Hamilton bjartsýnn á að Ferrari geti orðið meistari Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. mars 2026 12:16 Lewis Hamilton á enn eftir að komast á verðlaunapall sem liðsmaður Ferrari. getty/Anni Graf Eftir fyrstu keppni tímabilsins í Formúlu 1 er Lewis Hamilton bjartsýnn á að Ferrari geti barist við Mercedes um heimsmeistaratitilinn.
George Russell, ökumaður Mercedes, vann Ástralíukappaksturinn í gær. Samherji hans, Kimi Antonelli, varð annar og Ferrari-mennirnir Charles Leclerc og Hamilton enduðu í 3. og 4. sæti. Þrátt fyrir að Ferrari hafi ekki náð að fylgja eftir góðri byrjun í keppni gærdagsins og setja pressu á Mercedes kveðst Hamilton fullviss um að liðið geti farið alla leið í ár. „Liðið gerði frábæra hluti heilt yfir. Það var margt jákvætt. Nokkrir hringir í viðbót og ég hefði náð Charles svo ég veit að við munum berjast um að komast á verðlaunapall,“ sagði Hamilton eftir kappaksturinn í gær. „Við erum ekki jafn fljótir og Mercedes en við erum í baráttu. Okkar bíður mikil vinna að ná þeim en það er ekki ómögulegt,“ bætti enski ökuþórinn við. Ferrari byrjaði keppnina í gær vel en stjórnendur liðsins sjá væntanlega eftir því að hafa ekki tekið pittstopp þegar öryggisbíllinn kom út á braut snemma í keppninni. Ferrari var með forystuna en Mercedes seig svo fram úr eftir að Ferrari gerði dekkjaskipti og Russell og Antonelli komu fyrstir í mark. Hamilton gekk í raðir Ferrari frá Mercedes fyrir síðasta tímabil. Illa gekk hjá heimsmeistaranum sjöfalda í fyrra og hann sagði að tímabilið 2025 hefði verið martröð líkast. Hann komst til að mynda aldrei á verðlaunapall, í fyrsta sinn á ferlinum. Hljóðið var betra í Hamilton í aðdraganda þessa tímabils og ekki minnkaði bjartsýnin eftir frammistöðu Ferrari í Ástralíu. „Mér líður frábærlega. Við náðum 3. og 4. sæti en á endanum voru Mercedes hraðari en við,“ sagði Hamilton. Önnur keppni tímabilsins fer fram í Sjanghaí um næstu helgi.
Akstursíþróttir Mest lesið Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Sport Lærði að ganga og tala upp á nýtt: „Þessi röskun er ekkert grín“ Sport Elísa rétt missti af silfri: „Svo kemur þetta helvítis sikk sakk“ Sport Orri áfram heitur á Spáni Fótbolti Sjáðu mörkin: Frábær Doku og aukaspyrnan sem rúllaði í mark Liverpool Enski boltinn Guardiola hvatti West Ham og uppskar hlátur Enski boltinn Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Fótbolti Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Körfubolti Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Handbolti Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Körfubolti Fleiri fréttir Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúlan snýr aftur til Tyrklands Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Hægri hönd Verstappens skiptir um lið Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Undrabarn slær í gegn í Formúlu 1 Sjá meira