Þunginn af áherslu heilbrigðisyfirvalda á líkamsþyngd Berglind Soffía Blöndal og Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir skrifa 1. mars 2026 09:00 Nú á dögunum lagði heilbrigðisráðherra fram þingsályktunartillögu um aðgerðaráætlun um málefni offitu og voru undirritaðar meðal þeirra sem skiluðu inn umsögn. Í umræddri þingsályktunartillögu eru lagðar fram aðgerðir bæði á samfélagsvísu og fyrir heilbrigðisþjónustu, en meðal annars er þar nefnt sem markmið að vinna gegn neikvæðum viðhorfum og fordómum. Fordómar á grundvelli holdafars eru vel staðfest og risastórt kerfislægt vandamál, sem koma ekki síst fram á meðal heilbrigðisstarfsfólks og hefur náð rótfestu í flestum þróuðum löndum. Það er vel staðfest að þeir valda miklum skaða, meðal annars geta slíkir fordómar skert aðgengi að heilbrigðisþjónustu, dregið úr heilsutengdum venjum einstaklinga, stuðlað að verri líkamsímynd og aukið hættu á átröskunum. Að vinna heilshugar að því að sporna við fordómum á grundvelli holdafars er því nauðsynlegur hluti af því að stuðla að betri heilsu þjóðarinnar. Þar með talið er að ráðast í að mæla fordóma á grundvelli holdafars með skipulögðum hætti og þá sérstaklega hjá heilbrigðisstarfsfólki, en þetta er atriði sem vantar inn í tillöguna. Kveður enn við gamlan tón Hér er nauðsynlegt að staldra við og skoða í heild sinni þær aðgerðir sem lagðar eru til, en heilt yfir er áherslan nánast eingöngu á líkamsstærð, en ekki á heilsu og vellíðan. Þar sem meðal annars er lagt til að skima fyrir heilsu viðkvæmra hópa eins og unglinga og barnshafandi kvenna með því að nota líkamsþyngdarstuðul og sigta út einstaklinga til að bjóða þjónustu byggt á þeirri skimun. Auk þess er verið að leggja til að nota líkamsþyngdarstuðul bæði barna og fullorðinna sem mælikvarða á það hvort aðgerðir á samfélagsvísu séu árangursríkar, en ekki meira viðeigandi mælikvarða sem mæla raunverulega þá þætti sem við vitum að eru mikilvægir heilsu. Hér getum við tekið dæmi um aðgerð nr. 1 sem snýr meðal annars að því að lækka álögur á ávexti og grænmeti með það að markmiði að auka neyslu þeirra fæðutegunda. Verðugt markmið, en ávextir og grænmeti eru fæðutegundir sem lengi hefur vantað meira af í mataræði þjóðarinnar og meiri neysla þeirra getur því verið gæfuspor í heilsueflingu allra. Það sem vekur furðu okkar er að mælikvarðinn á árangur þeirrar aðgerðar í tillögunni er líkamsþyngdarstuðull barna, mæling sem nær engan veginn utan um hvorki breytingar á neysluhegðun né heilsufarslegan ávinning ávaxta- og grænmetisneyslu. Hér er því miður ekki um neinskonar breytingu á viðhorfi eða framsetningu að ræða. Þetta er áhersla og nálgun sem við þekkjum öll vel og hefur verið við líði svo áratugum skiptir. Þá er vert að spyrja sig hverju þetta hafi skilað okkur og hvort við séum betur stödd? Svarið er nei. Höfum það svo kýrskýrt að áhersla á líkamsstærð fólks í lýðheilsuaðgerðum hefur ekki skilað nokkurs konar árangri, hvorki á þá mælikvarða sem tillagan leggur til (líkamsstærð) né fyrir heilsu fólks heilt yfir. Og að sama skapi hefur áhersla á líkamsstærð fólks í heilbrigðisþjónustu verið alræmd fyrir það að geta valdið skaða á heilsu einstaklinga, meðal annars vegna mismununar í þjónustu. Það er einmitt áhersla af þessu tagi sem hefur kynt undir fordóma á grundvelli holdafars svo áratugum skiptir, sent fólki þau skilaboð að líkaminn þeirra sé vandamál og að ekki sé mögulegt að efla eigin heilsu án þess að breyta líkama sínum. Fullkomið ósamræmi Við bendum því bæði hér og í áðurnefndri umsögn okkar um tillöguna á það ósamræmi sem finna má í aðgerðunum sem þar er að finna. Það fer einfaldlega ekki saman að ætla að vinna gegn neikvæðum viðhorfum og fordómum en á sama tíma leggja fram aðgerðir sem kynda undir sömu viðhorf og fordóma. Aðgerðir þar sem helsta markmiðið er orðað sem minnkun líkama fólks og enn og aftur er því lýst yfir hvað stórir líkamar séu mikið vandamál. Þunginn af þessari nálgun mun verða mikill og fyrst og fremst leggjast á herðar þeirra sem aðgerðunum er ætlað að hjálpa. Ábyrgð í orðum og verki Heilt yfir mælir vísindaleg þekking í þessum málaflokki einmitt með því að leggja áherslu á heilsu og vellíðan allra, óháð holdafari þeirra. Skilaboð ætluð fjöldanum þurfa að vera orðuð á þann hátt og aðgerðir settar upp á þann máta. Ríkuleg neysla á næringarríkum matvælum, reglubundin hreyfing, nægilegur svefn, jákvæð félagsleg tengsl og hæfileg streita eru þættir sem efla heilsu allra óháð líkamsstærð. Og að sama skapi þættir sem eru mælanlegir með mun marktækari aðferðum heldur en líkamsstærð fólks. Hamfarayfirlýsingar um líkamsstærð hjálpa engum, nema kannski fjölmiðlum við og við til þess að fá smelli. Mun frekar geta slíkar yfirlýsingar ýtt undir fordóma og stuðlað að verri líðan ótalmargra, ásamt því að ýta undir þá tilfinningu að fá ekki að tilheyra. Það er ávinningur í því fyrir okkur öll að heilbrigðisyfirvöld, fjölmiðlar og samfélagið allt sýni ábyrgð í orðum og verki og gæti þess að orðræðan sé af þeim toga að öllum geti liðið eins og þau tilheyri. Við tilheyrum jú öll þessu sama samfélagi og eigum rétt á því að njóta tækifæra til sem bestrar heilsu. Hvatningarorð Við hvetjum heilbrigðisráðherra og hennar samstarfsfólk til endurskoðunar heilt yfir á áherslum í umræddri þingsályktunartillögu með það fyrir augum að markmiðið sé að minnka fordóma á grundvelli holdafars og að heilsueflandi aðgerðir tilheyri okkur öllum. Við hvetjum heilbrigðisráðherra og hennar samstarfsfólk til þess að vinna tilætlaðar aðgerðir eftir bestu vísindalegu þekkingu með mannréttindi, minnkun fordóma og jafnt aðgengi að þjónustu og bættri heilsu að leiðarljósi. Höfundar klínískir næringarfræðingar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilsa Mest lesið Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk Skoðun Skoðun Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson skrifar Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir skrifar Sjá meira
Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar
Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson Skoðun