Þegar allir og amma þeirra fóru í EM-veisluna Sindri Sverrisson skrifar 22. febrúar 2026 09:03 Leikmenn ærðust af fögnuði eftir að hafa slegið enska landsliðið út í 16-liða úrslitunum í Nice. VÍSIR/VILHELM Það var stanslaus þjóðhátíð Íslendinga vikum saman í Frakklandi sumarið 2016, þegar karlalandsliðið í fótbolta vann eitt allra mesta íþróttaafrek Íslandssögunnar.
Ljósmyndarinn Vilhelm Gunnarsson fylgdi íslenska landsliðinu eftir á Evrópumótinu 2016 og myndaði bæði leikmenn og stuðningsmenn sem vöktu ekki síður heimsathygli. Hér að neðan má sjá nokkrar af hans bestu myndum frá mótinu. Ísland hóf Evrópumótið á jafntefli við Portúgal, með Cristiano Ronaldo innanborðs, gerði einnig jafntefli við Ungverjaland og vann svo ævintýralegan sigur gegn Austurríki, með sigurmarki Arnórs Ingva Traustasonar í blálokin. Þá tók við ógleymanlegur leikur við England í 16-liða úrslitum þar sem Ísland fagnaði sigri, áður en ævintýrinu lauk svo með tapi gegn gestgjöfunum í París. Birkir Bjarnason gerði fyrsta mark íslenska karlalandsliðsins í úrslitum á stórmóti, þegar hann skoraði í 1-1 jafnteflinu við Portúgal. Hann hefur nú kvatt landsliðið sem sá leikjahæsti í sögunni.VÍSIR/VILHELM Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu var ekki talið líklegt til stórafreka á EM í Frakklandi enda hafði aldrei svona fámenn þjóð komist í úrslit á stórmóti í kanttspyrnu karla. Liðið komst þó alla leið í átta liða úrslitin. Hér slaka leikmenn á, á hóteli sínu fyrir fyrsta leikinn sem var 1-1 jafntefli gegn Portúgal.VÍSIR/VILHELM Jón Daði Böðvarsson tekur hjóhestaspyrnu í leik gegn Ungverjalandi sem endaði 1-1.VÍSIR/VILHELM Víkingaklappið ógurlega vakti mikla athygli um allan heim. Erlendir fjölmiðlar fjölluðu margir um klappið og tilurð þess.VÍSIR/VILHELM Jón Daði Böðvarsson fagnar marki sínu í 2-1 sigrinum á Austurríki.VÍSIR/VILHELM Menn fögnuðu ákaft eftir sigurinn ævintýralega gegn Austurríki sem tryggði Ísland inn í 16-liða úrslitin.VÍSIR/VILHELM Hannes Halldórsson markvörður með fánann á lofti eftir 2-1 sigurinn gegn Austurríki, þegar sæti í 16 liða úrslitum var í höfn.VÍSIR/VILHELM Um tíu þúsund íslendingar voru á hverjum hinna fimm leikja Íslands á Evrópumótinu í knattspyrnu í Frakklandi. Bæði íslenska liðið og áhorfendur ekki síður vöktu gríðarlega athygli.VÍSIR/VILHELM Kolbeinn Sigþórsson fagnar marki sínu gegn Englendingum en enskir stuðningsmenn fórna höndum.VÍSIR/VILHELM Aron Einar Gunnarsson reif sig úr að ofan eftir að hafa hent enska landsliðinu út af EM.VÍSIR/VILHELM Leikmenn fögnuðu vel eftir sigurinn gegn Englandi rétt eins og öll íslenska þjóðin.VÍSIR/VILHELM Gleðin var allsráðandi hjá stuðningmönnum hvort sem var í stúkunni eða á torgum borganna sem spilað var í.VÍSIR/VILHELM Ævintýrið tók enda í París, með tapi gegn Frökkum í 8-liða úrslitum. Fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson smellti af fjölskyldumynd eftir tapið gegn Frökkum. Óhætt er að segja að ljósmyndarar margra miðla hafi sýnt því áhuga.VÍSIR/VILHELM Ævintýrið búið. Liðið tók hópfund úti á velli eftir tapið gegn gestgjöfum Frakka í París í átta liða úrslitum.VÍSIR/VILHELM
Einu sinni var... Myndasögur Vilhelms Ljósmyndun EM 2016 í Frakklandi Tengdar fréttir Dimmt um hábjartan dag Í maí 2011 gaus í einu virkasta eldfjallakerfi landsins sem liggur undir Vatnajökli. Gosið hófst að kvöldi 21. maí og reyndist það öflugasta í Grímsvötnum í um hundrað ár. Gosmökkurinn reis hratt upp í um 20 kílómetra hæð, sást víða að og breiddist út yfir stóran hluta landsins á skömmum tíma. 15. febrúar 2026 09:01 Tímabilið sem flestir vilja gleyma Þegar Covid-faraldurinn gekk yfir Ísland vorið 2020 breyttist samfélagið nánast á einni nóttu. Dagarnir urðu óvenju hljóðir, göturnar tómar og orð eins og „smitrakning“, „sóttarvarnir“ og „tveggja metra regla“ færðust skyndilega inn í daglegt tal. Það var eins og öll þjóðin hefði verið sett í sameiginlegt tilraunaverkefni sem enginn hafði skráð sig í. 8. febrúar 2026 09:01 Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Í desember 2014 varð mikið áfall innan hestamannahreyfingarinnar þegar tólf hestar fundust drukknaðir í Bessastaðatjörn á Álftanesi. Hrossin höfðu verið í haustbeit á Bessastaðanesinu á vegum Hestamannafélagsins Sóta og Íshesta, og þegar smalað var eftir óveður kom í ljós að óvenju mörg dýr vantaði. Í kjölfarið var farið að leita og þá kom í ljós hið versta: hrossin höfðu farið út á ísinn einhvern síðustu daga, ísinn gefið eftir og þau farið undir. 25. janúar 2026 10:00 Stærsta stund strákanna okkar Strákarnir okkar standa í ströngu á EM karla í handbolta þessa dagana. Stærsta stund liðsins hingað til er án vafa þegar liðið vann Ólympíusilfrið í Peking 2008, enda ein minnisverðustu tíðindi í sögu íslenska lýðveldisins, svo notuð séu orð Ólafs Ragnars Grímssonar, þáverandi forseta. 18. janúar 2026 09:02 Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Manchester City - Brighton | Stórleikur í Manchester-borg Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Sjá meira
Dimmt um hábjartan dag Í maí 2011 gaus í einu virkasta eldfjallakerfi landsins sem liggur undir Vatnajökli. Gosið hófst að kvöldi 21. maí og reyndist það öflugasta í Grímsvötnum í um hundrað ár. Gosmökkurinn reis hratt upp í um 20 kílómetra hæð, sást víða að og breiddist út yfir stóran hluta landsins á skömmum tíma. 15. febrúar 2026 09:01
Tímabilið sem flestir vilja gleyma Þegar Covid-faraldurinn gekk yfir Ísland vorið 2020 breyttist samfélagið nánast á einni nóttu. Dagarnir urðu óvenju hljóðir, göturnar tómar og orð eins og „smitrakning“, „sóttarvarnir“ og „tveggja metra regla“ færðust skyndilega inn í daglegt tal. Það var eins og öll þjóðin hefði verið sett í sameiginlegt tilraunaverkefni sem enginn hafði skráð sig í. 8. febrúar 2026 09:01
Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Í desember 2014 varð mikið áfall innan hestamannahreyfingarinnar þegar tólf hestar fundust drukknaðir í Bessastaðatjörn á Álftanesi. Hrossin höfðu verið í haustbeit á Bessastaðanesinu á vegum Hestamannafélagsins Sóta og Íshesta, og þegar smalað var eftir óveður kom í ljós að óvenju mörg dýr vantaði. Í kjölfarið var farið að leita og þá kom í ljós hið versta: hrossin höfðu farið út á ísinn einhvern síðustu daga, ísinn gefið eftir og þau farið undir. 25. janúar 2026 10:00
Stærsta stund strákanna okkar Strákarnir okkar standa í ströngu á EM karla í handbolta þessa dagana. Stærsta stund liðsins hingað til er án vafa þegar liðið vann Ólympíusilfrið í Peking 2008, enda ein minnisverðustu tíðindi í sögu íslenska lýðveldisins, svo notuð séu orð Ólafs Ragnars Grímssonar, þáverandi forseta. 18. janúar 2026 09:02