Hrós er ekki bara fyrir byrjendur Ingrid Kuhlman skrifar 1. mars 2026 08:02 Alþjóðlegi hrósdagurinn, sem haldinn er 1. mars ár hvert, minnir okkur á kraft hróssins. Hann var fyrst haldinn í Hollandi fyrir rúmum tveimur áratugum en hefur síðan breiðst út víða um heim, þar á meðal til Íslands. Hrósum börnum óspart Við erum býsna dugleg að hrósa börnum. Smábarn sem dettur í fyrstu tilraunum sínum til að ganga fær jákvæð viðbrögð: „Duglegur ertu, reyndu aftur.“ Við fögnum hverju skrefi og hrósum fyrir þrótt og þrautseigju. Þegar barn lærir að lesa leiðréttum við varlega og hrósum fyrir framfarirnar með orðum á borð við: „Vel gert, þú ert að ná þessu.“ Við vitum að þessi orð skipta máli. Þau efla sjálfstraust, þrautseigju og trú á eigin getu. Við hrósum börnum vegna þess að þau eru að móta sjálfsmynd sína. Þau eru að læra hver þau eru og hvers þau eru megnug. Og við vitum að viðbrögð okkar verða hluti af þeirri sögu. En hvað gerist þegar við verðum fullorðin? Hversdagsleg viðurkenning verður sjaldgæfari Þegar við eldumst verður hrós sjaldgæfara. Fullorðið fólk fær gjarnan hrós þegar árangur er augljós, markmið nást eða þegar einhver skarar fram úr. Þá segjum við „til hamingju“ eða „vel gert“. En hversdagslega hrósið, það sem snýr að viðleitni, ábyrgð og þrautseigju, heyrist sjaldnar. Fullorðið fólk dettur líka og stendur upp aftur, ekki þó bókstaflega. Það tekst á við ný verkefni og glímir við óöryggi, mistök og áskoranir. Það lærir á ný kerfi, leitar lausna á flóknum samskiptum og leitast við að vera kærleiksríkt foreldri, góður maki og traustur samstarfsmaður. En viðbrögðin eru ekki alltaf þau sömu og þegar barnið var að læra að ganga. Við gerum ráð fyrir hæfni. Við gerum ráð fyrir ábyrgð. Við gerum ráð fyrir að fólk „kunni þetta“. Og það sem við gerum ráð fyrir hættum við stundum að sjá. Sjálfsmynd fullorðinna er líka í mótun Kannski liggur misskilningurinn í því að við lítum á hrós fyrst og fremst sem verkfæri fyrir þá sem eru að læra. Þegar hæfni er orðin sjálfsögð teljum við þörfina fyrir viðurkenningu minni. Þá hættir það að vekja athygli þegar starfsmaður mætir af samviskusemi dag eftir dag eða þegar foreldri heldur vel utan um heimilið og börnin. En rannsóknir í félags- og sálfræði benda til annars. Sjálfsmynd fullorðinna er ekki föst stærð heldur mótast stöðugt í samskiptum við aðra. Í bók sinni Flourish (2011) bendir Martin Seligman á að jákvæð tengsl og viðurkenning séu meðal lykilþátta vellíðanar og þrautseigju. Við skiljum eigið gildi að hluta til í gegnum viðbrögð umhverfisins. Þegar tekið er eftir framlagi okkar eykst bæði starfsánægja og tryggð. Skortur á viðurkenningu er aftur á móti einn helsti streituvaldurinn. Fólk hættir sjaldnast vegna verkefnanna sjálfra heldur vegna þess að það upplifir að framlag þess skipti litlu máli. „Ég er nú bara að gera mitt“ Það skiptir ekki aðeins máli hvort við fáum hrós heldur líka hvernig við tökum því. Margir fullorðnir eiga erfitt með að taka við hrósi. „Þetta var nú ekkert.“ „Ég er bara að vinna vinnuna mína.“ Við afgreiðum hrós með vandræðalegri hógværð og sendum þar með við ómeðvitað þau skilaboð að viðurkenning sé óþörf. En hvers vegna ætti það að vera sjálfsagt að sýna fagmennsku eða halda heimilinu gangandi? Að taka við hrósi með þökkum er ekki hroki heldur heilbrigð viðurkenning á eigin framlagi. Hrós er félagslegt súrefni Viðurkenning og hrós eru ekki munaður heldur nauðsyn. Þau minna okkur á að við skiptum máli og að framlag okkar, stórt sem smátt, hafi áhrif. Alþjóðlegi hrósdagurinn er kjörið tækifæri til að staldra við og beina athyglinni að því sem við höfum tekið sem sjálfsögðum hlut. Fullorðið fólk þarf ekki gullstjörnur en það þarf að finna að það skiptir máli. Það er einmitt það sem hrós gerir. Greinarhöfundur er leiðbeinandi hjá Þekkingarmiðlun og með meistaragráðu í hagnýtri jákvæðri sálfræði. Hún hrinti Alþjóðlega hrósdeginum af stað á Íslandi árið 2013 og er stofnandi Facebook síðunnar Hrós dagsins, Hrós dagsins | Facebook. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Hátt kólesteról er ekki óvinurinn Anna Lind Fells Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun