Innlent

Hval­fjarðar­göng lokuð

Samúel Karl Ólason skrifar
Göngunum var lokað á fimmta tímanum í dag, þegar bíll bilaði þar inni.
Göngunum var lokað á fimmta tímanum í dag, þegar bíll bilaði þar inni. Vísir/Jóhann

Hvalfjarðargöngum hefur verið lokað. Tilkynning um lokunina var birt á vef Vegagerðarinnar klukkan 16:28 en göngunum mun hafa verið lokað vegna bilaðs bíls.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er búist við því að göngin verði opnuð aftur fyrir klukkan fimm. Hægt er að fylgjast með lokun ganganna hér á vef Vegagerðarinnar.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×