Með allt undir í rauðri viðvörun Einar Bárðarson skrifar 12. febrúar 2026 14:31 Um áramótin hækkuðu laun á veitingastöðum um rúm 3,5% skv. kjarasamningi Eflingar og SA – kjarasamningi sem annar aðilinn sem raunverulega að málinu kemur hafði ekkert um að segja. Hækkunin er veruleg, sérstaklega í ljósi ytri aðstæðna, en veitingastaðir/SVEIT (Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði) fengu ekki sæti við samningaborðið þegar SA samdi um laun við Eflingu - enda er SVEIT ekki aðili að SA. SA og Efling sömdu sín á milli um kaup og kjör fyrir starfsfólk veitingastaða án þess að fulltrúar og eigendur veitingastaða, greiðendur launanna, sætu við borðið! Þrátt fyrir aðkomuleysi að samningsborðinu greiða flestir veitingastaðir (nálægt 95%) laun skv. kjarasamningi sem veitingastaðirnir sjálfir og fulltrúar þeirra komu hvergi nærri! Ekki þarf að fjölyrða um hversu óeðlilegt það er að samið sé um kaup og kjör þar sem aðeins annar aðilinn, sem að samningunum kemur, sé við borðið þegar samið er. Skv. samningnum sem Samtök atvinnulífsins og Efling gerðu með sér áttu laun að hækka um 3,5% þegar til kastanna kom og útreikningar á rauntölum liggja fyrir kemur í ljós að um 5,2% launahækkun er að ræða enda leggjast álög á vinnu utan hefðbundins 9-17 vinnutíma á rúm 80% launa sem veitingastaðir greiða. Það er ekki svo að eigendur og rekstraraðilar veitingastaða vilji ekki starfsfólki sínu vel og greiða þeim sanngjörn laun og ef þetta væri eina áskorunin þá væri það ágætt. Staðreyndin er hins vegar sú að runa hækkana dynur á veitingastöðum, leiga hækkar því ekki nást tök á verðbólgu, Veitur hækka flutning á rafmagni og vatni um 10% þrátt fyrir gríðarlega arðgreiðslugetu og birgjar veitingageirans halda áfram að hækka birgðir jafnt og þétt, svo ekki sé minnst á óhóflegt heimsmet í álögum hins opinbera á bjór/vín sem hækkar um mörg prósent á hverju ári. Svo sest blessaður gesturinn niður og skilur ekkert í því hvað bjórinn eða maturinn þarf að kosta. En hér er eitt dæmi um einn veitingamann og birgjann hans. Á síðustu u.þ.b. 12 mánuðum hafa borist þrjár tilkynningar um verðhækkanir frá sama kjötbirgja. Hækkanirnar eru eftirfarandi: Febrúar 2025: Verðhækkun um 5% á allar vörur Ágúst 2025: Verðhækkun um 4% á allar vörur Mars 2026: Fyrirhuguð verðhækkun um 4,1% á allar vörur Samanlagt nemur þetta um og yfir 13% hækkun á ári, og allar hækkanir eru kynntar sem almennar, flatar hækkanir á allt vöruúrval, án sundurliðunar eða skýringa á því hvað – ef eitthvað – hafi breyst í gæðum, magni eða þjónustu. Verðhækkanir mega ekki verða að vana. Þær verða að vera undantekningar, studdar gagnsæjum gögnum og hluti af samtali þar sem allir aðilar bera ábyrgð. Það hlýtur að vera sameiginlegt markmið framleiðenda, birgja og veitingageirans að finna aðrar leiðir: betri samninga, lengri tíma nálgun, skýrari sundurliðun kostnaðar og raunverulega samvinnu um lausnir. Veitingageirinn á Íslandi er löngu kominn að þolmörkum. Undanfarin ár hefur greinin tekið á sig síhækkandi aðfangakostnað, endurteknar launahækkanir, hækkandi húsnæðiskostnað og auknar álögur. Nú er nóg komið og það verður að koma til eitthvert alvöru samfélagslega ábyrgt samtal milli yfirvalda, veitingafólks, birgja og stéttarfélaga til að koma stillu á þetta óveður sem nú gengur yfir markaðinn. Svigrúm til að taka á sig kostnaðarhækkanir er í flestum tilvikum horfið. Það er einfaldlega ekkert svigrúm lengur til að taka við frekari almennum verðhækkunum á birgðum – sama hversu vel þær eru orðaðar í tölvupóstum. Langstærstur hluti veitingafólks eru einstaklingar og fjölskyldur sem lagt hafa allt sitt undir í rekstrinum og leggja á sig óendanlega mikla vinnu og álag til þess að tapa ekki aleigunni sinni í því ástandi sem er í dag. Eins og staðan er núna heltast enn fleiri úr lest veitingarekstrar og miklar verðhækkanir munu rata út í verð veitingastaða sem síðar mun enda með hærri verðbólgu. En af tvennu slæmu mun veitingageirinn frekar hækka verð en að senda fleiri staði í gjaldþrotahrinuna sem staðið hefur frá því í fyrravor. Höfundur er framkvæmdastjóri SVEIT, Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Bárðarson Veitingastaðir Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar