Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Eiður Þór Árnason skrifar 17. febrúar 2026 18:16 María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, við frumsýningu sjónvarpsþáttaraðarinnar Reykjavík 112. Stjórnendur Símans hafa ákveðið að taka upp nýtt nafn fyrir móðurfélag samstæðunnar samhliða kaupum á ýmsum fyrirtækjum. Samstæðan hagnaðist um tæplega 1,6 milljarða króna árið 2025 og er það aukning úr tæpum 1,4 milljörðum árið áður. „
Það er viðeigandi að næsti kafli í sögunni hefjist á þessum tímapunkti. Þannig er unnið að breyttu skipulagi samstæðunnar og færslu fjarskipta- og miðlareksturs í nýtt dótturfélag. Það er ánægjulegt að tilkynna að hið nýja móðurfélag mun bera heitið Ásar,“ segir María Björk Einarsdóttir forstjóri í tilkynningu til Kauphallar. Nýtt merki félagsins.Síminn Síminn rekur í dag til að mynda bókunarþjónustuna Noona, auglýsingaskiltafyrirtækið Billboard og fjártækni- og lánafyrirtækið Síminn Pay. Einnig hefur Síminn fest kaup á Greiðslumiðlun Íslands, Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands en viðskiptin eru öll háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. „Markmiðið er að ná umtalsverðri samlegð, hámarka árangur hvers félags og greiða leið frekari vaxtar. Þessar breytingar eru fyrirhugaðar á tímamótaári, en Síminn fagnar 120 ára afmæli í haust,“ bætir María við. Samið við Sýn um dreifingu á Enska boltanum María segir að nýverið hafi verið samið við Sýn um heildsölu og dreifingu sjónvarpsefnis en fyrirtækin hafa deilt um rétt Símans til að dreifa útsendingum frá Ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og öðru efni sem Sýn er rétthafi að. Síminn segir að með samkomulaginu sé búið að útrýma óvissu í málinu. Heildartekjur Símans hf. árið 2025 námu 28,77 milljörðum króna og jukust tekjur um 3,4 prósent frá fyrra ári. Munar þar mestu um aukningu í auglýsingatekjum og tekjum tengdum fjártækni, að því er fram kemur í ársreikningi. Afkoma félagsins á fjórða ársfjórðungi var innan útgefins spábils og EBITDA var í efri mörkum, að sögn forstjóra. Vilja greiða 500 milljónir í arð Eiginfjárhlutfall Símans var 38,6 prósent í árslok 2025 og eigið fé 17,1 milljarðar króna. Heildarniðurstaða ársins, án afskrifta vegna dóms í máli Samkeppniseftirlitsins gegn Símanum, var 3,28 milljarðar króna og var innan síðustu afkomuspár, að sögn stjórnenda. Hæstiréttur sneri í fyrra við dómi Landsréttar og sektaði Símann um 400 milljónir króna vegna brota á samkeppnislögum í tengslum við sölu á útsendingum frá Enska boltanum. „Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður að fjárhæð 500 m.kr. á árinu 2026. Óskað verður eftir áframhaldandi heimild til endurkaupa eigin bréfa fyrir allt að 10% af hlutafé,“ segir í ársreikningi Símans. Í mars 2025 var samþykkt að heimila stjórn að kaupa hlutafé félagsins fyrir allt að 247,5 milljónir króna að nafnverði. Tíu stærstu eigendur samstæðunnar eru fjárfestingafélagið Stoðir hf. og íslenskir lífeyrissjóðir sem fara samanlagt með um 66 prósenta eignarhlut. Vísir er í eigu Sýnar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Síminn Kauphöllin Tengdar fréttir Síminn klárar kaup á OK og Öryggismiðstöðinni fyrir nærri fjórtán milljarða Með kaupum Símans á öllu hlutafé í Opnum Kerfum og Öryggismiðstöð Íslands, sem eru að stórum hluta bæði í eigu framtakssjóðs í rekstri VEX, þá er áætlað að árlegur rekstrarhagnaður Símans muni aukast um 2,3 milljarða þegar samlegðaráhrifin vegna viðskiptanna eru að fullu komin fram. Seljendur félaganna munu meðal annars fá greitt með sem nemur fimmtán prósenta hlut í Símanum en hlutabréfaverð félagsins hefur hækkað lítillega eftir tilkynninguna. 19. desember 2025 11:03 Síminn að ganga frá kaupum á öllu hlutafé Opinna Kerfa Stjórnendur Símans halda áfram að leita tækifæra til frekari vaxtar samstæðunnar og eru núna langt komnir með að ganga frá kaupum á upplýsingatæknifyrirtækinu Opnum Kerfum sem er að meirihluta í eigu framtakssjóðs hjá VEX. 15. desember 2025 11:36 Mest lesið Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Viðskipti innlent Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Viðskipti innlent Fara fram á lögbann á Isavia Viðskipti innlent „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Viðskipti innlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Viðskipti innlent Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Sjá meira
Síminn klárar kaup á OK og Öryggismiðstöðinni fyrir nærri fjórtán milljarða Með kaupum Símans á öllu hlutafé í Opnum Kerfum og Öryggismiðstöð Íslands, sem eru að stórum hluta bæði í eigu framtakssjóðs í rekstri VEX, þá er áætlað að árlegur rekstrarhagnaður Símans muni aukast um 2,3 milljarða þegar samlegðaráhrifin vegna viðskiptanna eru að fullu komin fram. Seljendur félaganna munu meðal annars fá greitt með sem nemur fimmtán prósenta hlut í Símanum en hlutabréfaverð félagsins hefur hækkað lítillega eftir tilkynninguna. 19. desember 2025 11:03
Síminn að ganga frá kaupum á öllu hlutafé Opinna Kerfa Stjórnendur Símans halda áfram að leita tækifæra til frekari vaxtar samstæðunnar og eru núna langt komnir með að ganga frá kaupum á upplýsingatæknifyrirtækinu Opnum Kerfum sem er að meirihluta í eigu framtakssjóðs hjá VEX. 15. desember 2025 11:36