Körfubolti

Ís­land enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu

Sindri Sverrisson skrifar
Saliou Niang skorar gegn Bretum í leiknum á Ítalíu í kvöld.
Saliou Niang skorar gegn Bretum í leiknum á Ítalíu í kvöld. Getty/Massimo Ceretti

Bretar sitja eftir á botni riðils Íslands í undankeppni HM karla í körfubolta, eftir tap gegn Ítölum á útivelli í kvöld, 84-75.

Ítalía var fimm stigum yfir í hálfleik í kvöld, 43-38, og enn var munurinn fimm stig fyrir lokaleikhlutann, 64-59. Ítalir skoruðu hins vegar sjö fyrstu stigin í fjórða leikhluta og hleyptu Bretum aldrei of nærri sér eftir það.

Ísland tapaði gegn Litáen fyrr í kvöld, í þessum fjögurra liða riðli, og eru bæði lið nú með tvo sigra og tvö töp en Litáen ofar á innbyrðis úrslitum.

Ítalía kom sér hins vegar á toppinn með sigrinum í kvöld og hefur unnið þrjá af fjórum leikjum sínum. Eina tapið var á heimavelli gegn Íslandi í haust.

Að sama skapi er eini sigur Breta hingað til sigurinn í Laugardalshöll í haust.

Þrjú efstu liðin í riðlinum komast áfram í næstu umferð undankeppninnar og taka með sér úrslit úr þessum riðli.

Síðustu tvær umferðirnar í riðlinum verða í júlí en þá tekur Ísland á móti Ítalíu og sækir svo Breta heim.

Saliou Niang var stigahæstur Ítalíu í kvöld með 23 stig, tók sjö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Ellis Quinn skoraði 19 fyrir Breta og Carl Wheatle kom næstur með 15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×