Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Lovísa Arnardóttir skrifar 24. febrúar 2026 17:31 Allir ungbarnastólar eiga að vera með isofix-festingu sem kemur í veg fyrir að þeir séu vitlaust festir. Vísir/Getty Samgöngustofa minnir á mikilvægi þess að huga vel að börnum í bíl og að þau séu í stól við hæfi miðað við aldur. Ökumenn geta fengið allt að 30 þúsund króna sekt fyrir að nota ekki réttan öryggisbúnað fyrir barn í bíl.
Sama sekt er ef barn yfir 135 cm en undir 15 ára aldri notar ekki öryggisbelti. Það getur verið átta til tíu ára gamalt barn miðað við meðalhæð barna. Varað er við því á vef Samgöngustofu að kaupa notaðan barnabílstól af ókunnugum. „Notaðir barnabílstólar geta verið varasamir þar sem erfitt getur verið að sannreyna að stóllinn hafi ekki orðið fyrir hnjaski og sprungur myndast undir klæðningu. Því er ekki mælt með að kaupa notaðan stól af ókunnugum,“ segir á vefnum. Á vef Samgöngustofu er farið nokkuð ítarlega yfir allar helstu leiðbeiningar um börn í bílum. Þar segir að öll börn undir 135 sentímetrum skuli nota barnabílstól þegar þau ferðast í bíl. Ekkert sé því þó til fyrirstöðu að börn noti bílstól lengur að því gefnu að stóllinn sé framleiddur fyrir hæð og þyngd barnsins. Börn undir 150 sentímetrum ekki í framsæti Þá segir í leiðbeiningum að börn undir 150 sentímetrum megi ekki sitja í framsæti framan við virkan öryggispúða, það eru börn um 11 til 12 ára miðað við meðalhæð barna. Tekið er fram að ef loftpúðinn hefur verið aftengdur eða gerður óvirkur með öðrum hætti sé börnum óhætt að sitja í framsæti. Þá minnir Samgöngustofa á að bakvísandi barnabílstólar séu börnum mun öruggari en framvísandi stólar. Í flestum umferðarslysum komi högg framan á bifreið sem þýðir að í bakvísandi stólum leggst höfuð barnsins aftur í stólinn. Í framvísandi stólum kastast hins vegar höfuð og líkami barnsins fram. „Ekkert heldur við barnið nema beltin sem grípa líkamann ansi vel en höfuð og háls barnsins eru tiltölulega óvarin í framvísandi stól borið saman við bakvísandi. Mælt er með því að börn séu í bakvísandi stólum eins lengi og hægt er og að minnsta kosti til þriggja ára aldurs,“ segir á vef Samgöngustofu. Öruggasta leiðin til að festa stóla er með isofix-festingu beint í grind bílsins. Flestir nýir bílar eru með isofix-festingum og er mælt með því að nota stól með slíkum festingum. Stóllinn gagnlaus ef hann er vitlaust festur Þar er einnig farið vel yfir það að mikilvægt sé að festa bílstóla vel og að ef hann er ekki festur rétt sé búnaðurinn gagnlaus. Þá þurfi að gæta þess að belti séu ekki snúin og að þau falli passlega þétt að barninu. Þrengja gæti þurft beltið eftir því hversu mikið barnið er klætt hverju sinni. „Athugið sérstaklega að þrengja beltið vel ef barnið er í dúnúlpu eða öðrum fatnaði sem notar loft sem einangrun. Við mikið högg gefur loftið inni í flíkinni eftir og er þá hætta á að barnið sé ekki nógu vel skorðað í stólinn.“ Þá þarf að taka tillit til þess að barnabílstólar í notkun á Íslandi þurfa að uppfylla Evrópustaðal, annaðhvort skv. reglugerð R44/04 eða reglugerð R129 (i-size). R129 er nýrri og öruggari staðall og er sá eini sem má selja á Íslandi. R44/04 er eldri staðallinn og einhverjir stólar sem þegar eru í umferð eru skv. þeim staðli og má nota þá stóla þar til endingartíma þeirra lýkur. Helstu nýjungar sem koma inn með nýja staðlinum eru að gerðar eru betri mælingar og greiningar á höggi við árekstur. Stólar eru nú prófaðir með Q-brúðu með 32 nemum sem nema hreyfingar fram, aftur og til hliðar í stað P-brúðu sem áður var með fjórum nemum sem einungis námu hreyfingar fram og aftur. Stólar eru nú einnig prófaðir gagnvart hliðarárekstri sem ekki var skylda skv. R44/04. Þá eru allir ungbarnastólar nú með ISOFIX-búnaði sem festir stólinn örugglega í bílinn og dregur því úr líkum á rangri festingu stóls í bíl. Samkvæmt öryggisstaðlinum þurfa börn að snúa baki í akstursstefnu að lágmarki fram til 15 mánaða aldurs og þar til þau ná 76 sentímetra hæð. Mælt er þó með að börn snúi gegn akstursstefnu mun lengur. Endast í fimm til tíu ár Endingartímar barnabílstóla eru ákvarðaðir af framleiðanda. Í flestum tilfellum endast ungbarnastólar í fimm ár og stólar fyrir eldri börn í tíu ár. Notkunarleiðbeiningar stóla gefa upp fyrir hvaða hæð og þyngd stóllinn er ætlaður. Börn geta orðið of hávaxin fyrir stól og ef höfuð barns nær upp fyrir stólbak er það vaxið upp úr stólnum þrátt fyrir að vera ekki orðið of þungt fyrir stólinn. Í þeim tilfellum er mælt með að skoða stóla sem eru framleiddir fyrir börn upp að 150 cm, óháð þyngd.
Samgöngur Börn og uppeldi Bílaleigur Bílar Neytendur Mest lesið Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Viðskipti innlent „Ægilega hamingjusamur“ með milljarðana frá Kerecis Viðskipti innlent Sögðu upp blaðamönnum Grapevine og reksturinn í járnum Viðskipti innlent Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? Viðskipti innlent Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Neytendur Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Viðskipti innlent Velta heilsulinda jókst töluvert Viðskipti innlent Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Seldu hugvitið og ríkissjóður stórgræðir Viðskipti innlent Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Samstarf Fleiri fréttir Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Íslenska ánægjuvogin: Viðskiptavinir Indó og miðaldra konur ánægðust Vara við súkkulaðirúsínum Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman „Algjört siðleysi“ Boðar aðgerðir til að koma reglu á „gjaldskyldufrumskóg“ Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Segir leigusala hækka leigu í takt við skerðingu Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur eigi meira inni Costco lækkaði í morgun og bætti svo í Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Sjá meira