Þúsundir í slæmri stöðu, stjórnvöld verði að bregðast við Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 26. febrúar 2026 20:49 Hafdís Ragnarsdóttir er móðir drengs með fjölþættan vanda hún hefur greint frá þrautargöngu fjölskyldunnar fyrir því að fá þjónustu. Guðrún Helga Harðardóttir fjölskyldufræðingur og framkvæmdastjóri Einstakra barna kallar til stjórnvalda að bregðast við. Vísir/Sigurjón Framkvæmdastjóri Einstakra barna segir velferðarkerfið hafa brugðist stórum hluta þeirra næstum níu hundruð barna sem glíma við sjaldgæfa sjúkdóma. Aðstandendur rekist oftar en ekki á veggi sem hafi þungbær áhrif. Nauðsynlegt sé að hefja undirbúning að miðstöð sjaldgæfra sjúkdóma. Við sögðum í gær frá baráttu Inga Teitssonar og fjölskyldu, en hann er 15 ára og glímir við sjaldgæfan, ónafngreindan erfðasjúkdóm. Móðir hans lýsti algeru stuðningsleysi í velferðarkerfinu og kvíðir framhaldinu, en hann útskrifast úr grunnskóla í vor. Greining oft forsenda þjónustu Guðrún Helga Harðardóttir fjölskyldufræðingur og framkvæmdastjóri Einstakra barna hefur leyfi til að tjá sig um mál fjölskyldunnar. Hún segir þau hafa leitað til samtakanna fyrir fáeinum árum. „Þau komu upphaflega án þess að vera hér félagsmenn vegna þess að þau voru bara að rekast á veggi. Í raun og veru var engin sem gat leiðbeint þeim almennilega. Þau voru ekki á góðum stað. Það gekk illa að fá þjónustu og áheyrn af því Ingvi hafði ekki fengið neina greiningu þrátt fyrir allar sínar áskoranirnar," segir Guðrún. Margir í svipaðri stöðu Um 900 börn þjást af sjaldgæfum sjúkdómi eða heilkenni hér á landis og aðstandendur þeirra telja þúsundir. Guðrún segir að stór hluti þeirra og fjölskyldna séu í svipaðri stöðu og Ingvi og fjölskylda hans. „Það er víða erfið staða. Ég fæ tvö til fjögur símtöl á dag þar sem fjölskyldur eru í svipuðum sporum og þau. Það er í raun og veru ekkert utanumhald yfir málin innan velferðarkerfisins. Þetta álag veldur hærri skilnaðartíðni meðal foreldra í þessari stöðu. Oft getur aðeins annað foreldrið unnið úti því hitt þarf að annast barnið. Þá þurfa sífellt fleiri á þjónustu Virk að halda því fólk er að flosna upp af vinnumarkaði vegna álags,“ segir hún. Hér að neðan má sjá Ísland í dag þátt, þar sem fjallað er um málefni Inga og fjölskyldu hans. Núverandi stjórnvöld hafi stoppað allt Umboðsmaður barna hefur bent á að meðalbiðtími eftir einhverfugreiningu barna sé þrjú ár. Þá séu 2.500 börn á biðlista eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna. Guðrún kallar eftir því að haldið verði áfram með undirbúning að Miðstöð sjaldgæfra sjúkdóma. Þar væri að halda utan um börnin og fjölskyldur þeirra á einum stað. „Miðstöð sjaldgæfra sjúkdóma er draumur okkar. Það var í gangi mikil vinna undir handleiðslu þáverandi heilbrigðisráðherra þar sem átti að reisa slíka miðstöð. Málið fór í Samráðsgátt stjórnvalda. Við stjórnarskiptin stoppaði þetta allt. Það er staðan,“ segir Guðrún. Hún segir nauðsynlegt að stjórnvöld taki aftur upp þráðinn. „Við höfum barist hart fyrir slíkri miðstöð. Slík þjónusta er alls staðar í Evrópu. Við viljum landsáætlunina sem er búið að rita og ganga frá í málinu. Slík miðstöð fæli í sér betri ramma, umgjörð og þjónustu. Á sama tíma væri hægt að draga úr kostnaði því allt væri á einum stað,“ segir Guðrún að lokum. Dagur barna með með sjaldgæfa sjúkdóma eða heilkenni er á morgun 27. febrúar og er fólk hvatt af því tilefni til að klæða sig í glitrandi fatnað. Ýmsar byggingar verða lýstar upp í tilefni dagsins. Heilbrigðismál Börn og uppeldi Ofbeldi gegn börnum Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira
Við sögðum í gær frá baráttu Inga Teitssonar og fjölskyldu, en hann er 15 ára og glímir við sjaldgæfan, ónafngreindan erfðasjúkdóm. Móðir hans lýsti algeru stuðningsleysi í velferðarkerfinu og kvíðir framhaldinu, en hann útskrifast úr grunnskóla í vor. Greining oft forsenda þjónustu Guðrún Helga Harðardóttir fjölskyldufræðingur og framkvæmdastjóri Einstakra barna hefur leyfi til að tjá sig um mál fjölskyldunnar. Hún segir þau hafa leitað til samtakanna fyrir fáeinum árum. „Þau komu upphaflega án þess að vera hér félagsmenn vegna þess að þau voru bara að rekast á veggi. Í raun og veru var engin sem gat leiðbeint þeim almennilega. Þau voru ekki á góðum stað. Það gekk illa að fá þjónustu og áheyrn af því Ingvi hafði ekki fengið neina greiningu þrátt fyrir allar sínar áskoranirnar," segir Guðrún. Margir í svipaðri stöðu Um 900 börn þjást af sjaldgæfum sjúkdómi eða heilkenni hér á landis og aðstandendur þeirra telja þúsundir. Guðrún segir að stór hluti þeirra og fjölskyldna séu í svipaðri stöðu og Ingvi og fjölskylda hans. „Það er víða erfið staða. Ég fæ tvö til fjögur símtöl á dag þar sem fjölskyldur eru í svipuðum sporum og þau. Það er í raun og veru ekkert utanumhald yfir málin innan velferðarkerfisins. Þetta álag veldur hærri skilnaðartíðni meðal foreldra í þessari stöðu. Oft getur aðeins annað foreldrið unnið úti því hitt þarf að annast barnið. Þá þurfa sífellt fleiri á þjónustu Virk að halda því fólk er að flosna upp af vinnumarkaði vegna álags,“ segir hún. Hér að neðan má sjá Ísland í dag þátt, þar sem fjallað er um málefni Inga og fjölskyldu hans. Núverandi stjórnvöld hafi stoppað allt Umboðsmaður barna hefur bent á að meðalbiðtími eftir einhverfugreiningu barna sé þrjú ár. Þá séu 2.500 börn á biðlista eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna. Guðrún kallar eftir því að haldið verði áfram með undirbúning að Miðstöð sjaldgæfra sjúkdóma. Þar væri að halda utan um börnin og fjölskyldur þeirra á einum stað. „Miðstöð sjaldgæfra sjúkdóma er draumur okkar. Það var í gangi mikil vinna undir handleiðslu þáverandi heilbrigðisráðherra þar sem átti að reisa slíka miðstöð. Málið fór í Samráðsgátt stjórnvalda. Við stjórnarskiptin stoppaði þetta allt. Það er staðan,“ segir Guðrún. Hún segir nauðsynlegt að stjórnvöld taki aftur upp þráðinn. „Við höfum barist hart fyrir slíkri miðstöð. Slík þjónusta er alls staðar í Evrópu. Við viljum landsáætlunina sem er búið að rita og ganga frá í málinu. Slík miðstöð fæli í sér betri ramma, umgjörð og þjónustu. Á sama tíma væri hægt að draga úr kostnaði því allt væri á einum stað,“ segir Guðrún að lokum. Dagur barna með með sjaldgæfa sjúkdóma eða heilkenni er á morgun 27. febrúar og er fólk hvatt af því tilefni til að klæða sig í glitrandi fatnað. Ýmsar byggingar verða lýstar upp í tilefni dagsins.
Dagur barna með með sjaldgæfa sjúkdóma eða heilkenni er á morgun 27. febrúar og er fólk hvatt af því tilefni til að klæða sig í glitrandi fatnað. Ýmsar byggingar verða lýstar upp í tilefni dagsins.
Heilbrigðismál Börn og uppeldi Ofbeldi gegn börnum Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira