Er skynsamlegt að fækka þeim sem læra íslensku? Haraldur Bernharðsson, Guðrún Lárusdóttir, Hafsteinn Einarsson, Heimir Freyr Viðarsson, Ingólfur Vilhjálmur Gíslason, Kolbrún Friðriksdóttir, Piergiorgio Consagra og Þóra Másdóttir skrifa 12. febrúar 2026 12:00 Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til laga (mál 317, opinberir háskólar, breyting á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008) er ætlað er að veita opinberum háskólum — Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Hólaskóla og Landbúnaðarháskóla Íslands — heimild til að innheimta skólagjöld af nemendum með ríkisfang utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Lögin kveða á um að opinberir háskólar fái ekki fjárveitingu til að mennta nemendur með ríkisfang utan EES heldur þurfi nemendurnir að standa alfarið straum af þeim kostnaði sjálfir. Enda þótt nákvæm kostnaðargreining hafi ekki átt sér stað virðist ekki fjarlægt að ætla að skólagjöld fyrir þriggja ára nám í hugvísindum næmu á bilinu sex til sjö milljónum króna. Íslensk fræði og íslenska sem annað mál Í Háskóla Íslands er sérfræðiþekking á íslensku máli og bókmenntum, þýðingafræðum, og íslenskum miðaldafræðum og þar eru meðal annars stundaðar rannsóknir á máltileinkun íslensku. Þarna er Háskóli Íslands í forystuhlutverki; miðstöð íslenskra fræða í heiminum. Í Háskóla Íslands stunda hundruð nemenda nám í íslensku sem öðru máli og er um helmingur þessa hóps með ríkisfang utan Evrópska efnahagssvæðisins. Við blasir að gjaldtaka sem mæta ætti öllum útgjöldum við nám þessara nemenda myndi girða algjörlega fyrir möguleika þeirra á að læra íslensku við Háskóla Íslands. Þessir nemendur eru ekki færir um að greiða þær upphæðir sem boðaðar eru í frumvarpinu. Nemendahópurinn Í meginatriðum eru nemendur í íslensku sem öðru máli af tvennum toga: (a) Annars vegar eru nemendur sem búa hér og starfa en hafa erlent ríkisfang. Meðal þessara nemenda eru, svo dæmi sé tekið, hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar á Landspítala. Þessir nemendur eru virkir í íslensku samfélagi og vilja vera það áfram eigi þeir þess kost. Þeir leggja drjúgan skerf til samfélagsins; við hvorki viljum né getum án þeirra verið. (b) Hins vegar er hópur nemenda sem hingað eru komnir til þess eins að læra íslensku og kynnast íslenskri menningu. Nám þeirra hér byggir gjarna ofan á fyrra nám í tungumálum og bókmenntum við erlenda háskóla. Nám við Háskóla Íslands er því hluti af lengri alþjóðlegum námsferli og stærri mynd og hverfa sumir þessara nemenda aftur á braut og halda áfram námi sínu og störfum annars staðar. Þeir fara héðan ríkulega nestaðir af þekkingu á íslensku máli, bókmenntum og menningu og taka til við að breiða hana út á sinni heimaslóð. Mannauður, þátttaka í lýðræðissamfélagi og sjálfsögð mannréttindi Undanfarna áratugi hefur ítrekað verið vakin athygli á mikilvægi þess að auka aðgengi að kennslu í íslensku sem öðru máli, meðal annars í málstefnu íslenskra stjórnvalda, bæði 2008 (Íslenska til alls) og aftur 2021 (Íslensk málstefna 2021–2030). Til að tryggja jafnræði og jafnrétti í fjölmenningarsamfélagi á Íslandi þurfa nýir íbúar landsins að fá bæði hvatningu og tækifæri til að læra íslensku. Íslenska er undirstaða velgengni í samfélaginu á Íslandi og kunnátta í íslensku er forsenda þess að innflytjendur geti þroskað og nýtt til fulls hæfileika sína og þekkingu og tekið virkan þátt í lýðræðislegu nútímasamfélagi. Hér eru miklir hagsmunir í húfi: mannauður samfélagsins á Íslandi. Vart er það fyrirætlan íslenskra stjórnvalda að í samfélagi okkar verði til óvirkur jaðarhópur, sviptur lýðræðislegum rétti og sjálfsögðum mannréttindum vegna skorts á færni í íslensku. Hver á að þýða Arnald, Yrsu, Jón Kalman og Auði Övu? Íslenskt samfélag býr yfir ríkulegum menningararfi og kraftmikilli sköpun sem við erum hreykin af. Stoltið kemur ekki síst fram þegar íslenskur menningararfur og sköpunarmáttur nýtur athygli á erlendri grundu. Við erum lánsöm að njóta krafta og hæfileika góðra þýðenda (sjá til að mynda lista hjá Miðstöð íslenskra bókmennta) sem miðla á önnur mál bæði miðaldabókmenntum, Íslendingasögunum og Eddukvæðunum, tuttugustu aldar verkum Halldórs Kiljans Laxness eða nýjustu sögum Arnaldar Indriðasonar, Yrsu Sigurðardóttur, Jóns Kalmans Stefánssonar eða Auðar Övu Ólafsdóttur, svo aðeins fátt eitt sé tínt til. Þeir frábæru þýðendur sem þarna miðla íslenskri bókmenntasköpun með snjöllum þýðingum sínum á fjölda erlendra tungumála hafa nær allir hlotið menntun í Háskóla Íslands, í íslensku sem öðru máli, í þýðingafræði eða íslenskum miðaldafræðum. Erfitt er að trúa því að fyrir stjórnvöldum vaki að grafa undan þessu blómlega og mikilvæga menningarstarfi. Hver á þá að þýða Arnald, Yrsu, Jón Kalman og Auði Övu? Er skynsamlegt að fækka þeim sem læra íslensku sem annað mál? Ekki þarf að fara mörgum orðum um hvílíkt reiðarslag skólagjöld af þeirri gráðu sem lögð eru til í þessu frumvarpi yrði fyrir kennslu í íslensku sem öðru máli eða skyldum greinum er varða sérstaklega íslensk fræði og íslenska menningu. Nemendur þar eru ekki í færum til að greiða sex til sjö milljónir fyrir þriggja ára háskólanám. Þessi áform myndu, ef af yrði, höggva gríðarstórt skarð í þennan hóp. Vart er ætlandi að það sé sérstakt markmið íslenskra stjórnvalda að fækka þeim sem læra íslensku sem annað mál. Fjárfestum í mannauði og menningu Háskóli Íslands er í fararbroddi á heimsvísu í kennslu íslensku sem annars máls og rannsóknum á máltileinkun íslensku. Í stað þess að ætla sér að afla tekna af þeim nemendum sem þar stunda nám ættu íslensk stjórnvöld að fjárfesta í þessu starfi með því að undanskilja frá skólagjöldum ákveðinn fjölda nemenda á ári hverju í íslensku sem öðru máli, þýðingafræði og íslenskum miðaldafræðum. Allt eru þetta greinar sem enginn sinnir betur en Háskóli Íslands. Í húfi er mannauður okkar samfélags. Í húfi er miðlun íslenskrar menningar um veröld víða. Höfundar sitja í málnefnd Háskóla Íslands. Haraldur Bernharðsson, prófessor við Íslensku- og menningardeild á Hugvísindasviði, formaður Guðrún Lárusdóttir, verkefnisstjóri á mannauðssviði sameiginlegrar stjórnsýslu Hafsteinn Einarsson, dósent við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Heimir Freyr Viðarsson, lektor við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði Ingólfur Vilhjálmur Gíslason, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild á Félagsvísindasviði Kolbrún Friðriksdóttir, lektor við Íslensku- og menningardeild á Hugvísindasviði Piergiorgio Consagra, fulltrúi nemenda Þóra Másdóttir, dósent við Læknadeild á Heilbrigðisvísindasviði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íslensk tunga Mest lesið Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Sævar Helgi horfir heima Atli Viðar Thorstensen skrifar Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason skrifar Skoðun Spyrjið ykkur: Fyrir hvern vinnur íslenska krónan? Þórður Snær Júlíusson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar