Gróska í starfsemi leikskóla Reykjavíkurborgar – áfram leikskólar Steinn Jóhannsson og Ólafur Brynjar Bjarkason skrifa 16. febrúar 2026 11:31 Á degi leikskólans 6. febrúar fór fram ráðstefnan Leikur og samskipti: Hjartað í námi barna fyrir starfsfólk leikskóla Reykjavíkurborgar en um eitt þúsund manns sóttu ráðstefnuna í Háskólabíó og mikill fjöldi fylgdist jafnframt með í streymi. Á ráðstefnunni voru nýjustu rannsóknir og þróunarverkefni á sviði félagsfærni, fjöltyngis, leikja og málþroska í leikskólum Reykjavíkur kynnt sem endurspegla gróskuna í starfinu. Leikskólar eru ein af grunnstoðum mennta- og velferðarkerfisins og þar fer fram mikilvægt nám og uppeldi sem byggir á fagmennsku, sköpun og þörfum barna á fyrstu árum ævinnar. Leikskólastarf er í sífelldri þróun og hafa átt sér stað miklar framfarir, ekki síst vegna aukinnar áherslu á faglegt svigrúm, nýsköpun og markvissa þróun á námi barna. Í leikskólum borgarinnar fer fram nám sem er sniðið að þörfum barna og tekur mið af áhuga þeirra og leik. Mikil gróska ríkir í leikskólum, bæði hvað varðar vinnubrögð og áherslur, enda rík sköpunargleði og frumkvæði í starfinu. Nýlega fengu þrír leikskólar Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir verkefni sem sýna vel þá fagmennsku, metnað og þróunarstarf sem einkennir leikskólana sem vinna eftir og hafa að leiðarljósi Menntastefnu Reykjavíkur. Leikskólinn Vinagarður hlaut verðlaun fyrir verkefni tengd tónlist, dansi og kórstarfi þar sem skapandi tjáning, samvinna og líkamleg hreyfing styrkja tilfinningatengsl, sjálfsmynd og tjáningu barna. Leikskólinn Jörfi var heiðraður fyrir listasmiðju þar sem sköpun er í öndvegi og börnin fá rými til að kanna, prófa sig áfram og velja eigin leiðir í skapandi námi sem eflir sjálfstæði, málþroska og hugmyndaflug. Leikskólinn Tjörn fékk verðlaun fyrir gróðurhúsaverkefni þar sem sjálfbærni, náttúrulæsi og umhverfismeðvitund eru fléttuð inn í daglegt starf með lifandi og reynslumiðuðum hætti. Rannsóknir sýna að leikur, sköpun, samskipti og frjáls leikur eru meðal sterkustu drifkrafta þroska ungra barna – og verkefnin þrjú endurspegla einmitt þessar áherslur. Þau draga fram bæði fjölbreytileika og gæði þess starfs sem fer fram í leikskólum borgarinnar á hverjum degi og beina athyglinni að því mikilvæga námi sem á sér stað í gegnum leik. Þessi gróska og faglega vinna samræmist vel stefnu Reykjavíkurborgar um að tryggja öllum börnum jöfn tækifæri til náms og leiks og skapa leikskólum faglegt svigrúm til að þróa starfið áfram. Starfsfólk leikskólanna er hjartað í þessari þróun. Með fagmennsku, hlýju, athygli og metnaði skapar það umhverfi þar sem börn dafna, vaxa og öðlast trú á eigin getu. Verkefnin sem fengu viðurkenningu eru ekki aðeins áhrifarík heldur sýna þau líka hvað er mögulegt þegar starfsfólk fær að nýta styrkleika sína og áhuga í þágu barnanna. Höfundar eru Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, og Ólafur Brynjar Bjarkason, skrifstofustjóri leikskólaskrifstofu á skóla- og frístundasviði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinn Jóhannsson Leikskólar Skóla- og menntamál Reykjavík Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar