Skrifstofustjórinn fær ekki áheyrn og situr uppi með feitan reikning Árni Sæberg skrifar 5. mars 2026 10:19 Páll Þórhallsson er skrifstofustjóri skrifstofu stjórnskipunar í forsætisráðuneytinu. Lögreglan Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, fær ekki áheyrn Hæstaréttar í deilu hans við Landsbankann. Páll tapaði greiðslukorti sínu í París í Frakklandi og óprúttnir aðilar náðu tæpum 600 þúsund krónum út af reikningi hans. Landsréttur taldi Pál hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi og Landsbankinn þyrfti því ekki að endurgreiða honum fjármunina.
Í ákvörðun Hæstaréttar þess efnis segir að með héraðsdómi hafi krafa Páls verið tekin til greina og Landsbankinn dæmdur til að endurgreiða honum fjármunina. Með dómi Landsréttar hafi Landsbankinn hins vegar verið sýknaður af öllum kröfum Páls. Veit ekki hvernig maðurinn komst yfir leyninúmerið Niðurstaða Landsréttar hafi verið byggð á frásögn Páls um að debetkortið hefði verið í sérstakri buddu í hliðarvasa sem rennt hefði verið fyrir. Þá hefði hann ekki vitað hvernig annar maðuri hefði komist yfir kortið og PIN-númer þess sem var notað við úttektir. Á grundvelli lýsingar Páls hafi Landsréttur komist að þeirri niðurstöðu að Páll hefði sýnt af sér stórfellt gáleysi við notkun og varðveislu debetkortsins og öryggisskilríkja. Dómur Landsréttar er ítarlega reifaður í fréttinni hér að neðan: Í ákvörðun Hæstaréttar segir að Páll hafi byggt á því að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi og fordæmisgildi um stórfellt gáleysi notanda greiðsluþjónustu. Ekki hafi reynt á sambærilegt álitaefni fyrir íslenskum dómstólum, en slík ágreiningsefni komi oft fyrir úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki. Þannig hafi mikla þýðingu fyrir fjármálafyrirtæki og neytendur að fyrir liggi skýrt fordæmi Hæstaréttar um réttindi og skyldur þeirra. Landsbankinn fékk leyfi hjá Landrétti Þá hafi hann vakið athygli á því að Landsréttur hafi veitt Landsbankanum áfrýjunarleyfi í málinu en bankinn hafi reist beiðni sína þar um einkum á því að dómur í málinu hefði verulegt almennt gildi. Páll reisi beiðni sína ekki á því að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að formi eða efni, en telji þó nánar tilgreinda annmarka vera á honum og forsendur hans óljósar. Samkvæmt lögum um meðferð einkamála er skilyrði áfrýjunar til Landsréttar að fjárkrafa nemi 1.473.007 en krafa Páls nam miklum mun lægri fjárhæð. Landsréttur getur þó veitt leyfi til áfrýjunar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, meðal annars að mál hafi verulegt almennt gildi. Niðurstaða Hæstaréttar sé sú að að virtum gögnum málsins verði hvorki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni Páls í skilningi laga um meðferð einkamál. Þá verði ekki séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að formi eða efni. Beiðni um áfrýjunarleyfi sé því hafnað.
Fjármálafyrirtæki Greiðslumiðlun Dómsmál Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira