Neyðarástand í málefnum aldraðra – hvar er forgangsröðunin? Baldvin Björgvinsson skrifar 2. mars 2026 08:16 Hver er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Við munum flest enda ævina í einhvers konar búsetuúrræði fyrir eldra fólk – ef við verðum ekki farin fyrr af öðrum orsökum. Er einhver Íslendingur sem vill lenda í þeirri stöðu að heilsan bilar en ekkert hjúkrunarrými er laust? Staðan í dag er einföld og alvarleg: það ríkir neyðarástand í búsetu-, vistunar- og hjúkrunarmálum eldri borgara á Íslandi. Bráðamóttaka Landspítalans er yfirfull af fólki sem á að vera í langtímaumönnun annarsstaðar. Fólk bíður vikum og mánuðum saman eftir hjúkrunarrými. Það er ekki í önnur hús að venda. Þetta er ekki flókið skipulagsmál eða tímabundin sveifla – þetta er kerfislægur skortur. Ástandið er vanræksla og ekkert annað. Húsnæðismarkaðurinn stíflast Skorturinn snýst ekki aðeins um hjúkrunarrými. Það vantar: Húsnæði með þjónustu fyrir eldri borgara Smærri og aðgengilegri íbúðir fyrir fólk sem vill minnka við sig Úrræði sem brúa bilið milli heimilis og hjúkrunarheimilis Afleiðingarnar eru keðjuverkandi. Stórar eignir standa illa nýttar, stundum mannlausar. Hús sem henta heilli fjölskyldu eru nýtt af einni manneskju. Viðhald situr á hakanum því eigendur ráða ekki lengur við það. Þetta hefur bein áhrif á húsnæðisframboð fyrir yngri kynslóðir. Þetta var fyrirsjáanlegt. Félagsfræðingar bentu á þessa þróun fyrir áratugum. Fólk myndi lifa lengur. Hlutfall eldri borgara myndi hækka. Áhrifin á lífeyriskerfi, heilbrigðisþjónustu og húsnæðismarkað yrðu veruleg. Samt var ekki gripið nægilega til aðgerða. Ísland þarf nú að vinna upp áratuga vanrækslu. Þegar lög um almannavarnir eru lesin Ef lesið er í gegnum lög um almannavarnir nr. 82/2008 blasir við skilgreining á neyðarástandi sem á óþægilega vel við stöðuna í málefnum aldraðra. Þar er fjallað um aðstæður sem ógna lífi og heilsu almennings, krefjast samhæfðra aðgerða stjórnvalda og kalla á forgangsröðun fjármuna og mannafla. Er skortur á hjúkrunarrýmum, sem leiðir til þess að veikt og aldrað fólk situr fast á bráðadeildum eða án viðeigandi umönnunar, ekki nákvæmlega slíkt ástand? Við brugðumst rétt við þegar náttúruhamfarir skullu á í Grindavík. Þar var neyðarástand skilgreint, úrræði virkjuð og fjármunir forgangsraðaðir. Sama hugsun þarf að gilda þegar um er að ræða kerfisbundið neyðarástand í umönnun eldra fólks. Forgangsröðun – hvað er raunverulegt neyðarástand? Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins. Borgarlína. Sundabraut. Brú yfir Fossvog. Stækkun flugstöðvar. Jarðgöng. Tvöföldun vega. Allt eru þetta verkefni sem margir telja æskileg. En eru þau neyðarástand? Það er erfitt að halda því fram. Neyðarástandið blasir við í hjúkrunarrýmum, á bráðamóttöku og inni á heimilum eldri borgara sem komast ekki í viðeigandi úrræði. Þetta málefni á að vera efst á forgangslista – ekki neðst. Virðing fyrir þeim sem halda kerfinu gangandi Um leið og rætt er um lausnir þarf að hætta að tala niður þann erlenda mannauð sem sinnir umönnun víða um land. Fólk sem flytur hingað til að starfa í umönnun aldraðra heldur kerfinu gangandi. Þegar við getum ekki lengur hjálpað okkur sjálf, er það þetta fólk sem stendur vaktina. Við eigum að sýna þessu fólki þakklæti. Þetta snýst um okkur öll Málefni aldraðra eru ekki jaðarmál. Þau snerta okkur öll – fyrr eða síðar. Þingmenn og stjórnmálafólk þurfa að tala um það sem raunverulega skiptir máli og forgangsraða í samræmi við það. Þegar heilsan bilar skiptir engu máli hvort jarðgöng hafi verið tvöfölduð eða flugstöð stækkuð. Þá skiptir máli hvort hjúkrunarrými sé til staðar. Það er sú forgangsröðun sem ég vil sjá. Og ég er ekki einn um það. Höfundur er framhaldsskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eldri borgarar Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar