Reykjavíkurleiðin ekki rétta leiðin Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar 17. febrúar 2026 12:48 Reykjavíkurborg kynnti í dag breytingar á leikskólakerfinu, svonefnda Reykjavíkurleið. Tillögurnar voru fyrst lagðar fram í október 2025, fóru í umsagnarferli og hlutu mikla gagnrýni, og hafa nú lítillega verið endurskoðaðar. Áralöng krafa um breytingar Starfsfólk leikskóla um allt land hefur um árabil kallað eftir fjölgun stöðugilda. Mikið álag hefur verið meðal annars vegna ófullnægjandi húsnæðis, aukins undirbúningstíma leikskólastarfsfólks, mönnunarviðmið voru felld úr gildi ásamt breytingum á samfélagsgerðinni með fjölbreyttari hópi barna og foreldra. Sömuleiðis hefur vinnuvika starfsfólks verið stytt með það að markmiði að bæta starfsskilyrði starfsfólks sveitarfélaga. Upphaflega voru sveitarfélögin mörg hver andsnúin styttingu vinnuvikunnar og í stað þess að fylgja kjarasamningum sem þau gerðu sjálf var ýmislegt gert til að vinna gegn styttingunni og auknum undirbúningstíma. Þegar fram leið og mótmæli starfsfólks í leikskólum við auknu álagi urðu enn háværari brugðust mörg sveitarfélög við með því að leita allra annarra leiða en að verða við þeirri einföldu kröfu að fjölga stöðugildum. Þjónustuskerðing og hækkun gjalda Þannig varð til hið svokallaða Kópavogsmódel sem byggir á þeirri grunnhugmynd að draga úr vistunartíma barna með því að búa til fjárhagslegar refsingar fyrir lengri dvalartíma. Fjöldi annarra sveitarfélaga hefur fylgt í kjölfarið og innleitt grundvallarkerfisbreytingu á leikskólamódelinu sem er í miklu ósamræmi við fyrirkomulagið í öðrum velferðarríkjum sem við berum okkur helst saman við. Samtök launafólks og foreldrar bentu á að nauðsynlegt væri að svara kalli starfsfólks en það væru aðrar færar leiðir en þjónustuskerðing sem fæli í sér aukið álag á foreldra og aukinn kostnað. Reykjavíkurborg ruddi brautina á sínum tíma þegar kom að uppbyggingu leikskólakerfisins og því kemur verulega á óvart að þau hyggist nú elta önnur sveitarfélög með svokallaðri Reykjavíkurleið sem er í raun byggð á sömu hugmyndafræði og Kópavogsmódelið. Reykjavíkurleiðin gengur út á gjaldfrjálsan 36 stunda dvalartíma en svo taki gjöldin stigvaxandi hækkunum umfram það. Útkoman er að hálftíminn umfram 8 stundir verður sá dýrasti á höfuðborgarsvæðinu. Samhliða verða teknir upp tekjutengdir afslættir þar sem tekjuviðmiðin eru langt undir meðallaunum fyrir foreldra í sambúð. Þar að auki þarf að greiða 5.000 kr. fyrir hvern skráningardag. Flestir foreldrar standa frammi fyrir því að þurfa annað hvort að greiða mun meira fyrir leikskóladvöl eða draga úr vinnu með tilheyrandi tekjutapi. Hópurinn sem gjaldskrárhækkanir bitna verst á eru foreldrar í ósveigjanlegum störfum eða sem eiga lítið sem ekkert bakland, það ýtir undir stéttskiptingu. Þetta bætist ofan á þunga stöðu margra heimila vegna verðbólgu, vaxta og hækkanna á nauðsynjavörum á borð við húsnæði, mat, rafmagn og hita sem eru meiri en kjarasamningsbundnar hækkanir stórra hópa. Hvernig viljum við skipuleggja velferðarþjónustuna? Það er umhugsunarefni að svo stórar kerfisbreytingar sem hafa orðið víða í leikskólakerfinu hafi í raun orðið án allrar pólitískrar umræðu. Starfsfólki leikskóla og foreldrum hefur verið stillt upp sem tveimur andstæðum hópum þar sem hagsmunir þeirra fari ekki saman. Þannig hefur hinn augljósi kjarni máls ekki verið ræddur, að sveitarfélög bera ábyrgð á hagsmunum beggja hópa og barnanna ásamt stefnumótun velferðarþjónustunnar. Mörg þessara sveitarfélaga sem hafa kollvarpað leikskólakerfinu leggja einnig áherslu á lágt útsvar og hafa bent á að sparnaður felist í minni yfirvinnu starfsfólks. Þannig að kerfisbreytingin er sparnaðaraðgerð. Hvergi í almannaþjónustu eru tekjutengingar í gjaldtöku – er það svo að við viljum sem samfélag byrja að innleiða það hjá barnafjölskyldum? Þeim mun hærri sem tekjur foreldra eru, þeim mun hærri skatt greiða þau hlutfallslega og barnabætur þeirra skerðast með hækkandi tekjum auk þess sem fjöldi foreldra á ekki rétt á þeim. Innleiðing tekjutenginga á leikskólagjöldum hefur því veruleg áhrif á jaðarskatta barnafjölskyldna. Ísland stendur á krossgötum í leikskólamálum. BSRB hefur lengi barist fyrir því að umönnunarbilið verði brúað, og loksins hafa stjórnvöld, sveitarfélögin og aðilar vinnumarkaðarins komist að sameiginlegri niðurstöðu um hvernig eigi að gera það. Tillögurnar ganga m.a. út á að bæta starfsumhverfi og starfsskilyrði leikskólanna, efla fagstéttir í leikskólum og móta heildstæða stefnu um stuðning við barnafjölskyldur. Fyrsta skrefið á þessari vegferð er að ríki og sveitarfélög hefji viðræður um uppbyggingu og fjármögnun leikskólastigsins. Það er ótækt að áður en til þess kemur séu sveitarfélög að hola kerfið að innan með þjónustuskerðingu, innleiðingu tekjutengingar og verulegrar hækkunar gjaldskrár. Leikskólar eru meðal mikilvægustu stofnana í íslensku samfélagi og eitt mikilvægasta jöfnunar- og jafnréttistæki sem við eigum. Um það þarf að standa vörð og bregðast við þeim áskorunum sem blasa við með því að fjölga stöðugildum líkt og skýr krafa var um í ákalli leikskólastjóra borgarinnar og bæta kjör og starfsumhverfi. Leikskólakerfið verður ekki styrkt með niðurskurði. Það verður styrkt með því að fjárfesta í fólkinu sem heldur því uppi og í þjónustunni sem samfélagið treystir á. Höfundur er formaður BSRB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Leikskólar Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar