Norður af heimskautsbaug beint í hjarta Evrópu Aron Guðmundsson skrifar 26. febrúar 2026 08:33 Kasper Hogh, framherji Bodo/Glimt, sem var eitt sinn á mála hjá Val, fagnar marki sínu gegn Manchester City í Meistaradeildinni Vísir/Getty Lið úr bæ fyrir orðan heimskautsbaug í Noregi, með álíka íbúafjölda og Kópavogur er komið áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Ævintýri Bodø/Glimt virðist engan enda ætla að taka.
Bodø/Glimt sló ítalska risann Inter, sem vermir topp ítölsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir, úr leik í tveggja leikja einvígi og tryggði sér sæti í sextán liða úrslitunum. Lýsandi staðreynd að allir íbúar Bodø í Noregi hefðu léttilega komist fyrir á heimavelli Inter, San Siro. Íslendingurinn Alfons Sampsted, sem nú spilar í Hollandi hjá GA Eagles, var á mála Bodø/Glimt árin 2020 til 2023. Hann spilaði þar 134 leiki og varð norskur meistari í tvígang. Margir af liðsfélögum hans þá eru í liði Bodø/Glimt enn þann dag í dag og þjálfari liðsins er enn sá sami, Kjetil Knudsen. „Það sem þeir hafa verið að gera upp á síðkastið. Sérstaklega núna eftir áramót, er ótrúlegt,“ segir Alfons í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Það er gaman að fylgjast með þessu. Það eru fullt af vinnureglum sem þeir eru enn að halda í frá því ég var þarna sem leikmaður. Maður þekkir því stílinn og það sem þeir eru að reyna gera þarna.“ Kjetil Knudsen er að gera frábæra hluti sem þjálfari Bodo/GlimtVísir/Getty Það er ekki að heyra á Alfons að velgengni Bodø/Glimt komi honum á óvart. „Ef þú horfir á vegferðina sem Bodø/Glimt hefur verið á undanfarin ár þá hafa þeir bætt eitthvað við sinn leik á hverju ári. Þegar að ég var þarna vorum við að spila í Sambandsdeildinni og náum síðan inn í Evrópudeildina. Frammistaða okkar varð alltaf aðeins betri með tímanum. Miðað við að þeir hafi haldið því áfram núna þrjú ár til viðbótar kemur þetta mér svo sem ekkert á óvart.“ Alfons í leik með Bodo/Glimt gegn Arsenal í Evrópudeildinni á sínum tímaVísir/Getty Allir saman í þessu Frægðarsól norska félagsins hefur aldrei risið jafn hátt og það á fyrsta tímabili liðsins í Meistaradeildinni. Ekki er langt síðan að Bodø/Glimt varð í fyrsta sinn norskur meistari. Það var árið 2020. Síðan þá hafa þrír meistaratitlar bæst við safnið. Árangur liðsins í Meistaradeildinni undanfarnar vikur enn magnaðri ef horft er í þá staðreynd að nú er í gangi undirbúningstímabil fyrir norsku úrvalsdeildina. Með fjörutíu þúsund manna samfélag á bakvið sig er Bodo/Glimt komið í 16-liða úrslit MeistaradeildarinnarVísir/Getty En hvar liggur grunnurinn að þessu ævintýri á stærsta sviði fótboltans? „Þetta er samblanda af góðri samheldni, frábærri þjálfun og vinnusemi. Fyrst og fremst þekkja allir sín hlutverk í liðinu. Það er mjög skýr verkaskipting. Vinnusemin er líka til staðar. Ofan á þetta allt er Bodø mjög lítill og einangraður bær. Það myndast því smábæjar stemning í leiðinni. Þér líður eins þetta sé lítil fjölskylda sem sé öll saman í þessu. Það myndast mjög skemmtileg stemning. Ég held að það sé einn af styrkleikum liðsins. Þau sem standa að baki liðinu upplifa að það séu allir með þeim í þessu. Stemningin er bara frábær, heimilisleg og góð. Allir tilbúnir að leggja hart að sér fyrir hvorn annan. Ég elskaði að vera þarna á sínum tíma og get rétt ímyndað mér hvernig þetta er fyrir heimastrákana núna.“ Engin ástæða til þess að óttast einhvern Framundan eru leikir við annað hvort Englandsmeistara Manchester City eða Sporting frá Lissabon í sextán liða úrslitunum. Þangað hefur Bodø/Glimt ekki komist á heppninni einni saman. Lið á borð við Manchester City, Atletico Madrid og nú Inter í tvígang hafa legið í valnum hingað til. Aspmyra leikvangurinn, heimavöllur Bodo/GlimtVísir/Getty „Svo lengi sem einn leikurinn er í Bodø þá ætti þetta að vera á jafningjagrundvelli . Ég upplifi þetta ekki öðruvísi. Þetta er alvöru heimavöllur. Þeir eru með alvöru sjálfstraust þar. Síðan hafa bara frammistöður og úrslit sýnt það trekk í trekk að þeir geta tekið hvern sem er á heimavelli. Það er engin ástæða fyrir þá að óttast einhvern. Af hverju ættu þeir að breyta sínum leikstíl fyrir einhvern annan þegar að þeir hafa sýnt fram á að þeir geta sótt úrslit?“ Dregið verður í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu á föstudaginn. Þar verður Bodø/Glimt í pottinum.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira