Ýta birtingar á niðurstöðum samræmdra prófa undir stéttaskiptingu? Guðrún Elísa Sævarsdóttir skrifar 6. mars 2026 10:32 Nú er verið að hefja samræmd próf á ný í grunnskólum landsins. Mér finnst í sjálfu sér jákvætt að við reynum að meta stöðu nemenda og skólakerfisins. Kennarar, skólayfirvöld og stjórnvöld þurfa upplýsingar til að geta bætt starf sitt og stutt betur við börn sem þurfa meiri aðstoð. En ég velti því fyrir mér hvort við séum að fara rétta leið þegar rætt er um að birta opinberlega niðurstöður einstakra skóla. Á pappírnum kann það að virðast einfalt, skólar fá ákveðna niðurstöðu og samfélagið sér hvernig þeir standa sig. En raunveruleikinn er miklu flóknari. Börn byrja ekki öll skólagöngu sína á sama stað. Sum hafa sterkan stökkpall, önnur veikari. Franski félagsfræðingurinn Pierre Bourdieu fjallaði ítarlega um þetta í rannsóknum sínum á menntakerfum. Hann talaði um mismunandi tegundir auðs sem móta stöðu einstaklinga. Hann talaðir um félags-, menningar- og fjárhagsauð (Bourdieu, 1986). Þessar tegundir af auð dreifast ekki jafnt í samfélaginu og hafa þau bein áhrif á möguleika barna í skólakerfinu. Menningarauður getur til dæmis birst í því hvernig tungumál er notað á heimilum, hvaða væntingar eru gerðar til náms eða hversu auðvelt foreldrum reynist að styðja við nám barna sinna. Félagsauður felst í tengslum og stuðningsneti ungmenna. Fjárhagsauður hefur áhrif á búsetu, aðgengi að tómstundum og ýmsum öðrum þáttum sem móta líf barna. Þegar þessir þættir leggjast saman myndast mjög ólíkir stökkpallar. Þetta er ekki gagnrýni á skóla eða kennara, þvert á móti. Kennarar vinna daglega mikilvægt starf við að jafna stöðu barna. En skólar starfa í samfélagslegu samhengi sem þeir stjórna ekki sjálfir. Ef niðurstöður samræmdra prófa eru birtar opinberlega fyrir hvern skóla er hætta á að þær verði túlkaðar sem einfaldur gæðamælikvarði á ákveðna skóla í ákveðnum hverfum. Þá gæti skapast óformleg „stigatafla“ skóla þar sem sumir fá stimpil sem góðir en aðrir sem slakir. Slík þróun getur haft afleiðingar sem ná langt út fyrir skólastofuna. Fólk sem hefur efni á því gæti frekar kosið að flytja í hverfi þar sem skólar eru með hærri meðaltalsniðurstöður í samræmdu prófunum. Á sama tíma vitum við að fjölskyldur með minni fjárhagslega burði flytja oftar í ódýrara húsnæði. Þannig gætu prófaniðurstöður, sem eiga að vera verkfæri til umbóta, óvart orðið þáttur í því að auka félagslegan aðskilnað milli hverfa. Þetta er í raun klassískt félagsfræðilegt mynstur. Það þýðir ekki að við eigum ekki að safna gögnum eða greina stöðu skólakerfisins, þvert á móti. Slíkar upplýsingar eru nauðsynlegar, en spurningin er hvernig þær eru notaðar. Það væri eðlilegt að menntayfirvöld hefðu ítarlegar upplýsingar um stöðu einstakra skóla, þannig væri hægt að greina hvar þörfin er mest og veita markvissan stuðning. Þá gæti menntamálaráðuneytið veitt fleiri úrræði, meiri ráðgjöf eða sértæk verkefni fyrir skóla sem starfa við krefjandi aðstæður. Foreldrar eiga einnig rétt á upplýsingum um stöðu barna sinna og framvindu náms og er það gott að þau fái niðurstöður samræmdu prófanna. En það er ekki endilega sjálfgefið að allt samfélagið þurfi að fá opinberar „einkunnir“ á einstaka skóla. Markmið menntakerfisins ætti að vera að styrkja alla skóla og styðja við öll börn, ekki að búa til samkeppni milli skóla sem í raun starfa við mjög ólíkar félagslegar aðstæður. Þegar við ræðum samræmd próf ættum við því kannski að spyrja okkur einnar einfaldar spurningar ,,viljum við nota þessi gögn til að skilja kerfið betur og styðja við þá sem þurfa mest á því að halda, eða viljum við nota þau til að bera skóla saman?”. Munurinn þar á milli er ekki bara tæknilegur. Hann er samfélagslegur. Höfundur er umsjónakennari í grunnskóla með félagsfræðimenntun. Heimildir Bourdieu, P. (1986). The Forms of Capital. Í J. G. Richardson (ritstj.), Handbook of Theory and Research for the Sociology of Education. Greenwood. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar