Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. mars 2026 16:42 Andrew Mountbatten-Windsor er yngsti bróðir Karls konungs. EPA Forsætisráðherra Kanada kallar eftir því að Andrew Mountbatten-Windsor verði tekinn af erfðaröðinni að bresku krúnunni. Fyrrverandi prinsinn var handtekinn fyrir nokkrum vikum, grunaður um brot í opinberu starfi.
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að á ferðalagi í Japan hafi Mark Carney sagt, forsætisráðherra Kanada, að hann teldi að viðurstyggileg framkoma Mountbatten-Windsor ætti að leiða til þess að hann yrði fjarlægður úr erfðaröðinni. Mountbatten-Windsor afsalaði sér öllum titlum í október 2025 og var rúmri viku síðar sviptur prins-titilinum. Honum var gert að flytja í annað húsnæði. Á 66 ára afmælisdaginn nú í febrúar var hann handtekinn, grunaður um brot í opinberu starfi, og framkvæmd húsleit á heimili hans. Hann var að endingu látinn laus. Þrátt fyrir að vera ekki lengur prins er Mountbatten-Windsor, áður þekktur sem Andrés prins, áttundi í erfðaröðinni að bresku krúnunni. „Þótt hann sé hann sé langt aftur í röðinni, þá stendur lögmálið,“ sagði Carney. Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, sagði í síðasta mánuði við Keir Starmer, forsætisráðherra Breta, að hann myndi samþykkja allar tillögur um að fjarlægja Mountbatten-Windsor úr erfðaröðinni. Þá tók Christopher Luxon, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, undir orð Albanese. „Þetta eru alvarlegar ásakanir og Ástralir taka þær alvarlega,“ sagði Albanese. Til að fjarlægja Mountbatten-Windsor úr erfðaröðinni þarf þingið að samþykkja þingsályktun og Karl Bretakonungur að veita henni konunglega staðfestingu. Þá þurfa leiðtogar fjórtán samveldanna einnig að styðja tillöguna. Breska ríkisstjórnin hefur sagst vera að íhuga lög til að fjarlægja prinsinn úr erfðaröðinni en forsvarsmenn bresku krúnunnar hafa ekki tjáð sig opinberlega um málið.
Mál Andrésar prins Bretland Kóngafólk Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira