Bjór og bolti - uppsögn á íslenska forvarnarmódelinu Ellen Calmon og Sabine Leskopf skrifa 18. febrúar 2026 06:32 Í gær fór fram atkvæðagreiðsla í borgarstjórn um að staðfesta ákvörðun borgarráðs sem veitti íþróttafélögum víðtækt leyfi til áfengissölu á íþróttaviðburðum. Umrædd ákvörðun markar tímamót í stefnu borgarinnar gagnvart tengslum áfengis og íþrótta. Rannsóknir sýna að þegar börn og ungmenni eru útsett fyrir áfengisneyslu og -markaðssetningu í samhengi við íþróttir hefur það áhrif á aukna drykkju síðar meir. Beinar tekjur af sölu áfengis geta verið umtalsverðar fyrir íþróttafélagið en á móti fellur verulegur kostnaður á samfélagið svo sem á þolendur ofbeldis og vegna löggæslu, heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu. Áfengisneysla og áfengistengd vandamál á íþróttaviðburðum hafa valdið auknum áhyggjum í Svíþjóð og fleiri löndum. Um helmingur allra áhorfenda á leikjum í efstu deild sænsku knattspyrnunnar neytir áfengis í tengslum við leikinn. Um það bil einn af hverjum tíu mælist með hátt áfengisvímustig líkt og kemur fram í þessari rannsókn Alcohol intoxication at Swedish football matches: A study using biological sampling to assess blood alcohol concentration levels among spectators. Í kynningu frá Landlæknisembættinu fyrir mannréttindaráði Reykjavíkurborgar á dögunum kom fram að áfengi í íþróttamannvirkjum eða sem fjáröflunarleið getur haft neikvæð áhrif á: Ofbeldi í nánum samböndum Ofbeldi meðal ungs fólks Líðan ungs fólks Áfengisdrykkju ungs fólks Forvarnarhlutverk íþróttastarfs Lýðheilsu borgarbúa Slysatíðni Umhverfið Ekki er ólíklegt að í framhaldinu sjái áfengisiðnaðurinn sér hag í því að koma að fjármögnun íþróttaviðburða en samkvæmt skýrslu OECD Health Policy Studies Preventing Harmful Alcoholsegir að áfengis sponsun í íþróttum tengist því að þeir sem áður höfðu ekki drukkið hefji áfengisneyslu og að þeir sem þegar neyta áfengis drekki meira. Breytingin sem samþykkt var í gær er í hrópandi ósamræmi við mat fjölmargra sérfræðinga og hagsmunaaðila sem skiluðu inn umsögnum um tillöguna en höfðu ekki fjárhagslegra hagsmuna að gæta. Við viljum vekja sérstaklega athygli á umsögnum Reykjavíkurráðs ungmenna þar sem mælt er eindregið gegn sölu áfengis á íþróttaviðburðum. Þá barst einnig ályktun haustfundar Félags íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa á Íslandi þar sem lýst er yfir þungum áhyggjum vegna áfengissölu á íþróttaviðburðum á Íslandi. Um leið og skorað er á stjórnvöld, íþróttafélög og fleiri að tryggja að ekki verði selt áfengi á íþróttaviðburðum. Ákvörðunin stangast einnig á við gildandi stefnur borgarinnar og íþróttahreyfingarinnar sjálfrar. Á gátlista heilsueflandi samfélags sem er hluti lýðheilsustefnu Reykjavíkurborgar segir: “Óheimilt er að selja tóbak og áfengi í húsakynnum íþróttafélaga.” og í forvarnarstefnu Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR) stendur skýrt: „ÍBR hvetur aðildarfélög sín til að taka afstöðu gegn neyslu á áfengi, tóbaki, rafretta og fíkniefnum í tengslum við æfingar, mót og keppnir.“ Íslenska forvarnarmódelið hefur sem sagt verið fest í gildandi stefnum ríkis, sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar. Í því ljósi vakti ákvörðunin spurningar um samræmi við yfirlýst markmið. Ekki er hægt að tala um forvarnir og bætta líðan ungs fólks á sama tíma og aðgengi að áfengi er aukið. Íþróttastarf getur vart talist forvarnarstarf ef þar þrífst áfengissala eða ef áfengi er notað til fjáröflunar eða gefið undir einhverjum formerkjum. Um er að ræða ákvörðun borgarstjórnar sem er í fullkomnu ósamræmi við forvarnarnálgun síðustu áratuga og gildandi stefnur bæði borgarinnar og íþróttahreyfingarinnar. Afleiðingarnar fyrir ungt fólk, forvarnir, ofbeldisvarnir og lýðheilsu eru ófyrirsjáanlegar. Ellen Calmon er varaborgarfulltrúi og formaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar og Sabine Leskopf er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ellen Jacqueline Calmon Sabine Leskopf Áfengi Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar