Neytendur

Kalla inn leik­föng mögu­lega menguð af asbesti

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Fylliefni leikfangana gæti verið mengað af asbesti.
Fylliefni leikfangana gæti verið mengað af asbesti. HMS

HMS vekur athygli á því að leikföngin Stretch Super Heros, Squard Dinos, Stretchy Slammerz og Stretch Squad XXL frá Stretcherz hafa verið kölluð inn þar sem þau eru mögulega menguð af asbesti.

Leikföngin eru mismunandi að lögun, mjúk viðkomu, teygjanleg og innihalda fylliefni sem er sandur. Varan hefur verið innkölluð þar sem fylliefnið gæti verið mengað af asbesti.

Leikföngin voru til sölu í ýmsum verslunum, þar á meðal Bónus, Nettó, Byko og Húsasmiðjunni. Innköllunin nær til eftirfarandi vörunúmera: 1350085, 1350093, 1351053, 1376624 og 1376630. Talið er að minnsta kosti átta hundruð vörur séu í umferð á Íslandi.

Eigendur varanna eru hvattir til að taka leikfangið strax úr umferð. Setja þarf leikfangið í poka, líma fyrir hann og skila vörunni til söluaðila, heildsölunnar Danco eða fara með vöruna beint í förgun til Sorpu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×