Úr huglægu mati í mælanlega þróun Marinó G. Njálsson skrifar 11. febrúar 2026 10:46 Með lögum nr. 130/1997, sem tóku gildi 20. desember 1997, var eftirfarandi ákvæði bætt inn í þágildandi lög um almannatryggingar nr. 117/1993: "Bætur almannatrygginga, svo og greiðslur skv. 59. gr. og fjárhæðir skv. 17. gr., skulu breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skal taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs." Þetta ákvæði hefur verið inni í lögum um almannatryggingar síðan. Þó núverandi útgáfa laganna beri númerið 100/2007, þá eru þau sömu og lög nr. 117/1993. Árið 2006 var hins vegar búið að breyta lögunum svo mikið, að ákveðið var að gefa þeim nýtt númer. Jafnframt skal tekið fram, að í núverandi lögum hefur orðinu „bætur“ verið skipt út fyrir „greiðslur“. Í rúmlega 28 ár hefur hlutinn "skal taka mið af launaþróun" verið framkvæmdur með huglægu mati fjármálaráðuneytisins á handvalinni launaþróun framundan og vanmat á launaþróun að baki ekki leiðrétt. Ég held að engum sæmilega hugsandi einstaklingur ætti ekki að velkjast í vafa að launavísitala sé mæling á launaþróun. Raunar vil ég ganga svo langt, að þetta sé EINA raunhæfa og hlutlausa viðmiðið. Við getum deilt um hvort hún sé rétt mæld, sem ég hef mínar efasemdir um, en þetta er opinber, óháð mæling á launaþróun. Ekkert handvalið. Ekkert pólitískt valið. Ekkert til að gleyma. Ekkert huglægt. Huglæg framkvæmd breytt hlutlæga Í skýringum með frumvarpi að lögum nr. 130/1997 segir að miða eigi við "almenna þróun launa" og að bætur eigi að breytast í "samræmi við þróun launa, en hækki þó aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs". Framkvæmdin hefur hins vegar verið, að fjármálaráðuneytið hefur gert áætlun um launaþróun framundan án þess að leiðrétta í samræmi við raunverulega launaþróun. Lífeyrisþegar hafa því hægt og rólega og stundum í stökkum dregist aftur út. Breytingin núna á lögunum er ætlað að leiðrétta þetta. Þ.e. að koma í veg fyrir að fjármálaráðuneytið bara "gleymi" að leiðrétta í samræmi við raunverulega launaþróun. Staðreyndin er að laun hækka (nánast) alltaf meira en fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir í fjárlögum. Svo sem ekkert óeðlilegt, því ekki vill fjármálaráðherra gefa upp hve langt hann er tilbúinn að ganga í kjarasamningum við opinbera starfsmenn. Lífeyrisþegar hafa alltaf dregist aftur úr Segja má, að þessi villa hafi verið til staðar frá fyrstu lögum um almannatryggingar, þ.e. alþýðutryggingar frá 1936. Greiðslur áttu alltaf að fylgja verðlagi, en gerðu það ekki. Á 8. áratugnum var gripið til þess að bæta við tekjutryggingu, síðan kom heimilisuppbót, sérstök tekjutrygging og sérstök heimilisuppbót. Þetta kom allt inn vegna þess að stjórnvöldum á hverjum tíma var fyrirmunað að breyta grunnfjárhæðinni í samræmi við breytingar á framfærslukostnaði. Það var ekki gert, vegna þess að grunnfjárhæðin var óskerðanleg, en allt hitt mátti skerða. Árið 2016 var lögum um ellilífeyri breytt og grunnlífeyrir og tekjutrygging slegið saman. Þá var von að stjórnvöld myndu hætta að svindla, en þau gerðu það ekki. Núna í haust var sami snúningur tekinn á örorkulífeyrinum. Meðan ekki er sett trygging fyrir því, að lífeyrisþegar haldi í við launaþróun mælda með því eina tæki sem er hlutlaust við þær mælingar, þá munu þeir dragast aftur úr. Svo einfalt er það. Áhyggjum beint í ranga átt Ég ætla ekki að segja, að ég skilji ekki áhyggjur þeirra sem hafa allt á hornum sér. Viðkomandi ættu hins vegar að beina athyglinni sinni að því hvernig launavísitalan er mæld eða hverjir það eru sem valda mestri hækkun vísitölunnar. Það eru nefnilega hóparnir í efri lögum samfélagsins, sem hreyfa mest við vísitölunni, ekki fólkið á lægstu töxtunum. Hann ætti líka að beina athyglinni að Samtökum atvinnulífsins og samninganefnd ríkisins, en hvorugur aðili virðist geta haldið aftur af launaskriði. Í mörg ár höfum við síðan séð æðstu ráðamenn og embættismenn þjóðarinnar fá kauphækkanir í samræmi við launavísitölu og hef ég ekki heyrt opinbera aðalinn kvarta yfir því. Hvers vegna er óeðlilegt að breytingar á tekjum lífeyrisþega hafi sama við mið og topparnir í þjóðfélaginu sem eru þegar á ofurlaunum? Kannski við eigum að breyta viðmiðinu fyrir efstu hópana og setja þak á hækkanir þeirra, þannig að þeir hækki aldrei meira en lífeyrisþegar! Þá myndi heyrast hljóð í horni. Enginn munur á launaþróun og launavísitölu Breytingarnar frá "launaþróun" í "launavísitölu" ætti ekki að vera neitt vandamál. Bæði orð lýsa nákvæmlega sama atriðinu. Það sem hins vegar virðist hræða marga er, að ætlunin er að breyta framkvæmdinni úr "áætlaðri, handvalinni launaþróun" í "raunverulega launaþróun". Farið verður úr huglægu mati í mælanlega þróun. Fjármálaráðuneytið getur ekki lengur hunsað launaþróun sem það hefur ekki tekið tillit til, vegna þess að spáprik eða kristalkúlur sögðu ekki rétt til um framtíðina eða vegna þess, eins og eðlilegt er, að ráðherra vildi ekki gefa upp hvað hann ætlaði að bjóða opinberum starfsmönnum í kjarasamningum, sem voru framundan, eða hvernig ríkið áætlaði að launaskrið myndi verða á árinu. Hann þarf svo ekkert að gera það heldur núna, en verður að leiðrétta um hver áramót vanmat til fortíðar. Lífeyrisþegar munu því hér eftir sem hingað til, fá hluta leiðréttinga sinni eftir á. Höfundur er ráðgjafi og áhugamaður um betra samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Marinó G. Njálsson Mest lesið Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Skoðun Af hverju eru íslenskir sprotar skráðir í Delaware? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason skrifar Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir skrifar Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Sjá meira
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar
Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun