Atalanta fór áfram í sextán liða úrslit á síðustu spyrnu leiksins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2026 19:51 Leikmenn Atalanta fagna hér dramatískum sigri á Borussia Dortmund í kvöld. Getty/Antonino Lagana Atalanta ætlar að sjá til þess að þetta Evróputímabil verði ekki hrein hörmung hjá ítölskum félögum. Atalanta tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar með 4-1 sigri á þýska félaginu Borussia Dortmund í kvöld.
Það var mikil dramatík í Bergamo undir lokin. Markið sem kom Atalanta áfram skoraði Lazar Samardzic úr vítaspyrnu en þetta var jafnframt síðasta spyrna leiksins. Vítið fékk ítalska liðið eftir að dómari leiksins fór í skjáinn. Ramy Bensebaini var í framhaldinu rekinn af velli með sitt annað gula spjald fyrir að sparka í höfuð leikmanns Atalanta þegar hann reyndi að hreinsa boltann frá marki. Samardžić hélt ró sinni í vítaspyrnunni og þrumaði boltanum í þaknetið við gríðarlegan fögnuð heimamanna. Dómarinn flautaði síðan til leiksloka áður en þýska liðið gat tekið miðjuna enda þarna komið fram á sjöundu mínútu uppbótartíma. Ítalirnir mæta annaðhvort enska liðinu Arsenal eða þýska liðinu Bayern München í sextán liða úrslitum. Borussia Dortmund vann fyrri leikinn 2-0 í Þýskalandi og ítalska liðinu tókst því að vinna upp þessi tvö mörk og vinna einvígið samanlagt 4-3. Ítalska liðið var búið að jafna metin í einvíginu í hálfleik eftir að hafa unnið fyrri hálfleikinn 2-0. Fyrsta markið kom eftir aðeins fimm mínútur þegar Lorenzo Bernasconi sendi lága fyrirgjöf frá vinstri og Gianluca Scamacca var á hárréttum stað til að pota boltanum í netið. Atalanta hélt uppi pressunni á meðan Dortmund-liðið virtist æ meira skelkað og heimamenn jöfnuðu einvígið rétt fyrir hálfleik þegar skot Davide Zappacosta fyrir utan teig fór af varnarmanni og í netið. Borussia Dortmund skaut í stöngina snemma í seinni hálfleik með skoti frá Maximilian Beier og það reyndust dýrkeypt mistök því Atalanta skoraði þriðja markið skömmu síðar þegar Mario Pasalic skallaði fyrirgjöf Marten de Roon í netið á fjærstönginni. Dortmund tókst að minnka muninn í 3-1 og jafna einvígið þökk sé marki Karim Adeyemi, sem hafði færnina og plássið til að losa um vinstri fótinn og skjóta boltanum glæsilega í netið frá vítateigslínunni. Lokamínúturnar voru síðan æsispennandi og Atalanta átti lokaorðið.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira