Hvað þarf Framsókn? Guðmundur Baldvin Guðmundsson skrifar 13. febrúar 2026 07:46 Nú um helgina komum við Framsóknarfólk saman til flokksþings í Reykjavík þar sem við veljum okkur nýja forystu og nýjan formann. Tvær konur sækjast eftir formannsembættinu, hvor með sinn bakgrunn, en báðar með skýran vilja til að efla Framsókn til framtíðar. Ég kynntist Ingibjörgu Isaksen fyrst í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga árið 2014 en þá kom hún inn sem ferskur vindur á lista okkar Framsóknarfólks á Akureyri. Mér varð strax ljóst að hér var á ferðinni mikil keppnismanneskja með skýra sýn á hlutina og samstarf okkar í bæjarstjórn Akureyrar, þar sem við vorum í meirihluta, var alla tíð afar gott. Hún lét strax til sín taka og gengdi formennsku í ráðum bæði á sviði framkvæmda- og íþróttamála og stýrði þar mikilvægum framfaramálum með miklum sóma. Það kom mér því ekki á óvart þegar Ingibjörg ákvað að stíga fram á stóra sviðið og bjóða sig fram til Alþingis í þingkosningunum 2021. Framsóknaflokkurinn fékk mikinn meðbyr í þeim kosningum um land allt og ekki síst í Norðausturkjördæmi þar sem flokkurinn fékk 3 þingmenn og Ingibjörg varð fyrsti þingmaður kjördæmisins. Flokkurinn tapaði, líkt og aðrir stjórnarflokkar, miklu fylgi í síðustu kosningum og fylgi flokksins er í sögulegu lágmarki. Það er því mikilvægt að stjórn flokksins axli öll ábyrgð og að flokkurinn fái nýja ásýnd og nýja forystu til að takast á við þær áskoranir sem hann stendur frammi fyrir. Við þurfum manneskju með skýra sýn sem höfðar til flokksfólks og vinnur þétt með grasrót flokksins, ekki bara í kring um kosningar, en Ingibjörg hefur einmitt lagt mikla áherslu í störfum sínum að vinna með og hlusta á grasrót flokksins. Það skiptir líka höfuðmáli að formaður flokksins sitji á Alþingi. Flokkur sem ætlar sér að hafa áhrif í íslenskum stjórnmálum getur ekki leyft sér að hafa formann utan þings næstu árin. Framsókn þarf kraft, kjark og skýra stefnu.Framsókn þarf leiðtoga sem sameinar fólk og vinnur af heilindum.Framsókn þarf Ingibjörgu Isaksen. Höfundur er fulltrúi á flokksþingi Framsóknarflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Nú um helgina komum við Framsóknarfólk saman til flokksþings í Reykjavík þar sem við veljum okkur nýja forystu og nýjan formann. Tvær konur sækjast eftir formannsembættinu, hvor með sinn bakgrunn, en báðar með skýran vilja til að efla Framsókn til framtíðar. Ég kynntist Ingibjörgu Isaksen fyrst í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga árið 2014 en þá kom hún inn sem ferskur vindur á lista okkar Framsóknarfólks á Akureyri. Mér varð strax ljóst að hér var á ferðinni mikil keppnismanneskja með skýra sýn á hlutina og samstarf okkar í bæjarstjórn Akureyrar, þar sem við vorum í meirihluta, var alla tíð afar gott. Hún lét strax til sín taka og gengdi formennsku í ráðum bæði á sviði framkvæmda- og íþróttamála og stýrði þar mikilvægum framfaramálum með miklum sóma. Það kom mér því ekki á óvart þegar Ingibjörg ákvað að stíga fram á stóra sviðið og bjóða sig fram til Alþingis í þingkosningunum 2021. Framsóknaflokkurinn fékk mikinn meðbyr í þeim kosningum um land allt og ekki síst í Norðausturkjördæmi þar sem flokkurinn fékk 3 þingmenn og Ingibjörg varð fyrsti þingmaður kjördæmisins. Flokkurinn tapaði, líkt og aðrir stjórnarflokkar, miklu fylgi í síðustu kosningum og fylgi flokksins er í sögulegu lágmarki. Það er því mikilvægt að stjórn flokksins axli öll ábyrgð og að flokkurinn fái nýja ásýnd og nýja forystu til að takast á við þær áskoranir sem hann stendur frammi fyrir. Við þurfum manneskju með skýra sýn sem höfðar til flokksfólks og vinnur þétt með grasrót flokksins, ekki bara í kring um kosningar, en Ingibjörg hefur einmitt lagt mikla áherslu í störfum sínum að vinna með og hlusta á grasrót flokksins. Það skiptir líka höfuðmáli að formaður flokksins sitji á Alþingi. Flokkur sem ætlar sér að hafa áhrif í íslenskum stjórnmálum getur ekki leyft sér að hafa formann utan þings næstu árin. Framsókn þarf kraft, kjark og skýra stefnu.Framsókn þarf leiðtoga sem sameinar fólk og vinnur af heilindum.Framsókn þarf Ingibjörgu Isaksen. Höfundur er fulltrúi á flokksþingi Framsóknarflokksins.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar