Ný samræmd próf lögð fyrir Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 14. febrúar 2026 16:53 Þórdís Jóna Sigurðardóttir forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu segir niðurstöður prófanna geta nýst vel. Vísir/Einar Ný samræmd próf verða lögð fyrir í grunnskólum landsins í mars. Forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu segir miklar vonir bundnar við prófin og að niðurstöðurnar muni hjálpa foreldrum að átta sig betur á því hvar börnin þeirra standa.
Samræmd könnunarpróf voru lögð fyrir grunnskólanemendur í 4., 7. og 9. bekk þar til árið 2021 en þá var því hætt tímabundið. Síðan þá hafa ný slík próf verið í vinnslu og eftir nokkra vinnu eru þau nú tilbúin. „Núna 2. mars þá fara í loftið stöðu- og framvindupróf sem eru hluti af matsferli og þetta eru próf sem eru bæði þá í stærðfræði og lesskilningur og eru sem sagt fyrir börn sem að eru í fjórða, fimmta, sjötta, sjöunda, alveg upp í tíunda bekk,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Prófin verða lögð fyrir á hverju ári og eru styttri en þau gömlu. Aðeins er skylda að leggja þau fyrir í fjórða, sjötta og níunda bekk. Þá hafa skólarnir nokkrar vikur til að láta nemendur taka prófin. „Prófaglugginn er alveg fjórar vikur þannig að þetta verður bara hluti af, sem sagt, námi barnanna. Þau bara mæta í skólann eins og venjulega og bara einhvern tímann á þessum fjórum vikum að þá sem sagt verður prófið lagt fyrir.“ Þórdís segir miklar vonir bundnar við prófin og að þau komi til með að nýtast kennurum, skólastjórnendum og menntayfirvöldum vel svo og foreldrum sem muni með þeim getað áttað sig betur á hvar börnin þeirra standa í náminu en foreldrarnir fá niðurstöðurnar í maí. „Það er bara auðvitað gríðarlega mikilvægt að við séum að nýta niðurstöðurnar til að bæta árangur hjá hverju og einu barni. Þannig að þetta er, að við teljum, við erum að fara algjörlega á nýjan stað með þessa hluti.“
Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira