Hvernig nýtist Matsferill barninu þínu? Þórdís Jóna Sigurðardóttir skrifar 25. febrúar 2026 08:15 Við viljum öll að börnin okkar fái að njóta sín í skólanum - að þau finni styrkleika sína og fái þann stuðning sem þau þurfa, þegar þau þurfa á honum að halda. Sem foreldrar og uppalendur vitum við að ekkert skiptir meira máli en velferð þeirra og framtíð. En til þess að við getum stutt þau rétt, þurfum við að hafa skýra mynd af því hvar þau standa og hvernig þeim miðar áfram. Nú í mars verða lögð fyrir stöðu- og framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði í grunnskólum landsins. Þessi próf eru hluti af Matsferli, nýju samræmdu námsmati sem við hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu höfum þróað. Okkar leiðarljós er alltaf hagsmunir barnanna, að búa til verkfæri sem nýtist í daglegu skólastarfi og styður við raunverulegar framfarir. Tvö meginmarkmið Matsferill hefur tvö meginmarkmið. Annars vegar að tryggja heildstæða og skýra mynd af stöðu hvers barns í námi. Hins vegar að afla upplýsinga um stöðu skólakerfisins í heild. Fyrra markmiðið snýr að barninu sjálfu. Reglulegar mælingar gera okkur kleift að sjá hvort framfarir eigi sér stað, hvort þörf sé á auknum stuðningi eða meiri áskorunum. Þannig getum við gripið fyrr inn í og stutt við nám á réttum tíma. Seinna markmiðið snýr að ábyrgð okkar sem berum ábyrgð á kerfinu. Þegar við höfum traust gögn um stöðuna í heild getum við greint hvar gengur vel og hvar þarf að styrkja innviði, kennslu eða stuðningsúrræði. Sameiginleg ábyrgð felst í því að nýta þessar upplýsingar markvisst til umbóta. Niðurstöður sem nýtast Niðurstöður prófanna eru birtar sem hlutfall réttra svara og sýna skýrt hvernig nemanda gekk á viðkomandi prófi. Auk þess eru þær settar í samhengi við árangur jafnaldra á landsvísu. Niðurstöðunum fylgja líka skýringar og leiðbeiningar sem auðvelda túlkun og styðja við áframhaldandi nám. Þær eru hugsaðar sem verkfæri í höndum kennara og grunnur að samtali milli skóla og heimilis. Markmiðið er að tryggja að rétt úrræði séu veitt réttum nemendum og að kennsla taki mið af stöðu og framvindu hvers og eins. Eðlilegur þáttur í skólastarfinu Prófin fara fram innan kennslutíma og eru hluti af daglegu skólastarfi. Þau endurspegla raunverulega færni nemenda og krefjast ekki sérstakrar undirbúnings, nemendur mæta einfaldlega og gera sitt besta. Niðurstöður verða sendar foreldrum og forsjáraðilum á Mínar síður á Ísland.is í maí. Þar verður einnig hægt að fylgjast með framvindu barnsins yfir tíma. Nánari upplýsingar, sýnispróf og svör við algengum spurningum má finna á vef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, mms.is. Skref til framtíðar Matsferill er þróaður í nánu samstarfi við skólasamfélagið og byggir á því sameiginlega markmiði okkar að styðja við daglega kennslu og þarfir hvers og eins barns. Við nýtum okkur alþjóðleg viðmið í námsmati til að tryggja að við séum að nota bestu mögulegu tól til að fylgjast með framvindu í námi. Þetta er langtímaverkefni sem við erum að byggja upp saman sem er til þess fallið að hafa raunveruleg og jákvæð áhrif á námsárangur. Með því að fá skýrari sýn á hvernig börnunum okkar miðar áfram, getum við betur mætt þeim þar sem þau eru stödd hverju sinni. Það er dýrmætt verkefni okkar allra, foreldra, kennara og okkar hjá Miðstöðinni, að tryggja að hvert einasta barn fái raunverulegt tækifæri til að blómstra. Matsferill er eitt af okkar mikilvægu skrefum í þá átt. Höfundur er forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórdís Jóna Sigurðardóttir Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar