„Fer í taugarnar á mér að fagnaðarlæti Vinicius séu notuð gegn honum“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. febrúar 2026 18:46 Thibaut Courtois sést hér með Vinicius Junior eftir leik hjá Real Madrid. Getty/Angel Martinez Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid, segir að fagnaðarlæti Vinicius Jr. gegn Benfica í Meistaradeildinni í Portúgal í síðustu viku „réttlæti ekki meint kynþáttaníð“.
Vinicius hélt því fram að hann hefði orðið fyrir kynþáttaníði af hálfu Gianluca Prestianni, leikmanns Benfica, skömmu eftir að hafa skorað stórglæsilegt mark sem tryggði spænska liðinu 1-0 sigur í fyrri leik liðanna í útsláttarkeppninni. Argentínski kantmaðurinn Prestianni neitaði að hafa beitt Vinicius kynþáttaníði en hefur verið úrskurðaður í eins leiks bráðabirgðabann af UEFA og missir af seinni leiknum í Madríd á miðvikudag. Vinicius fékk gult spjald fyrir að fagna fyrir framan stuðningsmenn Benfica eftir markið sitt. Jose Mourinho, stjóri Benfica, sagði eftir leikinn að honum fyndist brasilíski framherjinn hafa sýnt vanvirðingu og ögrað áhorfendum. „Því miður var hann ekki bara ánægður með að skora þetta magnaða mark. Þegar þú skorar svona mark fagnar þú með virðingu,“ bætti Mourinho við. Þegar Courtois var spurður út í ummæli fyrrverandi stjóra síns hjá Chelsea sagði hann: „Mourinho er Mourinho og sem þjálfari verður þú alltaf að verja þitt félag. En það fer í taugarnar á mér að fagnaðarlæti Vinicius séu notuð gegn honum,“ sagði Courtois. „Vini gerði ekkert rangt“ „Vini gerði ekkert rangt. Hann fagnaði á sama hátt og margir andstæðingar hafa fagnað gegn okkur. Þetta gerðist og við getum ekki réttlætt meint kynþáttaníð vegna fagnaðarláta. Ég held að við sem samfélag verðum að vera minna heimsk,“ sagði Courtois. Mourinho, sem er í banni í seinni leiknum á Bernabeu eftir að hafa verið rekinn af velli síðar í leiknum, sagði að Vinicius og Prestianni hefðu sagt sér ólíkar sögur af atvikinu. Courtois neitaði að tjá sig um ummæli Rui Costa, forseta Benfica, sem sagði að Prestianni „væri ekki rasisti“ og verðskuldaði traust félagsins eftir að hafa verið „krossfestur“, en ítrekaði stuðning sinn við eigin liðsfélaga. „Vini hefur aldrei sagt neitt slíkt, svo ég er 100% viss um að hann hafi heyrt þetta,“ sagði Belginn. „Ég trúi honum fullkomlega“ „Ég trúi honum fullkomlega. Þar sem hann þegir um málið munum við aldrei vita það með vissu, en það er ekki mikið meira sem við getum gert.“ Leikurinn var stöðvaður í 10 mínútur eftir að Vinicius gerði dómaranum Francois Letexier viðvart um atvikið, áður en liðsfélagar hans gengu tímabundið af velli. Courtois sagði að Real hefði verið tilbúið að „standa fast á sínu“ en samþykkti að klára leikinn eftir að Vinicius sagðist vilja halda áfram. Einnig bárust fregnir af kynþáttafordómum í stúkunni á Estadio da Luz. „Sem fótboltamenn sjáum við ekki allt“ „Hin atvikin sem áttu sér stað í stúkunni réttlæta að mínu mati að leikurinn sé stöðvaður og þessu fólki vísað út,“ bætti Courtois við. „Sem fótboltamenn sjáum við ekki allt, en það gerist þegar við erum einbeittir að leiknum. Það þarf að vera fólk sem sér um þetta.“ „Það er öryggisvörður frá Benfica sem er tveimur metrum frá og hann verður að bregðast við. Við getum haldið áfram að bæta okkur á þessum sviðum... og hætt að vera svona fávís.“ Settu hann í í bráðabirgðabann UEFA hefur í kjölfarið sett hinn tvítuga Prestianni í bráðabirgðabann á meðan beðið er niðurstöðu úr fullri rannsókn siða- og agaeftirlitsmanns. Knattspyrnusamband Evrópu sagði að frekari refsing gæti verið ákveðin þegar þeirri rannsókn verður lokið. Alvaro Arbeloa, stjóri Real, hvatti UEFA til að nota þetta atvik sem tækifæri til að senda skýr skilaboð. „Við höfum frábært tækifæri til að marka tímamót í baráttunni gegn kynþáttafordómum,“ sagði hann. „UEFA, sem hefur alltaf verið og leitt þessa baráttu gegn kynþáttafordómum, hefur nú tækifæri til að láta þetta ekki bara vera slagorð, ekki bara fallegan borða fyrir leiki, og ég vona að þeir grípi þetta tækifæri.“
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Spænski boltinn Real Madrid CF Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira