Dagskráin í dag: Nær United þeim fimmta í röð og fær hárið að fjúka? Aron Guðmundsson skrifar 10. febrúar 2026 06:00 Manchester United hefur verið á miklu skriði undir stjórn Michael Carrick Vísir/Getty Það er nóg um að vera á sportrásum Sýnar í dag. Tuttugasta og sjötta umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefst, lærisveinar Guðjóns Vals í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta eiga leik og Bónus deildin í körfubolta heldur áfram rúlla.
Veislan í dag hefst klukkan rúmlega sex á Sýn Sport Ísland þar sem sýnt verður beint frá viðureign Stjörnunnar og Hauka í Bónus deild kvenna. Rúmlega klukkustund síðar hefst bein útsending frá viðureign KR og nýkrýndra bikarmeistara Keflavíkur í sömu deild. Sá leikur verður sýndur á Sýn Sport Ísland 2. Áður en við snúum okkur að enska boltanum er vert að minnast á beina útsendingu frá leik lærisveina Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach á móti Flensburg. Bæði lið er í baráttunni í efri hluta deildarinnar, Flensburg í öðru sæti en Gummersbach í því sjötta. Leikurinn hefst klukkan sjö og verður sýndur á Sýn Sport Viaplay. Þá eru athyglisverðir leikir á dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Þrír leikir hefjast klukkan hálf átta. Á Sýn Sport tvö mætast Chelsea og Leeds United. Chelsea verið á miklu skriði í deildinni upp á síðkastið og er í 5.sæti á meðan að Leeds United vann frábæran sigur í síðustu umferð og færist fjær fallsvæðinu. Á Sýn Sport 3 tekur Everton á móti Bournemouth og á Sýn Sport 4 taka lánlausir Tottenham menn á móti Newcastle United en bæði lið hafa verið í brasi upp á síðkastið. Klukkan korter yfir átta á Sýn Sport hefst síðan leikur West Ham United og Manchester United. Þar geta Rauðu djöflarnir unnið sinn fimmta sigur í röð í deildinni, mikið undir fyrir einn ákveðinn stuðningsmann liðsins sem hefur ekki farið í klippingu síðan í október árið 2024 og ætlar ekki að fara í klippingu fyrr en liðið vinnur fimm leiki í röð í deildinni. Að þessum leikjum loknum taka þriðjudagsmörkin við þar sem öll mörk kvöldsins verða sýnd. Þá endar kvöldið á Sýn Sport á lokaþætti Lokasóknarinnar þetta tímabilið í NFL deildinni þar sem meðal annars leikurinn um Ofurskálina verður gerður upp.
Dagskráin í dag Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Fleiri fréttir Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Heimspekingurinn Winston jós úr viskubrunni sínum Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Dagskráin í dag: Enginn Ronaldo í Danmörku Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira