Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Dægurflugan 17. febrúar 2026 10:38 Þær Stefanía Svavars, Selma Björns og Regína Ósk hafa sungið á ABBA tónleikum Dægurflugunnar undanfarin ár og nú bætist Salka Sól í hópinn. Þetta verður fyrsta söngpartýið þar sem áhorfendur geta látið ljós sitt skína og verður haldið bæði í Eldborg og í Hofi. Mummi Lú Allir stærstu slagarar ABBA munu hljóma á einstöku ABBA söngpartýi sem fram fer í Hörpu og í Hofi á Akureyri. Selma Björns á von á trylltu stuði og segir ABBA aðdáendur alltaf taka vel undir ef tækifæri gefst til að öskursyngja ABBA lög. „
Það ætti ekki að vanmeta ABBA aðdáendur. Við verðum bara bakraddir fyrir salinn,“ segir Selma. „Við Hansa vorum á sínum tíma fengnar til að hita upp fyrir bíósýningu á Mamma Mia og héldum að við þyrftum að peppa liðið í gang en um leið og fyrsta lagið, Waterloo, byrjaði og við opnuðum munninn, öskursungu þúsund konur á móti. Engin feimni, engin upphitun, við vorum bara skraut á sviðinu. Ég á von á að þetta sama fólk mæti núna og eiginlega vona það,“ segir Selma en þær Regína Ósk og Stefanía Svavars hafa sungið á ABBA tónleikum Dægurflugunnar allt frá árinu 2012. Þetta verður þó fyrsta söngpartýið. ABBA aðdáendur taka vel undir þegar þeirra uppáhalds lag hljómar.Mummi Lú „ABBA-tónleikarnir hafa verið með mismunandi sniði gegnum árin og ýmsir söngvara sem hafa tekið þátt. Núna verður Salka Sól með okkur. Oft er sama fólkið að mæta á tónleika ár eftir ár og nú fá þau tækifæri á að láta ljós sitt skína. Það verður mjög gaman að prófa söngpartý og ég er mjög spennt að heyra 1500 manns taka undir,“ segir Selma. Allir búningarnir eru sérsaumaðir af Elsu klæðskera.Mummi Lú Hvaða ABBA lag er vinsælast? „Það er erfitt að segja, Waterloo, Mamma Mia, Money, Money, Money, Dancing Queen! Ég hlakka sjálf alltaf til að syngja Thank You for the Music, Fernando og Chiquitita. Ég bara verð ekki leið á þessum lögum, þetta er svo vel samin tónlist,“ segir Selma enda ABBA hljómurinn einstakur. „Þetta eru oft flóknar raddsetningar og við gerum mikið út á þær. Þegar við erum ekki á sviðinu þá erum við baksviðs að radda með söngvurunum frammi og strákarnir í bandinu radda líka. En áhorfendur syngja bara með sínu nefi og við verðum með textana við öll lögin uppi á skjá.“ Dansarar frá Dansskóla Birnu BJörns taka þátt í sýningunni. ABBA var ekki síst þekkt fyrir skrautlega búninga og segir Selma hópinn ekkert slá af þar heldur. „Við erum alltaf í sérsaumuðu og Elsa klæðskeri hefur saumað ný dress fyrir hverja tónleika. Ég á nokkur ABBA-dress inni í skáp. Við erum að tala um pallíettur, glimmer og kögur, samfestinga og kjóla. Það verða sex dansarar frá Dansskóla Birnu Björns með okkur á sviðinu og þær verða í líka í búningum.“ Sýningin er glæsileg í alla staði. Það verður því von á einstakri stemmningu. „Ég er alltaf endurnærð eftir þessa tónleika, það fylgir þeim svo mikil gleði og gott í hjartað, sérstaklega að horfa á fólk syngja sín uppáhaldslög. Ég hef oft séð fólk hreinlega gráta úti í sal þegar þeirra uppáhaldslag kemur,“ segir Selma. Tónleikarnir í Eldborg í Hörpu fara fram 28. febrúar og er miðasala í fullum gangi. Tónleikarnir í Hofi fara fram þann 18. apríl og er hægt að festa sér miða hér. Hér fyrir neðan er hægt að byrja að hita sig upp fyrir söngpartýið.
Tónleikar á Íslandi Harpa Menning Tónlist Mest lesið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Fleiri fréttir Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur sem sá besti í Evrópu Opnir fræðslufundir fyrir almenning um lífeyrismál Situr þú eins og rækja? Góð líkamsstaða byrjar á réttum stól Skóspark og Krakkadagar hjá Icewear: Gengið inn í vorið E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Infraklefar og sánur eru heilsutrendið sem allir eru að tala um Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Tryggðu þér sæti í sólinni áður en sumarið fyllist Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Skaftfellsk perla fær alþjóðlega viðurkenningu Þessi smávægilega breyting sem kom jafnvægi á líðan Icewear leggur áherslu á strangari gæðakröfur en reglugerðir kveða á um „Ég vildi að ég hefði vitað af ykkur fyrr” ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Sjá meira