Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Dansinn hjá Vinicius, draumaleikur Doué og fimmfaldur fögnuður Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. febrúar 2026 12:00 Spennan er mikil í umspilseinvígum Meistaradeildarinnar. getty / samsett Mikið fjör og mikið drama einkenndi leiki gærdagsins í Meistaradeildinni. Mörkin úr öllum fjórum leikjunum má finna hér fyrir neðan.
Benfica - Real Madrid 0-1 Real Madrid sótti 0-1 sigur gegn Benfica í leik sem einkenndist af miklum látum innan og utan vallar. Gestirnir frá Madríd voru með mikla yfirburði í fyrri hálfleik en tókst ekki að skora fyrr en á 50. mínútu, þegar Vinicius Jr. skoraði með glæsilegu skoti eftir stoðsendingu Kylian Mbappé. Vinicius hljóp út að hornfána og fagnaði markinu með því að dansa fyrir framan stuðningsmenn Benfica. Monaco - PSG 2-3 PSG lenti í algjörri martaðabyrjun í heimsókn sinni til AS Monaco en tókst að snúa leiknum við og vinna 2-3 sigur. Varamaðurinn Désiré Doué kom inn í stað Ousmane Dembélé í fyrri hálfleik og átti algjöran draumaleik. Doué minnkaði muninn á 29. mínútu og átti síðan skotið sem Achraf Hakimi fylgdi eftir til að jafna leikinn á 41. mínútu. Doué skoraði síðan sjálfur sigurmarkið til að kóróna sína frábæru frammistöðu. Borussia Dortmund - Atalanta 2-0 Borussia Dortmund fagnaði 2-0 sigri gegn Atalanta eftir mark og stoðsendingu frá Serhou Guirassy. Það tók hann aðeins 124 sekúndur að setja opnunarmarkið og Guirassy lagði síðan annað mark Dortmund upp fyrir Maximilian Beier á 42. mínútu en fleiri mörk voru ekki skoruð í mjög rólegum seinni hálfleik. Galatasaray - Juventus 5-2 Galatasaray er komið með annan fótinn áfram í sextán liða úrslit eftir 5-2 sigur gegn Juventus. Juventus lenti undir snemma leiks þegar Gabriel Sara kom boltanum í netið fyrir Galatasaray en gamla konan svaraði snöggt fyrir sig. Teun Koopmeiners jafnaði leikinn aðeins fimmtíu sekúndum síðar og skoraði síðan glæsimark sem kom Juventus 2-1 yfir eftir rúman hálftíma. Þannig stóð staðan í hálfleik en heimamenn á Hrútavöllum sneru leiknum algjörlega við í seinni hálfleik. Noah Lang jafnaði metin á 49. mínútu og Davinson Sanchez tók 3-2 forystu fyrir Galatasaray á 60. mínútu. Noah Lang skoraði síðan sitt annað mark aðeins sjö mínútum síðar og Sacha Boey potaði fimmta markinu inn áður en leiknum lauk.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira