Hvað kostar 100 milljarða á ári? Sigrún Unnsteinsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 09:03 Ætlar þú að horfa á leikinn á eftir ? Er ekki ættarmót framundan ? eða er bara fjöldskyldan að fara að grilla eða skreppa í saman sumarbústað ? Verður þá ekki að kaupa nóg af áfengi ? Annars verður ekkert gaman. Hvað segirðu; drekkur þú ekki ? Ertu alki eða ? Áfengi er eitur sem veldur sjúkdómnum alkóhólisma. Það er ekki gleði í öllum flöskum. Sumar valda sorg og trega. Áfengisneysla kostar samfélagið okkar 100 miljarða á ári. Í alvöru ? Já í alvöru. Og af hverju eru þá ekki allir að tala um þá sóun ? Þegar stórt er spurt er fátt um svör. Áfengisneysla veldur auknu álagi á öll kerfi samfélagsins. Heilbrigðisstarfsfólk er í fremstu víglínu þegar takast þarf á við afleiðingar áfengisneyslu. Að nýliðnum læknadögum var viðtal við yfirlækni á bráðamóttöku á RUV þar sem hann hvatti fólk til þess að hætta að fara á fyllerí og ef það þyrfti endilega að fara á fyllerí að vera þá bara uppí rúmi heima á fylleríi með hjálm. Þá var hann að tala um að einn af hverjum fimm sem kæmi á bráðamóttöku væri undir áhrifum og hefði líklega annars ekki komið. Úr dagbókum lögreglunnar eftir hverja helgi eru sorgarsögur af fólki sem hefur farið sér að voða undir áhrifum og jafnvel valdið öðrum skaða. Alls kyns slagsmál og slys. Ekið undir áhrifum, lent í árekstri þar sem aðrir hafa slasast eða látið lífið. Valdið margvíslegu eignatjóni. Fjöldskyldur líða fyrir alkóhólisma. Börn alast upp við óboðlegar aðstæður þar sem barnaverndarnefndir þurfa að grípa inní. Áfengismeðferð er yfirleitt reynd þegar allt er komið í rúst hjá fólki. Langir biðlistar víðast hvar. Árlega deyja 142 einstaklingar á Íslandi af völdum áfengisdrykkju. Nú er EDRÚVIKA 5-12 febrúar. Við vorum hvött til þess að vera edrú þessa viku sem nú er á enda og láta andvirði áfengisins sem við annars hefðum drukkið renna til Krísuvíkursamtakanna þar sem nú eru 120 manns á biðlista. Það er ekki verið að biðja um mikið. Ein vika af fimmtíu og tveim. Eru ekki annars allir í stuði ? Eigum við ekki að selja áfengi í öllum matvörubúðum ? Höfundur er í 2. sæti á framboðslista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Áfengi Sósíalistaflokkurinn Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar