Óðinn Svan hættur hjá Rúv: „Maður getur ekki verið atvinnulaus lengi“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 13. febrúar 2026 16:12 Óðinn Svan hefur kvatt Ríkisútvarpið eftir að hafa starfað þar síðan 2019. Fréttamaðurinn Óðinn Svan Óðinsson hefur sagt skilið við Rúv eftir tæplega sjö ára starf fyrir ríkismiðilinn. Hann segir næsta kafla verða opnaðan fljótlega en ekki sé tímabært að greina frá honum strax.
Óðinn greindi frá starfslokum sínum hjá Rúv í Facebook-færslu um hálf fjögur í dag. „Eftir tæp sjö ár hjá RÚV er nú komið að því að loka þeim kafla. Ég verð RÚV ævinlega þakklátur fyrir tækifærin og þau fjölmörgu verkefni sem mér hefur verið treyst fyrir. Ég hef unnið með frábæru fólki, eignast góða vini og hitt fólk um allt land sem hefur treyst mér fyrir sínum sögum,“ segir hann í færslunni. „Næsti kafli verður opnaður fljótlega og hann verður pottþétt álíka skemmtilegur og þessi.“ Óðinn Svan færði sig yfir á íþróttadeildina í kringum HM 2022. Óðinn er búsettur á Akureyri og var lengst af fréttamaður RÚV á Norðurlandi. Hann færði sig yfir á íþróttadeildina í kringum HM í knattspyrnu árið 2022 og varð einn af umsjónarmönnum Kastljóss í kjölfarið. Fréttastofa heyrði hljóðið í Óðni til að forvitnast um tímamótin. „Ég var ekki rekinn,“ sagði hann þegar blaðamaður spurði hvort ákvörðunin hefði verið hans eigin. „Ég er bara að hætta og að fara að gera eitthvað annað.“ Liggur fyrir hvað það verður? „Nei, það liggur ekki alveg fyrir en kemur í ljós mjög fljótlega,“ segir hann. Þannig það er eitthvað handan við hornið? „Já, maður getur ekki verið atvinnulaus lengi ef maður er með þrjú börn,“ segir hann. „Maður er búinn að vera þarna í sjö ár og búinn að prófa ýmislegt. Er ekki alltaf hollt að breyta til og vera ekki of lengi á sama stað?“
Tímamót Ríkisútvarpið Vistaskipti Mest lesið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Sjá meira