Bylting í útsendingum frá íslenskum körfubolta Sindri Sverrisson skrifar 10. febrúar 2026 10:06 Til stendur að sýna meðal annars frá úrslitakeppni yngri flokka á KKÍ TV. Samsett/KKÍ Sjónvarpsstöðin KKÍ TV mun á morgun hefja útsendingar frá íslenskum körfubolta og um leið marka mikil tímamót.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Körfuknattleikssambandi Íslands í dag. Stöðin er afrakstur samstarfs KKÍ og SÝN Sport en á henni verða beinar útsendingar frá öllum leikjum í 1. deild karla og kvenna, auk leikja í 2. og 3. deild sem og í yngri flokkum. Nú er nýlokinni bikarhelgi í íslenskum körfubolta þar sem hægt var að fylgjast með úrslitaleikjum í yngri flokkum á sportrásum Sýnar, og nýja stöðin mun að sama skapi veita áhorfendum tækifæri til að fylgjast með yngri flokkum í úrslitakeppni eftir því sem kostur er. Innkoma stöðvarinnar þýðir að aldrei hafa jafnmargar beinar útsendingar frá íslenskum körfubolta staðið til boða. Myndbandadómgæsla nýtt í yngri flokkum Samstarf Sýnar og KKÍ felur einnig í sér að innleidd verður myndavélatækni sem gerir körfuboltafélögunum, þjálfurum, dómurum og leikmönnum kleift að fá mun betri innsýn en áður varðandi myndefni, tölfræði og gögn um leiki. Þá segir í tilkynningu að myndbandadómgæsla muni taka miklum framförum og verða nýtt í mun fleiri leikjum en áður, bæði í meistaraflokkum og yngri flokkum. Í opinni dagskrá í febrúar Útsendingar hefjast dagana 11.-12. febrúar þegar allir leikir í 1. deild verða sýndir í beinni á KKÍ TV. Í febrúar verða allir leikir aðgengilegir í opinni dagskrá en frá og með 1. mars verður KKÍ TV rekið sem áskriftarþjónusta. Verðið á KKÍ TV verður 1.990 kr. á mánuði. KKÍ TV verður aðgengilegt í gegnum myndlykla Sýnar og SÝN sjónvarps appið.
Körfubolti KKÍ Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira