Framsókn til framtíðar – Með Lilju í forystu Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar 11. febrúar 2026 09:30 Á flokksþinginu næstu helgi stöndum við Framsóknarfólk frammi fyrir mikilvægri ákvörðun. Við veljum okkur ekki aðeins nýjan formann, heldur ákveðum við hvert við viljum að Framsókn stefni til framtíðar og hvaða gildi við viljum hafa að leiðarljósi. Til þess þurfum við sterkan leiðtoga sem getur sameinað ólíka hagsmuni. Lilja Dögg Alfreðsdóttir er sá formaður sem við þurfum til þess. Framsókn hefur alla tíð byggt á samvinnuhugsjóninni. Þeirri trú að besti árangurinn náist með samtali fremur en átökum, jafnvægi fremur en öfgum og lausnamiðaðri hugsun sem stuðlar að vinnu, velferð og vexti. Sú hugsjón endurspeglast vel í störfum Lilju sem hefur ítrekað sýnt það og sannað að hún nálgast stjórnmál af festu, alúð og fagmennsku. Slík forysta er mikilvægari nú en aldrei fyrr á tímum þar sem pólitísk umræða einkennist of oft af sundrung fremur en því sem sameinar okkur. Í störfum sínum sem menntamálaráðherra sýndi Lilja pólitískt þor og hafði skýra forgangsröðun. Hún lagði áherslu á mikilvægi menntunar og var afdráttarlaus í þeirri skoðun sinni að kennarar leggi grunn að öllum öðrum störfum samfélagsins. Í umræðum um setningarræðu forsætisráðherra haustið 2020 sagði Lilja orðrétt; „Ekkert í heiminum er fegurra en hamingjusöm börn. Börn sem njóta umhyggju og ástar, búa að sjálfstrausti og bjartsýni, börn sem vita beint eða óbeint að þeirra bíða tækifæri í góðu og fjölskylduvænu samfélagi.“ Þessi orð Lilju endurspegla skilning hennar á samfélaginu og eru í beinu samræmi við grunngildi Framsóknar; að fjárfesta í fólki og hafa skýra sýn um í hvernig samfélagi við viljum búa. Framsókn þarf á formanni að halda sem styrkir samvinnuhugsjónina sem er mikilvægari nú sem aldrei fyrr. Lilja Dögg Alfreðsdóttir er rétta manneskjan til þess. Höfundur er grunnskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Linda Hrönn Þórisdóttir Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Á flokksþinginu næstu helgi stöndum við Framsóknarfólk frammi fyrir mikilvægri ákvörðun. Við veljum okkur ekki aðeins nýjan formann, heldur ákveðum við hvert við viljum að Framsókn stefni til framtíðar og hvaða gildi við viljum hafa að leiðarljósi. Til þess þurfum við sterkan leiðtoga sem getur sameinað ólíka hagsmuni. Lilja Dögg Alfreðsdóttir er sá formaður sem við þurfum til þess. Framsókn hefur alla tíð byggt á samvinnuhugsjóninni. Þeirri trú að besti árangurinn náist með samtali fremur en átökum, jafnvægi fremur en öfgum og lausnamiðaðri hugsun sem stuðlar að vinnu, velferð og vexti. Sú hugsjón endurspeglast vel í störfum Lilju sem hefur ítrekað sýnt það og sannað að hún nálgast stjórnmál af festu, alúð og fagmennsku. Slík forysta er mikilvægari nú en aldrei fyrr á tímum þar sem pólitísk umræða einkennist of oft af sundrung fremur en því sem sameinar okkur. Í störfum sínum sem menntamálaráðherra sýndi Lilja pólitískt þor og hafði skýra forgangsröðun. Hún lagði áherslu á mikilvægi menntunar og var afdráttarlaus í þeirri skoðun sinni að kennarar leggi grunn að öllum öðrum störfum samfélagsins. Í umræðum um setningarræðu forsætisráðherra haustið 2020 sagði Lilja orðrétt; „Ekkert í heiminum er fegurra en hamingjusöm börn. Börn sem njóta umhyggju og ástar, búa að sjálfstrausti og bjartsýni, börn sem vita beint eða óbeint að þeirra bíða tækifæri í góðu og fjölskylduvænu samfélagi.“ Þessi orð Lilju endurspegla skilning hennar á samfélaginu og eru í beinu samræmi við grunngildi Framsóknar; að fjárfesta í fólki og hafa skýra sýn um í hvernig samfélagi við viljum búa. Framsókn þarf á formanni að halda sem styrkir samvinnuhugsjónina sem er mikilvægari nú sem aldrei fyrr. Lilja Dögg Alfreðsdóttir er rétta manneskjan til þess. Höfundur er grunnskólakennari.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar