Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Agnar Már Másson skrifar 13. febrúar 2026 23:07 Andrew Mountbatten-Windsor, er ekki lengur Andrés prins eftir að Epstein-skjölin vörpuðu ljósi á tengsl hans við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. EPA Fyrrverandi Bretaprins er sakaður um að hafa nýtt stöðu sína sem opinber erindreki til að útvega vini sínum í bankageiranum trúnaðargögn sem hefðu getað nýst honum í fjárfestingum, einkum í tengslum við eftirmál íslenska bankahrunsins. Skömmu áður hafði hann fundað með forseta Íslands.
Breska dagblaðið Telegraph greinir frá tölvupóstsamskiptum sem varpa ljósi á það hvernig Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrum Andrés Bretaprins, hafi árið 2010 lekið trúnaðarupplýsingum frá breska fjármálaráðuneytinu til vinar síns, bankamannsins Jonathan Rowland, en hann var þá forstjóri Banque Havilland, sem hafði þá nýlega keypt eignir af Kaupþingi eftir bankahrun. Á þessum tíma gegndi Mountbatten-Windsor hlutverki sérstaks erindreka Bretlands á sviði viðskipta en Ísland og Bretland áttu þá í deilum í hinu svokallaða Icesave-máli, sem dregur nafn sitt af hávaxtareikningum sem Landsbankinn bauð upp á í Bretlandi og Hollandi í aðdraganda hrunsins en lokuðust þegar bankinn féll árið 2008 – og sparifjáreigendur komust því ekki í peningana sína. Samkvæmt tölvupóstsamskiptum höfðu Andrew Mountbatten-Windor og Ólafur Ragnar Grímsson, þá forseti Íslands, nýlega átt fund rétt áður en hann óskaði eftir sérstökum gögnum um Icesave-málið.Vísir/Anton og EPA Breska blaðið segir að í febrúar 2010 hafi ritari Mountbatten-Windsors beðið um minnisblað frá breska fjármálaráðuneytinu með uppfærslu um stöðu mála varðandi Icesave-deiluna. Tveimur klukkustundum eftir að Andrew fékk minnisblaðið í hendur hafi hann áframsent það á Jonathan Rowland. Í samskiptum Amöndu Thirsk, ritara þáverandi prinsins, til fjármálaráðuneytisins kom fram að hann hefði rætt við forsætisráðherra Íslands í Davos í Sviss. Jóhanna Sigurðardóttir var á þeim tíma forsætisráðherra en allt bendir til þess að Thirsk hafi ruglast á embættum forsætisráðherra og forseta Íslands. Ólafur Ragnar Grímsson, þá forseti, sótti fundinn í Davos. „Hertoginn af York fundaði með forsætisráðherra Íslands í Davos og óskar eindregið eftir uppfærðu minnisblaði um stöðu mála milli Bretlands og Íslands varðandi innistæðurnar og innistæðutryggingakerfið,“ skrifaði Thirsk, sem fékk svo minnisblað vegna málsins einni viku síðar, sem hún sendi svo á Mountbatten-Windsor. Tveimur tímum síðar framsendi hann minnisblaðið á Rowland og ýjaði að því að upplýsingarnar gætu komið að góðum notum „áður en þú lætur til skarar skríða.“ „Í stuttu máli er Amanda [ritarinn] að fá merki um að við ættum að leyfa lýðræðislegu ferli [að] eiga sér stað áður en lætur til skarar skríða [e. make your move]. Ég hef áhuga á þinni skoðun,“ skrifaði hann og vísaði þá væntanlega til þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave sem fór fram mánuði síðar. Skömmu fyrir þetta hafði sérstakur saksóknari ráðist í húsleit á skrifstofum Kaupþings, sem hafði þá nýlega verið keypt af Banque Havillard. Fjársvikalögregla Bretlands réðst einnig í húsleit í Banque Havilland í Lúxemborg árið 2011 í tengslum við rannsóknina á Kaupþingi, en aldrei var kært í breska málinu. Prinsinn fyrrverandi og Epstein. Vísír/EPA og AP Lögreglan í Thames Valley metur nú hvort tilefni sé til að hefja opinbera rannsókn á ásökunum sem snúa að meintum lekum af hálfu Mountbatten-Windsor en nýlega útgefin skjöl sem tengjast Jeffrey Epstein benda til þess að hann hafi sent trúnaðarupplýsingar til Epsteins. Í tölvupósti til Jeffrey Epstein í maí 2010 lýsti þáverandi prinsinn föður Jonathans Rowland, David, sem „sínum trausta peingamanni“. The Mail greindi frá því í vikunni að Mountbatten-Windsor hafi átt félag ásamt David Rowland í Karíbahafinu. Í fyrri útgáfu fréttar stóð að Andrew hefði fundað með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í Davos eins og sagt var í frétt Telegraph. Jóhanna sótti ekki fundinn heldur Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands. Þetta hefur verið leiðrétt.
Hrunið Mál Jeffrey Epstein Mál Andrésar prins Icesave Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira