Lærum nú einu sinni af reynslu annarra Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar 11. febrúar 2026 22:00 Áætlað er að bygging nýs öryggisfangelsis við Stóra-Hraun kosti um 33 milljarða króna og hefur sú tala vaxið ískyggilega á fáeinum árum. Í núverandi árferði er auðsjáanlegt að þessi áform eru óraunhæf og enda eflaust í 60 milljörðum ef af þeim verður, eftir 10 eða 20 ár. Afstaða-réttindafélag sendi stjórnvöldum nýverið minnisblað þar sem lagt er til að hætt verði við fangelsið að Stóra-hrauni og í stað þess skoðað að byggja upp hraðar og með ódýrari hætti. Við öllum blasir að það er alvarleg staða í fangelsismálum á Íslandi og uppbygging í fangelsiskerfinu þolir enga bið. Afstaða telur að stjórnvöld séu á rangri leið og bygging nýs öryggisfangelsis byggi á rangri forgangsröðun. Staðreyndin er sú að þörf fyrir hámarksöryggi nær aðeins til lítils hluta fangahópsins og því er þörfin ofmetin gífurlega. Um er að ræða um 120 öryggispláss en ekkert slíkt er til í dag á Íslandi. Öryggisfangelsi eru jafnframt dýrustu mannvirki sem hægt er að reisa í fangelsiskerfinu, bæði í byggingu og rekstri og hafa lítil sem engin áhrif til endurhæfingar. Slík úrræði auka raunar fremur líkur á endurkomu í fangelsi og þar með fjölda brotaþola. Í minnisblaðinu leggur Afstaða til að hætt verði við byggingu öryggisfangelsis við Stóra-Hraun og þess í stað ráðist í heildstæða uppbyggingu fangelsiskerfisins með áherslu á fjölbreytt fangelsisstig, endurhæfingu og hagkvæmni. Þar er lagt til að Litla-Hrauni verði breytt í sérhæft öryggisfangelsi fyrir allt að 40 fanga sem raunverulega þurfa slíkt öryggi og að föngum þar verði fækkað verulega. Samhliða verði opin og hálfopin fangelsi stækkuð og ný úrræði reist á höfuðborgarsvæðinu og á Norðurlandi. Með þessum breytingum myndi heildarfjöldi fangelsisplássa aukast um næstum 150 og verða alls um 320 í stað um 170 í dag. Þetta myndi létta verulega á kerfinu og skapa raunhæfa möguleika á þrepaskiptri afplánun og samfélagsaðlögun. Áfangaheimili yrðu jafnframt byggð en áfangaheimili er lykilatriði í eftirfylgni fólks eftir afplánun. Afstaða bendir í minnisblaðinu á að hægt sé að ráðast í þessa uppbyggingu með nútímalegum einingalausnum sem standast bæði íslenskt veðurfar og Evrópustaðla. Birgjar í samstarfi við fyrirtækið Stólpa hafa þegar reist fangelsi í Evrópu og þjónustuþorp fyrir virkjun hér á landi. Þá hefur Afstaða ítrekað vísað til Kerava-fangelsisins í Finnlandi sem er byggt úr timbri, hýsir um 130 fanga og kostaði um 7 milljarða króna. Heildarkostnaður við þær lausnir sem Afstaða leggur til er áætlaður um 15 milljarðar króna eða minna en helmingur af kostnaði við fyrirhugað öryggisfangelsi við Stóra-hraun. Jafnframt væri hægt að ljúka uppbyggingunni á innan við 12 mánuðum. Afstaða leggur ríka áherslu á að nú sé þörf á tafarlausum aðgerðum. Félagið telur að með breyttri stefnu megi byggja upp skilvirkara, mannlegra og hagkvæmara fullnustukerfi sem skilar raunverulegum árangri fyrir samfélagið allt. Höfundur er formaður Afstöðu-réttindafélags Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Ingi Þóroddsson Fangelsismál Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar