Elvar Már: „Þetta eru þvílíkir naglar“ Árni Jóhannsson skrifar 27. febrúar 2026 21:58 Elvar Már og félagar fagna sigrinum. Vísir / Hulda Margrét Elvar Már Friðriksson var stoð, stytta og hetja íslenska landsliðsins í kvöld. Hann var lang stigahæstur með 34 stig og skoraði sigurkörfuna um leið og flautan gall. Ísland vann einn glæsilegasta sigur sinnar sögu með því að leggja Litháen af velli 86-85.
Elvar var spurður að því hvernig væri hægt að útskýra þennan „Ég veit það ekki,“ sagði Elvar og tók smá pásu áður en hann gat safnað hugsunum sínum saman. „Þetta var bara allt öðruvísi leikur en ég hef verið að spila með mínu félagsliði í vetur. Bara allt annað hlutverk. Bara að vera frjáls og að fá að láta vaða bara. Svo að sjá að við kláruðum í lokin. Það var æðislegt.“ Hvað gerðist í lokaleikhlutanum? Litháen er níunda besta lið í heiminum og Ísland var 21 stigi undir í þriðja leikhluta á móti þeim. „Það eru bara menn hérna sem stíga upp. Þórir, Hilmar, Styrmir og Óli Óla. Þetta eru þvílíkir naglar. Þeir koma inn og breyta leiknum fyrir okkur. Þetta eru strákar sem eru ekki búnir að vera í stóru hlutverki í þessu liði undanfarið en koma inn og eru geggjaðir. Svo sá ég bara þegar þetta voru sex stig að þetta var séns. Við þurftum bara að láta vaða og við gerðum það. Við uppskárum sigur.“ En hvað segir þetta þá um okkar lið? Það vantar stóra pósta eins og Hauk Helga og Martin en liðið nær í þennan sigur. „Körfuboltinn er greinilega að vaxa og við eigum meiri dýpt í liðinu en við áttuðum okkur á. Það eru fleiri strákar sem geta stigið upp og það er frábært merki fyrir íslenskan körfubolta. Nú verðum við bara að læra að tengja saman tvo góða leiki. Það klikkaði í síðasta glugga en við verðum að gera eitthvað öðruvísi.“ Og það er hægt? „Það er hægt. Við verðum að ná okkur niður á jörðina, hvíla okkur vel og mæta klárir í næsta leik.“
Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Mest lesið „Þeir eru bara dónalegir og rífast til baka“ Sport Þórdís sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Körfubolti Alfreð fékk heiðursorðu Handbolti Blikar knúðu fram oddaleik Körfubolti Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Körfubolti 44 hringir ekki nóg fyrir sigurvegarann: „Hefði viljað reyna við brautarmetið“ Sport Þegar Martin Eyjólfsson varð Bjargvætturinn Íslenski boltinn Tígrarnir einum sigri frá ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Skoraði tveimur dögum eftir jarðarför móður sinnar Enski boltinn Fleiri fréttir „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Móðir heiðruð og ljótur olnbogi Búið spil hjá Elvari og félögum Martin stoðsendingahæstur í sigri Tryggvi Snær atkvæðamikill í súru tapi Arnar: Ákefðin var til staðar en hún var ekki á réttum hlutum Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf „Mér er drullusama um þessa tölfræði“ Umfjöllun og viðtal: Haukar - Njarðvík 80-92 | Heimavallarréttinum stolið Einum sigurleik frá Bónus deildinni Óskar hættur en verður seint fullþakkað Funduðu með dómurum: „LeBron fær verstu meðferð sem ég hef séð“ Kunni betur á moppuna og fagnaði sigri „Leiðtoginn okkar og hjartað og sálin í liðinu“ „Það er karakter í þessu liði“ Uppgjörið: Grindavík - Valur 109-82 | Grindvíkingar í úrslit eftir sannfærandi sigur Tindastóll - Stjarnan 100-91 | Stólarnir í úrslit annað árið í röð en meistararnir úr leik Röð áfalla en trúin til staðar: „Ekkert pláss fyrir bull“ Oddaleikirnir á sitt hvorri rásinni Fór úr fingurlið og menn gátu ekki horft Þorleifur: Ég verð ekki með liðið á næsta ári Hulda: Náðum góðum stoppum og þá kemur sóknin Sjá meira