir skólamálum, og Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur, sem þróaði og byggði markvisst upp mál- og hljóðörvunartól fyrir börn. Skólinn er fyrst og fremst menntastofnun sem á að kenna börnum að lesa, skrifa og skilja heiminn. Reykjanesbær er skólabókardæmi um það hvernig hægt er að snúa þróun við, ekki með fleiri greiningum, heldur með betri kennslu og samræmdum aðgerðum um að lyfta menntun barna upp á nýtt stig, ef gengið er saman í takt. Höfundur er fyrrverandi skólastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Mest lesið Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Skoðun Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland skrifar Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsmiðlar eru ekki barnaleikur Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira