Heilbrigðiskerfi sem treystir á seiglu Sandra B. Franks skrifar 10. febrúar 2026 12:03 Í umræðu um íslenskt heilbrigðiskerfi er oft vísað til stefnumótunar, skipulags og fjármögnunar. Slík umræða er mikilvæg, en hún segir ekki alla söguna. Raunveruleg mynd birtist ekki í skýrslum eða áætlanagerð, heldur í daglegum rekstri, í starfseminni, á vöktunum, í vitjunum, hjá starfsfólkinu í samskiptum við sjúklinga og aðstandendur. Heilbrigðiskerfið hangir saman vegna þess að fólk mætir til vinnu, lætur verkin tala, bregst við og grípur til ýmissa úrræða þegar hlutirnir ganga illa. Það sem heldur þjónustunni gangandi er einmitt seigla starfsfólks. Og nú hefur seiglan smám saman orðið að sjálfgefinni forsendu fyrir starfseminni. En seigla er ekki lausn. Hún er neyðarráðstöfun. Álag í heilbrigðiskerfinu er ekki lengur tímabundið ástand sem tengist einstökum áföllum. Það er orðið viðvarandi og kerfislægt. Skortur á starfsfólki, aukin þjónustuþörf og þröngur rammi í mönnun leiðir til þess að ábyrgðin færist í vaxandi mæli á herðar þeirra sem standa í framkvæmdinni. Til þeirra sem sjá til þess að hlutirnir gerist, jafnvel þegar forsendurnar eru brostnar. Sjúkraliðar eru í þeirri stöðu. Þeir starfa á öllum stigum heilbrigðisþjónustunnar og tryggja samfellu í þjónustu. Þeir eru ekki jaðarhópur í kerfinu, heldur gegna þeir lykilhlutverki. Þeir upplifa fyrst þegar tíminn til umönnunar þrengist, þegar öryggismörk verða óljós og þegar kerfið treystir í auknum mæli á persónulega ábyrgð einstaklinga. Kerfislægt álag krefst kerfislægra lausna Í nánu samstarfi við BSRB og fagfélög heilbrigðisstétta blasir við sameiginleg sýn. Vandinn snýst ekki um eina stétt eða eina stofnun, heldur um hvernig heilbrigðiskerfið er byggt upp sem miðstýrt opinbert kerfi, reist á góðum markmiðum og skýrum lögum. En í framkvæmd hvílir það of oft á seiglu starfsfólksins þegar mönnun, skipulag og ákvarðanir ná ekki að halda í við raunveruleikann. Sumar stéttir vinna fyrst og fremst með ákvarðanir, greiningar og faglega umgjörð. Aðrar sinna umsjón og sérhæfðri þjónustu. Sjúkraliðar vinna með afleiðingarnar. Þeir finna það strax þegar mönnun dugar ekki til, þegar þjónustan skerðist og fagmennska fer smám saman að snúast um afköst frekar en gæði og öryggi. Heilbrigðiskerfi sem treystir ítrekað á seiglu starfsfólks í stað þess að byggja upp raunhæfar lausnir er kerfi sem er komið að þolmörkum. Lausnin felst ekki í því að ætlast til enn meiri aðlögunar af fólki sem þegar starfar undir miklu álagi. Hún felst í því að taka á rót vandans. Að hlusta á fólkið sem vinnur í kerfinu, tryggja raunhæfa mönnun, móta skýra verkaskiptingu, viðurkenna ábyrgð og tengja skipulag og stefnumótun við raunverulega starfsemi og rekstur. Heilbrigðiskerfi sem virkar aðeins vegna fórnfýsi starfsfólks er kerfi sem grefur markvisst undan eigin grunnstoðum. Höfundur er formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sandra B. Franks Heilbrigðismál Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar