Reiknar með einu gosi í viðbót Sunna Sæmundsdóttir skrifar 9. febrúar 2026 13:01 Magnús Tumi er prófessor í jarðeðlisfræði. Vísir/Einar Ekki er útilokað að skjálftahrina við Eldey endi með eldgosi, að sögn prófessors í jarðeðlisfræði. Langmestu líkurnar séu þó á einu gosi til viðbótar á Sundhnúksgígaröð. Farið sé á að síga á seinni hlutann í yfirstandandi eldvirknitímabili á svæðinu.
Áköf skjálftahrina hefur verið við Eldey um helgina og yfir þrjú hundruð skjálftar hafa mælst. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, bendir á að skjálftahrinur á því svæði séu yfirleitt vegna flekahreyfinga og að aukin tíðni hafi verið á þeim frá því að gostímabilið á Reykjanesi hófst. Vöktun við Eldey var aukin fyrir um tveimur árum og GPS-mæli komið þar fyrir. Magnús Tumi segir mælinn ekki hafa sýnt neina aflögun og að engin merki séu nú um gosóróa. „En við getum ekkert fullyrt að svona atburðarás endi ekki með gosi. Það er viðbúið að það muni gerast einhvern tímann. Hvort það gerist á næstunni, eða hvort það gerist í framtíðinni er ómögulegt að segja til um. Þetta er bara virkt svæði og það þarf að fylgjast með því. Miðað við söguna er líklegast að þetta fjari út en það er ekki hægt að útiloka að það komi gos í framhaldinu,“ segir Magnús Tumi. Magnús Tumi bendir á að lítil gos hafi orðið við Eldey á síðastliðnum fimmtíu árum. Slíkt væri líklegast ef til goss kemur. Einnig geti þó orðið stærri atburðir, líkt og þegar Eldey myndaðist.Vísir/Egill Fari svo reiknar Magnús Tumi með því að það yrði lítið, jafnvel svo lítið að það nái ekki upp á yfirborðið. Ekki sé þó heldur hægt að útiloka stærri atburð og gos sem myndi trufla flugumferð. Kvikuinnstreymið við Svartsengi er nú mun hægara en áður og Magnús Tumi bendir á að ekki hafi liðið lengra á milli eldgosa frá því að gostímabilið hófst. „Það er að streyma inn kvika þrátt fyrir að það sé miklu hægara en það var, eða um hálfur rúmmetri á sekúndu. Það er meðaltal þess sem var í þrjú ár fyrir síðasta gosið í Kröflu.“ Hann telur að seinni hluti þessa virknitímabils á Reykjanesi standi nú yfir. Líklegast sé að það gjósi einu sinni til viðbótar á Sundhnúksgígaröð. Merki um að hægt sé að huga að uppbyggingu „Við vitum reyndar ekki hvenær þetta er búið fyrr en löngu eftir að það er hætt. Það var eins með Kröfluelda, síðasta gosið þar var árið 1984 en kvika var síðan að safnast þar saman næstu fimm árin. Svo hætti það en það varð ekki annað gos. Þetta gæti verið svipuð staða. Óvissa fylgir þessari atburðarás. Við verðum bara að lifa með henni og vonandi næst að byggja upp Grindavík aftur og það eru svona ákveðin merki um að það sé að fara að gerast.“
Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Grindavík Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira