„Hann er kominn í rétta stöðu“ Stefán Árni Pálsson skrifar 10. febrúar 2026 12:31 Bruno hefur verið magnaður á tímabilinu fyrir Manchester United. Miðjumaðurinn Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, hefur leikið einstaklega vel í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Hann hefur komið að 12 mörkum United í síðustu tíu leikjum liðsins. Í 22 leikjum í deildinni í vetur hefur hann skorað sex mörk og gefið tólf stoðsendingar.
Nú hefur United unnið fjóra leiki í röð og getur liðið unnið þann fimmta gegn West Ham í kvöld. Bruno var til umræðu í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport á sunnudaginn. „Hann er svo skapandi. Ég hafði alltaf á tilfinningunni, þegar hann var að spila undir stjórn Mourinho, að hann vildi vinna tæklinguna, gefa boltann fyrir og vera sjálfur mættur inn í teiginn til að taka á móti sinni eigin fyrirgjöf. En núna er hann að svona spara sig örlítið meira,“ segir Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari í þættinum á sunnudaginn. „Hann er kominn í rétta stöðu þegar liðið er með boltann. Við viljum hafa hann fyrir utan teiginn eða inni í teignum. Þessi hálfsvæði sem eru svo mikilvæg í fótbolta í dag. Þetta er svo mikilvægt svæði fyrir alvöru lið til að hafa leikmenn sem eru kreatífir og skapandi og geta ógnað bæði með skotum og sendingum og líka vera mættir inn í teig til þess að taka á móti fyrirgjöfinni. Hálfsvæðisleikmenn gleyma því oft að þeir þurfa líka að vera mættir inn í teig þegar fyrirgjöfin kemur úr gagnstæðri átt.“ Hér að neðan má sjá brot úr síðasta þætti. Klippa: Umræðan um Bruno sem er loksins kominn í rétta stöðu
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Meiddist í Portúgal Enski boltinn Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Fleiri fréttir Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Sjá meira