Sungið, saumað og sprellað á öskudaginn Smári Jökull Jónsson skrifar 18. febrúar 2026 23:07 Krakkarnir í 7. bekk Hofsstaðaskóla skipulögðu draugahús í skólanum. Vísir/Lýður Valberg Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í dag og venju samkvæmt fóru börnin á stjá í alls kyns flottum búningum og söfnuðu sælgæti í poka. Þá var dagskrá í skólum landsins víða með öðru sniði og spenningurinn áþreifanlegur.
Öskudagurinn er stór dagur í hugum flestra barna og voru margir klæddu sig upp í búninga og skemmtu verslunareigendum með söng. Fréttamaður hitti fyrir ýmsa frumlega karaktera eða þá þekktar persónur úr kvikmyndasögunni. Hverjir eruð þið? „Men in black,“ svöruðu þeir félagar Aron og Hörður sem sögðu það skemmtilegasta við öskudaginn vera að safna nammi og syngja fyrir fólk og þá væri afar skemmtilegt að sjá í hvernig búningum. Krökkunum gekk vel að safna sælgæti og lagavalið var nokkuð fjölbreytt og sum þeirra jafnvel frumsamin. Þeir Hugi, Kári, Leó, Úlfur og Funi voru afar hressir en virtust eitthvað vera að ruglast á árstímum. Þeir buðu upp á spænskt jólalag. „Þetta er bara geggjað lag,“ sögðu þeir brosandi. Kennarinn þurfti að hugga sex nemendur Skólastarf var víða með óhefðbundnu sniði og í Hofsstaðaskóla í Garðabæ, þangað sem fréttamaður leit við, saumuðu nemendur öskupoka, bökuðu og þá sáu nemendur 7. bekkja um skipulagningu draugahúss fyrir yngri nemendur. „Það var ógeðslega gaman, við vorum allan gærdaginn að gera tilbúið,“ sagði Ásdís María Gunnarsdóttir nemandi í 7. bekk. Þær Elva, Jana, Ásdís, Halla og Katrín klæddu sig upp sem eldri borgarar og sungu fyrir fréttamann.Vísir/Lýður Valberg Hvað þarf maður að gera til að undirbúa draugahús? „Setja upp fullt af dúkum, gera leiðir og setja upp skraut,“ bætti Ásdís við. Voru einhverjir hræddir? „Já, ég heyrði það. Kennarinn fór allavega að hugga einhverja sex krakka þannig að það er allavega fínt,“ sagði Breki Rafn Styrmisson sem einnig er í 7. bekk.
Öskudagur Börn og uppeldi Grunnskólar Kringlan Krakkar Mest lesið Útför Megasar Lífið „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Lífið Sam Smith trúlofað Lífið Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun Lífið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið Kíkti í kaffi til kanslarans Lífið „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Lífið Fleiri fréttir Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Sjá meira