Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. mars 2026 14:24 Sam Altman er forstjóri OpenAI en Kalinowska, fyrrverandi starfsamður fyrirtækisins, hefur sagt upp störfum. AP/Jose Luis Magana Vélbúnaðarstjóri OpenAI, sem á gervigreindarmállíkanið ChatGPT, hefur sagt af sér í kjölfar þess að fyrirtækið komst að samningi við Pentagon um notkun þeirra á gervigreindinni. Hún telur fyrirhugaða notkun varhugaverða þar sem Pentagon hafi heimild til að nýta gervigreind til að fylgjast með almennum borgurum.
Caitlin Kalinowski, fyrrverandi vélbúnaðarstjóri OpenAI, tilkynnti um afsögn sína í færslu á samfélagsmiðlum. Þar sagðist hún telja að fyrirtækið hafi ekki gefið sér nægan tíma í samningagerð við Pentagon og hafi vegna þess veitt þeim leyfi til að nota gervigreindarlíkön OpenAI á leynilegum skýjanetum Pentagon. Reuters greinir frá. „Eftirlit með Bandaríkjamönnum án dómsúrskurðar og sjálfvirk banvæn vopn án samþykkis eru mörk sem hefðu verðskuldað meiri umhugsun en þau fengu,“ skrifaði Kalinowski en tekur fram að hún beri mikla virðingu fyrir Sam Altman, forstjóra OpenAI. I resigned from OpenAI. I care deeply about the Robotics team and the work we built together. This wasn’t an easy call. AI has an important role in national security. But surveillance of Americans without judicial oversight and lethal autonomy without human authorization are…— Caitlin Kalinowski (@kalinowski007) March 7, 2026 Hún vísar þar í klásúlu í samningunum sem virðist segja til um að Pentagon hafi leyfi til að nota gervigreindartæknina til að fylgjast með Bandaríkjamönnum og búa til sjálfvirk vopn knúin af gervigreind. OpenAI og varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna, sem fer með umsjón Pentagon, undirrituðu samninginn í lok febrúar. Altman sagði í færslu á samfélagsmiðlum þann dag að öryggi gervigreindar og víðtæk dreifing ávinnings hennar væru þeirra helstu markmið. „Tvær af mikilvægustu öryggisreglum okkar eru bann við fjöldaeftirliti innanlands og ábyrgð manna á beitingu valds, þar með talið fyrir sjálfvirk vopnakerfi. Varnarmálaráðuneytið er sammála þessum reglum, endurspeglar þær í lögum og stefnu og við settum þær inn í samning okkar,“ sagði Altman. Tonight, we reached an agreement with the Department of War to deploy our models in their classified network.In all of our interactions, the DoW displayed a deep respect for safety and a desire to partner to achieve the best possible outcome.AI safety and wide distribution of…— Sam Altman (@sama) February 28, 2026 Afsögn Kalinowski gefur hins vegar í skyn að samningurinn hafi ekki verið nægilega vel útfærður. Loka á Anthropic Varnarmálaráðuneytið ætlaði að gera álíka samning við gervigreindarfyrirtækið Anthropic en Dario Amodei, forstjóri Anthropic, sagði að hann gæti ekki með góðri samvisku veitt Pentagon ótakmarkaðan aðgang að tækninni. „Sum notkun er líka einfaldlega utan marka þess sem tækni nútímans getur gert á öruggan og áreiðanlegan hátt. Tvö slík tilvik hafa aldrei verið innfalin í samningum okkar við varnarmálaráðuneytið og við teljum að þau eigi ekki að vera innifalin núna,“ segir í yfirlýsingunni. Í kjölfar yfirlýsingarinnar bannaði Donald Trump Bandaríkjaforseti öllum alríkisstofnunum Bandaríkjanna að nota gervigreindartækni Anthropic, sem á gervigreindarmállíkanið Claude. Samkvæmt Politco ákvað varnarmálaráðuneytið að skilgreina Anthropic sem áhættu í brigðakeðju sem bannar fyrirtækjum sem eiga í viðskiptum við bandaríska herinn og alríkisstofnanir að eiga í viðskiptum við Anthropic. „Frá upphafi hefur þetta snúist um eina grundvallarreglu: að herinn geti nýtt sér tækni í öllum löglegum tilgangi,“ segir í yfirlýsingu Pentagon. „Herinn mun ekki leyfa söluaðila að troða sér inn í valdakeðjuna með því að takmarka lögmæta notkun á mikilvægri getu og stofna hermönnum okkar í hættu.“
Gervigreind Bandaríkin Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Erlent Fleiri fréttir Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Sjá meira