Stelpur með fötlun unnu í opnum flokki Valur Páll Eiríksson skrifar 1. mars 2026 19:33 Anna Karen Malmquist Bjarnadóttir (fyrir miðju) og Agnes Lovísa Jóhannsdóttir (til hægri) unnu til verðlauna í opnum flokki. Mynd/Bjarni Malmquist Jónsson Mikill uppgangur hefur verið í borðtennis hérlendis undanfarin ár. Um helgina fór fram sögulega fjölmennt Íslandsmót unglinga á Selfossi. Athygli vakti að tvær ungar borðtenniskonur með fötlun unnu titil í flokki ófatlaðra.
Mótið fór fram í fyrsta sinn á Selfossi en þar hefur borðtennisdeild verið starfrækt í sex ár. Mikil aukning borðtennisdeilda víða um land kom skýrt fram á móti helgarinnar þar sem aldrei hafa fleiri félög tekið þátt. 130 keppendur tóku þátt frá 15 félögum, til að mynda frá Patreksfirði. Leikið var um sautján Íslandsmeistaratitla – átta í einliðaleik, sex í tvíliðaleik og þrjá í tvenndarleik. Átta borðtennisdeildir skiptu þeim nokkuð jafnt á milli sín en sérstaka athygli vakti að tvær deildir voru að vinna sína fyrstu titla á Íslandsmóti unglinga – það eru Umf. Vísir í Suðursveit – sem stofnaði borðtennisdeild fyrir um rúmu ári síðan og ÍFR (Íþróttafélag fatlaðra Reykjavík). Agnes Lovísa Jóhannsdóttir og Anna Karen Malmquist Bjarnadóttir unnu til verðlauna í opnum flokki. Björgvin liðsfélagi þeirra er á palli og til hægri er þjálfarinn Hákon Atli Bjarkason.Mynd/Bjarni Malmquist Jónsson Á þeirra vegum kepptu Anna Karen Malmquist Bjarnadóttir (Vísir) og Agnes Lovísa Jóhannsdóttir (ÍFR), sem sigruðu U15 flokkinn í tvíliðaleik saman (tvíliðaleikur meyja, 14-15 ára). Anna Karen og Agnes Lovísa æfa hjá afreksmanninum Hákoni Atla Bjarkasyni í ÍFR, en hann hefur vakið athygli fyrir fjölgun fatlaðra iðkenda undanfarin ár, svo eftir hefur verið tekið. Þá unnu Agnes og Anna hvor um sig silfurverðlaun í sínum aldursflokki í einliðaleik. „Það er ekki algengt að fötluð börn keppi á Íslandsmótum ófatlaðra hérlendis og hvað þá með svo góðum árangri. Mitt mat er að hér sé um að ræða góða þjálfun, efnilega iðkendur og þá staðreynd að borðtennis er íþrótt sem hentar vel til ástundunar fólki með ólíka hreyfifærni,“ segir Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, formaður Borðtennissambandsins og mótsstjóri helgarinnar, við Vísi. Vænta má þess að þær stöllur keppi áfram mikið á næstunni þar sem Íslandsmót fatlaðra verður haldið í húsi ÍFR í Hátúni næsta laugardag og næstu tvær helgar eftir það ver Íslandsmót fullorðinna fram, bæði á Hvolsvelli og í húsnæði BH í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.
Borðtennis Mest lesið Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Albert til Lazio og kaupákvæði fylgir með Lið Salah þjálfaralaust eftir furðulega daga Íslendingalið Brann hlaut þungan skell Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er svo lúðalegt“ McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Dagskráin í dag: Toppslagur í Bestu deildinni Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Sjá meira