Nú þarf Framsókn sterka forystu Anton K. Guðmundsson skrifar 12. febrúar 2026 07:31 Kæra Framsóknarfólk. Flokkurinn okkar stendur nú á tímamótum. Næstkomandi helgi komum við saman á flokksþingi og veljum nýja forystu fyrir Framsóknarflokkinn. Framsóknarflokkurinn verður 110 ára á þessu ári og hefur alla tíð verið flokkur lausna og uppbyggingar. En við vitum líka að traust þjóðarinnar er ekki sjálfgefið. Það þarf að vinna fyrir því. Nú er kominn tími til að tala af festu, sækja fram, endurnýja kraftinn og gera Framsókn á ný að burðarási í íslenskum stjórnmálum. Yfirburðir þekkingar Á þeim tímum sem við lifum, þar sem óvissa ríkir og heimilin finna fyrir erfiðu efnahagsástandi, þurfum við skýra og sterka forystu í efnahagsmálum. Forystu sem sameinar fólk, vinnur af festu og hefur þekkingu og lausnir á viðfangsefnum samtímans. Við stöndum einnig frammi fyrir stórum ákvörðunum um framtíð Íslands, þar á meðal umræðu um atkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu og málum eins og Bókun 35. Það mun reyna á formann Framsóknarflokksins í þeim efnum, því þurfum við leiðtoga sem getur talað af þekkingu, yfirvegun og af festu. Við þurfum leiðtoga sem er tilbúinn að berjast fyrir fullveldi og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar á slíkum tímum. Lilja Dögg Alfreðsdóttir er sá leiðtogi. Hún er alþjóðahagfræðingur með yfirgripsmikla reynslu úr Seðlabanka Íslands og hefur starfað sem ráðgjafi hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Hún býr því yfir djúpri þekkingu á efnahagsmálum og þeirri alþjóðlegu sýn sem þarf til að takast á við áskoranir samtímans. Lilja hefur einnig gengt veigamiklum ráðherraembættum og sýnt í störfum sínum að hún hefur bæði reynslu og styrk til að leiða, taka ákvarðanir og fylgja málum eftir af festu. Hún hefur jafnframt talað skýrt um afstöðu sína til þess að verja fullveldi íslensku þjóðarinnar. Mikil uppbygging framundan Ég tel að það geti verið mikill kostur að formaður flokksins sitji utan þings í þeim aðstæðum sem flokkurinn er í nú. Verkefni formanns næstu mánuði er að vera utan veggja Alþingis og ná samtali við fólkið í landinu. Einnig þurfum við sveitarstjórnarfólk mikið á forystu flokksins að halda næstu mánuði, þar sem styttist óðum í sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram 16. maí. Lilja hefur reynslu, þekkingu og kjark til að leiða Framsókn áfram. Hún stendur fyrir málefni sem skipta fólk máli: menntun, atvinnuuppbyggingu, sterkara samfélag og raunverulegar lausnir. Lilja hefur sýnt að hún getur bæði hlustað og tekið ákvarðanir – og hún hefur burði til að leiða flokkinn með styrk og skýrri stefnu. Framsókn þarf nú á sterkri forystu að halda. Ég hvet allt Framsóknarfólk um land allt til þess að styðja Lilju Dögg Alfreðsdóttur til formennsku og leiða flokkinn inn í næsta Framsóknaráratug. Höfundur er oddviti Framsóknarflokksins í Suðurnesjabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Anton Guðmundsson Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar