Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar 11. júní 2026 08:02 Þurfum við að velja á milli verðbólgu og atvinnuleysis? Því er oft haldið fram að ef við myndum ganga í ESB, jafnvel bara að skoða það með því að segja já í ágúst, þá spretti hér fram atvinnuleysi eins og það er hæst í Evrópu. Jafnvel að hér verði einhvers konar evru-atvinnuleysi. Til að skoða hvort rétt sé að sveigjanleg króna sé nauðsynleg til að vernda atvinnustig þegar áföll dynja yfir er kannski réttast að horfa til nágranna okkar og góðvina í Færeyjum. Færeyska krónan sem er í raun evra Færeyjar eru að mörgu leyti sambærilegt samfélag við Ísland. Fámennar eyjar þar sem efnahagurinn byggir að miklu leyti á sjávarútvegi, útflutningur er tiltölulega einhæfur og hagkerfið lítið og opið. Ólíkt Íslandi hafa Færeyjar um langt árabil búið við fast gengi. Færeyska krónan er í raun sú danska, sem hefur verði tengd evrusvæðinu frá 1999. Segja má að færeyska krónan sé í raun evran, bara með myndum af hrútum, þorski, lunda og öðrum fögrum dýrum. Lægra atvinnuleysi og verðbólga en á Íslandi Þegar við berum saman atvinnuleysi og verðbólgu á Íslandi og í Færeyjum frá upphafi aldarinnar birtist mynd sem er ekki Íslandi í vil. Atvinnuleysi hefur að jafnaði verið lægra í Færeyjum en á Íslandi og sveiflurnar minni. Atvinnuleysið dróst saman í Færeyjum í kjölfar þess að Danmörk varð hluti af ERM II, gjaldmiðlasamstarfinu árið 1999 og hefur verið lægra en á Íslandi undanfarin 20 ár. Og miklu lægri húsnæðisvextir Á sama tíma hefur verðbólga í Færeyjum verið lægri og stöðugri en á Íslandi. Þar munar samt ekki eins miklu og þegar við horfum til húsnæðisvaxta og hvað færeyskur almenningur hagnast á því. Í dag eru óverðtryggðir vextir í Færeyjum um 4–5%, sem er í hærri kantinum þar í landi, en þeir hafa sögulega verið á bilinu 2–5%. Á sama tíma eru óverðtryggðir vextir á Íslandi um 8,8–10,4%, eða um það bil helmingi hærri en í Færeyjum. Munurinn á húsnæðisvöxtunum skýrist fyrst og fremst af gjaldmiðlinum. Færeyingar búa við evrópskt vaxtastig á meðan Íslendingar borga sitt krónuálag, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár, með mun hærri vöxtum til að halda aftur af verðbólgu sem er töluvert hærri en í Færeyjum. Það eru ekki töfralausnir í boði Þessi samanburður sannar ekki að fastgengi eða evra sé töfralausn. Það eru margir þættir sem hafa áhrif á efnahagsþróun, t.d. ríkisfjármál, vinnumarkaður og ytri aðstæður. Þetta sýnir hins vegar að það er ekki sjálfgefið að lítið sjávarútvegssamfélag þurfi að fórna lágu atvinnuleysi til að ná stöðugra verðlagi. Færeyjar hafa á þessari öld náð árangri á báðum sviðum samtímis, auk þess að búa við helmingi lægri húsnæðisvexti en Íslendingar. Við horfum til Færeyinga og spyrjum okkur stundum hvernig þeir geti í ósköpunum staðið undir sinni velsæld og grafið öll þessi jarðgöng. Skyldi það hjálpa til að hafa í raun tekið upp evruna í gegnum Danmörku? Væri ekki ráð að skoða hvort það myndi hjálpa okkur líka? Höfundur er framkvæmdastjóri Viðreisnar og áhugakona um ESB, frá Kanaríeyjum til norðurhluta Finnlands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Svanborg Sigmarsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar