Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 19. febrúar 2026 13:01 Jónas Atli Gunnarsson er hagfræðingur hjá HMS. Vísir/Einar Undirboð á fasteignamarkaði hafa aukist og hlutfall nýrra íbúða sem seljast undir auglýstu verði hefur farið vaxandi. Þá dregur úr verðþrýstingi á leigumarkaði þar sem leiguverð hefur í fyrsta sinn í nokkur ár hækkað minna en verðbólga. Húsnæðismarkaðurinn sýnir merki um áframhaldandi kólnun og fleiri íbúðir seljast nú undir auglýstu söluverði að því er nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. „
Það er að hægjast á taktinum og það er kannski í samræmi við síðustu mánuði að verðþrýstingurinn hefur minnkað á íbúðamarkaði. Svo er áhugavert sem við sjáum í verðþróun á nýjum íbúðum að undirboð er að færast í aukana þar og það er líklegra að nýjar íbúðir séu að seljast undir ásettu verði en áður,“ segir Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur HMS. Umtalsverð ný lántaka í byggingariðnaði Þá sýni staðan í byggingariðnaði einnig merki um stöðnun, eða hægfara kólnun. „Sem betur fer sjáum við ekki mikið hrun á byggingarmarkaði. Frekar myndi þetta vera stöðnun eða hægfara kólnun. Starfsfólki hefur ennþá fjölgað þótt að fjölgunin sé mjög lítil. Það yrði vissulega áhyggjuefni ef að kólnunin væri mikil á byggingarmarkaðnum ef að byggingaraðilar næðu ekki að selja nýjar íbúðir. En okkur sýnist þetta vera frekar merki um aðlögun á byggingarmarkaði að nýjar íbúðir seljist þá á lægra verði þannig að þá minnkar þessi lager af óseldum nýjum íbúðum þannig að ný byggingarverkefni geti haldið áfram og fara af stað,“ segir Jónas. Nokkur merki eru um stöðnun eða hægfara kólnun í byggingariðnaði.Vísir/Vilhelm Athygli vekur einnig að ný lántaka í byggingargeiranum hefur aukist um 70% á milli ára á sama tíma og hún hefur dregist saman í öðrum atvinnugreinum. „Skuldsetning er oft tákn um mikil umsvif eða mikla fjárfestingu. En við sjáum líka að það er sterk fylgni á milli þess þegar skuldsetning eykst hjá byggingarfyrirtækjum og nýjum og óseldum íbúðum fjölgar. Og það er kannski eðlilegt þar sem að flestir byggingaraðilar eru að fjármagna sig með lánum sem þeir geta bara borgað upp þegar þeir selja nýjar íbúðir. En skuldsetningin hefur aukist mjög hratt núna á síðustu mánuðum eftir því sem að óseldum nýjum íbúðum hefur fjölgað.“ Leiguverðshækkanir minni en verðbólga í fyrsta sinn í nokkur ár Þá hefur dregið úr verðþrýstingi á leigumarkaði og sömuleiðis hefur þeim farið fjölgandi á milli ára sem eiga rétt á húsnæðisbótum. „Við sjáum í fyrsta skipti að leiga er að hækka minna heldur en verðbólgan á síðustu tólf mánuðum og það er í fyrsta skipti sem það gerist í nokkur ár eftir að það hefur verið mikill þrýstingur þar. En ennþá er hlutfall leigu af fasteignaverði frekar lágt, þannig það mætti búast við því að leiguverð hækki hraðar heldur en fasteignaverð á næstu árum ef taka á mið af sögulegri þróun,“ segir Jónas. Nánar má skoða nýja mánaðarskýrslu HMS hér.
Byggingariðnaður Húsnæðismál Fasteignamarkaður Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira