Malta fékk ekki varanlegar undanþágur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 13. febrúar 2026 08:45 Formaður utanríkismálanefndar Alþingis, Pawel Bartoszek, ritaði grein á Vísi fyrr í vikunni þar sem hann sagðist sjálfur ekki telja neina þörf á því að Ísland væri „varanlega undanþegið þeim lögum sem þar gilda, að hluta eða heild.“ Hins vegar sagði hann rangt að ekkert væri að ræða í viðræðum við Evrópusambandið. Eins að sambandið tæki aldrei tillit til hagsmuna ríkja þess og að engin fordæmi væru fyrir lausnum sem kæmu til móts við aðstæður á hverjum stað. Með þessu kaus Pawel að rugla saman ólíkum hlutum. Meðvitað eða gegn betri vitund. Málið snýst um varanlegar undaþágur eins og hann kom sjálfur inn á í greininni samanber tilvitnunin í hann hér að framan. Síðan kemur hins vegar ekki lýsing á varanlegum undanþágum heldur sérstakri aðlögun eins og Evrópusambandið kallar það en hefur einnig verið nefnt sérlausn. Talsvert algengt hefur verið hjá Evrópusambandssinnum að rugla þessu tvennu saman. Varanleg undanþága felur sem fyrr segir það í sér að viðkomandi ríki sé með varanlegum hætti undanþegið yfirstjórn Evrópusambandsins í einhverjum tilteknum málaflokki. Sérlausn felur á hinn bóginn í sér afmarkaða stjórnsýslubreytingu inann ramma regluverks sambandsins en breytir engu um yfirstjórn þess. Pawel nefndi þetta hins vegar sitt á hvað varðandi sömu málin. Tók hann sem dæmi í þeim efnum maltnesk sjávarútvegs- og húsnæðismál. Malta fékk hins vegar engar varanlegar undanþágur frá yfirstjórn Evrópusambandsins í þeim efnum heldur sérlausn. Óskað var eftir slíkri undanþágu frá meginreglu sambandsins um jafnan aðgang ríkja þess að fiskimiðum og að halda yfirstjórninni en því var hafnað. Niðurstaðan varð sérlausn sem einkum felur í sér út frá verndarsjónarmiðum að aðeins fiskiskip af takmarkaðri stærð sé heimilt að veiða í 25 mílna lögsögu landsins en yfirstjórnin er hjá sambandinu. Hvað húsnæðismál Möltu varðar fékkst sérlausn vegna takmarkaðs framboðs á húsnæði í landinu. Öllum ríkisborgurum Evrópusambandsins sem búið hafa þar í landi í fimm ár er hins vegar frjálst að kaupa sér húsnæði þar. Yfirstjórn þeirra mála er hins vegar líkt og í sjávarútvegsmálunum og flestum öðrum í höndum þess. Vert er annars að hafa í huga að það sem skiptir máli er vitanlega það sem beinlínis felst í fyrirkomulaginu en ekki hvað það kann að vera kallað. Fjallað er ítarlega um það á vefsíðum Evrópusambandsins og öðrum gögnum þess hvernig umsóknarferli ríkja gangi fyrir sig. Viðræðurnar vegna ferlisins snúist þannig fyrst og síðast um aðlögun að regluverki og stjórnsýslu sambandsins samhliða þeim og að einungis í undantekningartilfellum sé hægt að semja um hvernig og hvenær ríki fari undir vald þess. Þar er vísað til sérstakrar aðlögunar annars vegar og tímabundinnar aðlögunar hins vegar. Ekki hvort Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar