Alþjóðadagur offitunnar Gréta Jakobsdóttir, Edda Ýr Guðmundsdóttir, Erla Gerður Sveinsdóttir, Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir, Rut Eiríksdóttir, Sigrún Kristjánsdóttir, Sólrún Ólína Sigurðardóttir og Tryggvi Helgason skrifa 4. mars 2026 08:00 Alþjóðadagur offitunnar er 4. mars ár hvert. Gott er að staldra við í tilefni dagsins og skoða hvar við erum stödd. Upplýsingar um slæma stöðu okkar meðal annarra norðurlandaþjóða vöktu verðskuldaða athygli í lok síðasta árs þar sem fram kom að um 70% fullorðinna einstaklinga mælast í ofþyngd og 28% í offitu samkvæmt líkamsþyngdarstuðli. Ofþyngd meðal barna mælist 30% og 7% þeirra með offitu. Þróunin hefur verið hröð síðustu áratugi á verri veg og löngu tímabært að bregðast við. Sama þróun er uppi á teningnum varðandi aðra langvinna sjúkdóma og hefur Krabbameinsfélagið til dæmis bent á þróunina sem hefur verið í fjölgun krabbameina og ógnvænlegar horfur til næstu áratuga. Þessi þróun er ekki tilviljun og sameiginleg rót liggur í samfélagsgerðinni sem við höfum byggt upp og þar liggur líka lausn vandans. Skref í átt að betri tíð Alþingi hefur nú til meðferðar tillögu Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um drög að aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026-2030. Tillagan er í 21 lið og nær til víðtækra aðgerða sem flokkaðar eru í þrjá megin flokka; forvarnir og skimun; gagnaöflun, rannsóknir og skráningu og loks heildræna heilbrigðisþjónustu fyrir börn og fullorðna. Byggir tillagan á undirbúningsvinnu margra aðila með víðtæka þekkingu á málefninu frá ólíkum sjónarhornum. Þarna er lögð áhersla á að offita verði meðhöndluð líkt og aðrir langvinnir sjúkdómar, með uppvinnslu, formlegri greiningu og aðgengi að langtímameðferð og endurhæfingu þar sem byggt er á gagnreyndum aðferðum. Um mikilvæg tímamót er að ræða og fagnar stjórn Félags fagólks um offitu þessum áfanga og vonar að málefnið mæti skilningi og nái brautargengi á alþingi. Heilmikil umræða skapaðist um þessa tillögu í fjölmiðlum þegar hún kom fram sem er gott enda málefnið brýnt og mikilvægt. Áhugavert var að sjá að mesta athygli fékk sá þáttur sem snýr að skattaálögum á sykur og óhollar matvörur. Í þeirri umræðu mátti því miður sjá fordóma og vanþekkingu á málefninu koma í ljós jafnvel hjá vel menntuðum og valdamiklum einstaklingum í þjóðfélaginu. Þannig er vert að draga fram nokkrar staðreyndir sem gætu hjálpað til við að kveða niður nokkrar lífsseigar mýtur um hitaeiningar, einstaklingsval og viljastyrk svo dæmi séu tekin. Hvernig stýrir líkaminn orkujafnvægi og þyngd? Af mörgu er að taka en beinum hér sjónum að þyngdarstjórnunarkerfi líkamans. Líkami okkar hefur hæfileika til að safna orkuforða og geyma í fitufrumum líkamans og hann hefur sérstakan hæfileika til að verja þennan forða. Stýrikerfi líkamsþyngdar og orkuforða eru ein af þeim mikilvægustu sem líkaminn býr yfir enda búa þessi kerfi í elstu hlutum heilans ásamt þeim kerfum sem stýra öðru því sem þarf til að halda lífi. Kerfið hefur þróað leiðir til að bregðast við hungursneyð í milljónir ára og þann stutta tíma sem mannkynið hefur búið við allsnægtir hefur kerfið ekki þróað breytingar sem aðlagast slíku umhverfi. Mikil þekking er til um þessi kerfi en á einhvern hátt virðist lífsseig sú skoðun að einfaldlega sé hægt að telja hitaeiningar inn og út og breyting á líkamsþyngd sé mismunurinn þarna á milli. Hreinlega eins og þetta öfluga stýrikerfi sé ekki til. Hvernig þetta stýrikerfi virkar og hvað líkami okkar gerir við þær hitaeiningar sem koma inn er háð fjölmörgum þáttum. Má þar nefna, líkamssamsetningu, kyn, aldur, kynþátt, erfðir og tjáningu líkamans á þeim genum sem til staðar eru, aðstæður í móðurkviði og á fyrstu æviárum, sjúkdómum, áföllum og aðstæðum sem mörg okkar þurfa að kljást við gegnum æviskeiðin, þar með talið tilraunir til megrunar sem líkaminn skynjar sem ógn sem bregðast þarf við. Þá er ótalið næringarstaða, efnaskiptaheilsa, breytileg lífeðlisfræði svo sem fjöldi og virkni orkukorna (hvatbera) í hverri frumu, samþætting mismunandi stýrikerfa líkamans, hormóna og fjöldi annarra breyta sem þyngdarstjórnunarkerfið okkar þarf að lesa í og túlka á hverjum tíma. Ekki má gleyma streitu, álagi, svefnröskun, skjátíma, birtubreytingum og kyrrsetu sem allt sendir skilaboð inn í kerfið til túlkunar. Hvernig líkaminn leyfir okkur síðan að nýta þær hitaeiningar sem þegar eru geymdar í orkuforða okkar er einnig mismunandi eftir þeim þáttum sem hér að ofan eru nefndir. Við bætist margþætt starfsemi fituvefs sem er öflugt efnaskiptalíffæri og samspil heila og fituvefs er margbrotið. Nútímasamfélag býður upp á auðvelt aðgengi að gjörunnum næringarsnauðum matvælum, stöðugt áreiti, streitu, svefntruflanir, hreyfingarleysi, raflýsingu og svo ótal margt annað sem getur truflað starfsemi þessa mikilvæga stýrikerfis. Hvert og eitt okkar er mis næmt fyrir þessum þáttum og varnarkerfi okkar gegn þeim er mismunandi. Nei, líkamsþyngd okkar ræðst ekki af einföldum útreikningum á hitaeiningum inn og út. Hvenær er offita sjúkdómur? Þegar líkaminn okkar starfar óeðlilega, fram koma einkenni og afleiðing er heilsubrestur, er um sjúkdóm að ræða. Sjúkdómurinn offita getur verið til staðar við mjög breytilega líkamsþyngd og er ekki sama hugtak og mæling á líkamsþyndarstuðli yfir 30 sem einnig ber heitið offita og getur valdið ruglingi. Sjúkdómurinn offita kemur fram ef stýrikerfi þyngdar og orku í líkamanum raskast eða ef starfsemi í fituvefnum sjálfum raskast eða ef uppsöfnun á fituvef í líkama raskar starfsemi líffæra sem hann tengist. Meingerð sjúkdómsins offitu er margþætt og í raun er sjúkdómsheitið offita regnhlífarhugtak yfir margskonar sjúkdómsástand. Hvað getum við gert? Góðu fréttirnar eru að ef við bregðumst við og beitum vönduðum vinnubrögðum til eflingar lýðheilsu og byggjum upp samfélag sem eflir andlega, líkamlega og félagslega heilsu þá fækkum við öllum langvinnum sjúkdómum og drögum úr alvarleika þeirra sjúkdóma sem upp koma. Við þurfum öll að vanda okkar lífshætti og vernda okkar heilsu. Við viljum búa í samfélagi sem auðveldar okkur að velja heilbrigða leið í okkar daglega lífi hvort sem kemur að mataræði, hreyfingu, svefntíma, álagi, samgöngum eða öðrum þeim þáttum sem áhrif hafa á heilsu okkar. Við viljum búa yfir öflugu heilbrigðiskerfi sem getur boðið vandaða þjónustu á öllum stigum, líka fyrir sjúkdóminn offitu. Til hamingju með dag offitunnar kæru landsmenn. Samtök fólks með offitu, SFO standa að veglegu málþingi í tilefni dagsins í Heilsuklasanum Bíldshöfða kl 18 og hvetjum við ykkur til að mæta. Stjórn Félags fagfólks um offitu, FFO Gréta Jakobsdóttir, næringarfræðingur, formaður Edda Ýr Guðmundsdóttir, næringarfræðingur og sjúkraþjálfari Erla Gerður Sveinsdóttir, heimilislæknir og lýðheilsufræðingur Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir, innkirtlalæknir Rut Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur Sigrún Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir Sólrún Ólína Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur Tryggvi Helgason, barnalæknir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun